Sigurður Ingi horfir til þess að byggðar verði 20 þúsund íbúðir á næstu fimm árum

Inn­við­a­ráð­herra boðar nýja hús­næð­is­stefnu fyrir Ísland til að bregð­ast við gríð­ar­legum verð­hækk­unum. Hann segir ljóst að ágrein­ingur um ábyrgð á stöð­unni „mun ekki skila okkur neitt áfram og veldur óásætt­an­legri patt­stöðu“.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, boðar stofnun stýri­hóps til að móta hús­næð­is­stefnu fyrir Ísland á næstu dögum. Stefnan verður svo lögð fyrir Alþingi til sam­þykktar í formi þings­á­lykt­unar. „Ef mín áform ganga eftir verður lagður grund­völlur að því að hér á landi verði hægt að stór­auka hús­næð­is­upp­bygg­ingu á næstu árum og jafn­vel horft til þess að setja markið á að það verði byggðar allt að 20.000 íbúðir á næstu fimm árum og þar af 7.000 með aðkomu hins opin­bera í formi fjöl­breytts hús­næð­is­stuðn­ings. Við erum með skýr mark­mið.“

Þetta kemur fram í grein sem Sigurður Ingi skrifar í Morg­un­blaðið í dag.

Miklar hækkanir en sögulega lítið framboð

Staðan á hús­næð­is­mark­aði hefur verið þannig síð­ustu tæpu tvö árin að eft­ir­spurn hefur verið mun meiri en fram­boð. Verð hefur hækkað skarpt, alls um 16,6 pró­sent síð­ast­liðið ár. Með­al­kaup­verð hefur hækkað um fimm millj­ónir króna á tveimur mán­uðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Íbúðum sem eru til sölu hefur að sama skapi fækkað mán­uði til mán­aðar og hátt hlut­fall íbúða selst yfir ásettu verði. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu seld­ist til að mynda 43,2 pró­sent íbúða í fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu yfir ásettu verði í jan­úar og hefur hlut­fallið aldrei mælst áður jafn hátt, sam­kvæmt síð­ustu birtu mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) um hús­næð­is­mark­að­inn. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er sér­stak­lega mikið bit­ist um litlar og ódýrar eignir, þær sem eru frá núll til tveggja her­bergja. Fjöldi íbúða sem eru með ásett verð á bil­inu 30-40 millj­ónir króna voru aðeins 26 tals­ins í byrjun febr­úar eða um tíu pró­sent af því sem þær voru í upp­hafi maí 2020. Það bendir til þess að vand­inn sé mestur hjá þeim sem eru að koma inn á markað eða hafa minni fjár­ráð en aðrir sem komu inn á mark­að­inn fyrr.

Allir benda á aðra

Þeir sem bera ábyrgð á hús­næð­is­mark­aði hafa bent hver á annan þegar spurt er hverju sé um að kenna. Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri hefur til að mynda sagt að sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verði að brjóta land og auka fram­boð til að auka fram­boð. Samtök iðn­að­ar­ins, sem gæta meðal ann­ars hags­muna bygg­ing­ar­verk­taka, hafa einnig haldið þessum mál­flutn­ingi á lofti.

Stærstu sveit­ar­fé­lögin, sér­stak­lega Reykja­vík, hafa á móti bent á á móti að aldrei hefur verið meira byggt en und­an­farin ár. Fram­boðs­skortur sé ekki endi­lega meg­in­á­stæðan. Undir það hefur HMS tekið. Á Alþingi hefur stjórn­ar­and­staðan kallað eftir því að ríkið ráð­ist í stór­felldar aðgerðir til að mæta stöð­unni sem er á hús­næð­is­mark­aði og bent á að nær allar aðgerðir stjórn­valda í hús­næð­is­málum á und­an­förnum árum hafi snúið að því að auka eft­ir­spurn, ekki fram­boð. Eru þar nefndar leiðir eins og Leið­rétt­ingin, skatt­frjáls nýt­ing sér­eign­ar­sparn­aðar til íbúða­kaupa, Fyrsta fast­eign og hlut­deild­ar­lán. Þetta hafi leitt til hækk­unar á verði.

Bent hefur verið á að ákvarð­anir Seðla­banka Íslands um stór­felldar stýri­vaxta­lækk­anir og tíma­bundið afnám sveiflu­jöfn­un­ar­auka, sem færði bönkum lands­ins stór­aukið svig­rúm til að lána til íbúð­ar­kaupa, ásamt lækkun banka­skatts hafi haft mikil ruðn­ings­á­hrif á mark­að­inn og verið und­ir­staðan í miklum hagn­aði bank­anna á síð­ustu árum. Útlán til heim­ila hafa auk­ist um mörg hund­ruð millj­arða króna vegna þessa.

Vill leggja ágreining til hliðar

Í grein Sigurðar Inga segir að það hafi ekki farið fram hjá neinum að þeir aðilar sem beri sam­eig­in­lega ábyrgð á stöð­unni á hús­næð­is­mark­aði séu ekki sam­mála um ástæður þess­ara miklu hækk­ana. „Að mínu mati er ljóst að þessi ágrein­ingur mun ekki skila okkur neitt áfram og veldur óásætt­an­legri patt­stöðu. Nú er tím­inn til að leggja þennan ágrein­ing og þessar skærur til hliðar. Fortíð er for­tíð og nú verðum við, ríki, sveit­ar­fé­lög, aðilar vinnu­mark­að­ar­ins og bygg­ing­ar­iðn­að­ur­inn að horfa fram á veg­inn og skapa jafn­vægi á hús­næð­is­mark­aði.“

Það sé hins vegar ljóst að allir þeir sem koma að hús­næð­is­málum þurfi að leggja sitt af mörkum í þeirri vinnu sem sé fram undan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár