HMS segir ekki hægt að fullyrða að hátt verð sé vegna framboðsskorts

Seðla­banka­stjóri sagði í gær að mikil hækkun fast­eigna­verðs væri að ein­hverju leyti und­ir­byggð á skorti á fram­boði. Samkvæmt Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun er þó ekki hægt að full­yrða það.

Mikið hefur verið byggt af nýju húsnæði á síðustu tveimur árum, að mati HMS.
Mikið hefur verið byggt af nýju hús­næði á síð­ustu tveimur árum, að mati HMS. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun er ekki hægt að full­yrða að núver­andi staða á hús­næð­is­mark­aði hafi komið til vegna skorts á fram­boði af nýjum íbúðum. Fyrst og fremst megi rekja hana til auk­innar eft­ir­spurnar, en vís­bend­ingar séu einnig um að lóða­skortur gæti staðið í vegi fyrir áfram­hald­andi upp­bygg­ingu.

Þetta kemur fram í kynn­ingu stofn­un­ar­innar fyrir Þjóð­hags­ráð um stöð­una á hús­næð­is­mark­aði frá því fyrr í mán­uð­inum. Samkvæmt henni hefur fram­boð íbúða verið umfram spár á síð­ustu árum og óupp­fyllt íbúða­þörf hefur minnkað. Sér­stak­lega hafi verið mikið byggt af íbúðum á síð­ustu tveimur árum og því vill HMS ekki full­yrða að verð­hækk­anir séu vegna fram­boðs­skorts.

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri, sem á sæti í Þjóð­hags­ráði ásamt full­trúum stétt­ar­fé­laga og Samtökum atvinnu­lífs­ins, hélt því hins vegar fram á vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi í gær að mikil hækkun fast­eigna­verðs sé að ein­hverju leyti und­ir­byggð á skorti á fram­boði.

Seðla­banka­stjóri nefndi þó einnig að að nýleg hækkun hús­næð­is­verðs væri að hluta til drifin áfram af vaxta­lækk­unum sem bank­inn þurfti að ráð­ast í til að bregð­ast við efna­hags­á­fall­inu sem fylgdi heims­far­aldr­inum í fyrra. Að mati HMS eru þessar vaxta­lækk­anir og eft­ir­spurn­ar­aukn­ingin sem þeim fylgdi meg­in­or­sök núver­andi stöðu á hús­næð­is­mark­aði, en sam­kvæmt stofn­un­inni var erfitt að sjá þær fyrir og bregð­ast við eft­ir­spurn­inni í tæka tíð.

HMS minnt­ist líka á lóða­skort í skýrsl­unni sinni, en sagði að vís­bend­ingar væru uppi um að skort­ur­inn gæti staðið í vegi fyrir áfram­hald­andi og stöðugri upp­bygg­ingu. Sömu­leiðis sagði Ásgeir að sú ákvörðun að Reykja­vík eða önnur sveit­ar­fé­lög hafi ekki reist nýjar íbúða­byggðir á nýju landi á síð­ari árum hafa mikil áhrif á hús­næð­is­verðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár