Heimavellir töpuðu 36 milljónum á fyrstu níu mánuðum ársins

Verð­tryggðar lang­tíma­skuldir Heima­valla eru 30,6 millj­arðar króna. Stór hluti þeirra skulda eru við Íbúða­lána­sjóð. Félagið stefnir að því að end­ur­fjár­magna þær til að fá betri kjör og geta greitt út arð.

Guðbrandur Sigurðsson hringir kauphallarbjöllunni þegar viðskipti hófust með bréf í Heimavöllum fyrr á þessu ári.
Guð­brandur Sig­urðs­son hringir kaup­hall­ar­bjöll­unni þegar við­skipti hófust með bréf í Heima­völlum fyrr á þessu ári. Mynd: Nasdaq Iceland

Heima­vellir hf. stærsta leigu­fé­lagið á almennum mark­aði og það eina slíka sem er skráð í Kauphöll Íslands, tap­aði alls 36 millj­ónum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2018. Vel gekk hjá félag­inu á þriðja árs­fjórð­ungi þar sem hagn­aður þess var 100 millj­ónir króna. Hann er þó allur til­komin vegna sölu­hagn­aðar á fast­eignum sem skil­aði Heima­völlum 112 millj­ónum króna á tíma­bil­inu. Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi Heima­valla sem birtur var í dag.

Leigu­tekjur Heima­valla á fyrstu níu mán­uðum árs­ins voru tæp­lega 2,8 millj­arðar króna og sölu­hagn­aður vegna sölu á fast­eignum alls 222 millj­ónir króna á tíma­bil­inu. Heima­vellir áætla að tekjur árs­ins 2018 verði sam­tals 3,7 millj­arðar króna, að þær verði tæp­lega 3,9 millj­arðar króna á næsta ári og nái að verða rúm­lega fjórir millj­arðar króna árið 2020.

Fengu lán hjá Íbúðalánasjóði

Alls eiga Heima­vellir 1.983 íbúðir og er virði eigna­safns félags­ins metið á 58,5 millj­arða króna. Eigið fé er 18,7 millj­arðar króna og heild­ar­skuldir 39,7 millj­arðar króna. Af lang­tíma­skuldum Heima­valla eru verð­tryggð lán frá lána­stofn­unum 30,6 millj­arðar króna. Þau lán eru að mestu frá Íbúða­lána­sjóði og uppi­staða þeirra eru lán sem veitt voru á grund­velli reglu­gerðar um lán­veit­ingar sjóðs­ins frá árinu 2013 til sveit­ar­fé­laga, félaga og félaga­sam­taka sem ætl­aðar eru til bygg­ingar eða kaupa á leigu­í­búð­um. Mark­mið þeirrar reglu­gerðar er að „stuðla að fram­boði á leigu­í­búðum fyrir almenn­ing á við­ráð­an­legum kjöru­m“. Um síð­ustu ára­mót skuld­uðu Heima­vellir 18,6 millj­arða króna í slík lán. Það félög sem hafa fengið slík lán mega ekki greiða arð né arðs­gildi.

Heima­vellir hafa verið að und­ir­búa end­ur­fjár­mögnun á lang­tíma­skuldum sínum og í til­kynn­ingu sem félagið sendi frá sér í lok ágúst sagði að fyr­ir­hugað væri að hrinda end­ur­fjár­mögn­un­inni í fram­kvæmd á næstu mán­uðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár