Landsþekktir menn dragast inn í Metoo-herferðina í Svíþjóð

Metoo-herferðin gegn kynferð­is­legri áreitni og kynferðis­ofbeldi hefur haft mikil áhrif í Svíþjóð á liðnum vikum. Að minnsta kosti tvær nauðgunar­kærur hafa verið lagðar fram gegn lands­þekktum mönnum í kjölfar hennar og þekktir blaðamenn og leikarar hafa dregist inn í umræðuna vegna framkomu sinnar gagnvart konum.

Leiddi af sér Metoo-herferðina
Leiddi af sér Metoo-her­ferð­ina Umfjöllun fjöl­miðla í Banda­ríkj­unum um mál kvik­mynda­fram­leið­and­ans Harvey Weinstein – fjöldi kvenna hefur stigið fram og ásakað hann um nauðg­anir og kyn­ferð­is­lega áreitni – hefur leitt af sér Metoo-her­ferð­ina um allan heim. Áhrif her­ferð­ar­innar eru sér­stak­lega mikil í Svíþjóð þar sem nýjar fréttir, sem eru afleið­ingar hennar, hafa komið upp nán­ast á hverjum degi síð­ustu vik­urnar.

Metoo-herferðin hefur haft miklar afleiðingar í Svíþjóð síðustu vikurnar. Lands­þekktir fjölmiðla­menn, leikarar, uppi­standarar og stjórn­málamenn hafa dregist inn í umræðuna í landinu um kynferðis­lega áreitni gagnvart konum og í nokkrum tilfellum er um að ræða nauðgunar­tilraunir sem hafa komið upp á yfir­borðið. Á þessari stundu er ómögulegt að segja hvert umræðan um metoo-herferðina mun fara í Svíþjóð og hverjar afleiðingar hennar verða; á hverjum degi nánast koma fram nýjar og nýjar sögur um kynferðis­lega áreitni í hinum ýmsu geirum samfélagsins. Nú þegar hafa leikkonur, söngkonur, lögfræðingar, flug­freyjur og fleiri hópar stigið fram sameiginlega og sagt sögur sínar opinber­lega, meðal annars í sænskum dagblöðum og á sérstökum samkomum sem haldnar hafa verið. 

Alyssa MilanoLeik­konan fékk þá hug­mynd að beina þeim til­mælum til kvenna sem hefðu orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni að segja sögu sína undir undir Twitter-hashtagg­inu #metoo.

Hugmynd Milanos

Metoo-herferðin hófst í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið undanfarið ár