Að opinbera sál sína

Bjarni Snæ­björns­son fékk tauga­á­fall þegar hann þurfti að horfast í augu við sárs­auk­ann og skömm­ina sem hann bar í æsku vegna kyn­hneigðar sinnar, en leik­verkið Góðan dag­inn, faggi byggir á bréfum og dag­bókum hans frá því að hann var barn.

Sjálfsævi­sögu­legi heim­ilda­söng­leik­ur­inn „Góðan dag­inn, Faggi“ er nú sýndur í kjall­ara Þjóð­leik­húss­ins. Um ein­leik er að ræða og er það Bjarni Snæ­björns­son sem leikur í raun sjálfan sig en leik­ritið er byggt á dag­bókum hans og bréfa­skriftum frá því hann var barn. „Hann byggir líka á hvernig ég hef gert upp ævi mína hingað til. Fók­u­s­punkt­ur­inn er kannski aðal­lega að sætt­ast við sjálfan sig eins og maður er og hvernig það var fyrir mig sem homma að alast upp í gagn­kyn­hneigðu sam­fé­lagi,“ segir Bjarni, sem er titl­aður höf­undur verks­ins og annar höf­undur og leik­stjóri er Gréta Kristín Ómars­dóttir. Axel Ingi Árnason samdi tón­list­ina sem er byggður á söng­leikja­hefð­inni.

Skömm yfir kynhneigðinni

Bjarni talar um skömm­ina sem hann upp­lifði í mörg ár við að vera sam­kyn­hneigður. „Verkið fjallar líka um upp­gjör við þessa skömm sem ég upp­lifði og teng­ist sam­fé­lag­inu og er í und­ir­með­vit­und­inni; ég held að þetta ger­ist ósjálfrátt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár