Ótti við sérhagsmuni lætur ríkið brjóta lög

Ólafur Steph­en­sen segir að með því að við­halda ólög­legu banni á inn­flutn­ingi á fersku kjöti, eggjum og óger­il­sneyddum mjólk­ur­vörum sé verið að taka minni hags­muni fram yfir meiri.

„Þetta er annað dæmi þar sem ríkið hefur árum saman tuddað á bæði neyt­endum og fyr­ir­tækjum alveg með opin augun, vit­andi að það er að brjóta EES-samn­ing­inn og að brjóta lög.“

Þetta segir Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, um þá stað­reynd að ríkið afnemi ekki bann við inn­flutn­ingi á fersku kjöti, eggjum og vörum úr óger­il­sneyddri mjólk þrátt fyrir að fyrir liggi dómar bæði Hæsta­réttar og EFTA-dóm­stóls­ins um að bann við þeim inn­flutn­ingi brjóti í bága við EES-samn­ing­inn.

Þetta er meðal þess sem kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við Ólaf í þætt­inum 21 á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut í vik­unni. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Ólafur segir að það sem valdi þess­ari afstöðu sé ótti við sér­hags­muni. „Á sínum tíma samdi Ísland um upp­töku mat­væla­lög­gjafar Evr­ópu­sam­bands­ins í EES-samn­ing­inn. Það átti ekki bara við um búvör­urnar heldur líka sjáv­ar­af­urðir. Þannig að sjáv­ar­af­urðir rétt eins og búvörur lúta heil­brigð­is­eft­ir­liti á upp­runa­stað og síðan eru þær í frjálsu flæði á milli aðild­ar­ríkj­anna.[...]Þetta er nátt­úru­lega gíf­ur­legt hags­muna­mál íslensks sjáv­ar­út­vegs og Íslands sem mat­væla­út­futn­ings­lands. Þegar Alþingi tekur upp alla mat­væla­lög­gjöf­ina í EES nema við­heldur bann­inu á þessum vörum þá er fyrst og fremst að vera að bregð­ast við alveg óheyri­legum þrýst­ingi frá Bænda­sam­tökum Íslands og stjórn­mála­mönnum sem eru þeim hand­gengnir.“

Ólafur segir að með því að halda þessu til streitu, að heim­ila ekki inn­flutn­ing­inn, þá séu menn að setja EES-samn­ing­inn og alla þá hags­muni íslensks atvinnu­lífs sem felist í honum, í hættu. „Þar eru menn klár­lega að spila með miklu meiri hags­muni fyrir minni.“

Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár