Bresk skýrsla brýndi Bandaríkjastjórn til harðari aðgerða

Stig­vax­andi við­brögð banda­rískra stjórn­valda virð­ast byggð á nýrri skýrslu frá sér­fræð­ingum við Imperial College í Lundúnum. Hvíta húsið mælist nú til þess að fólk komi ekki saman í hópum stærri en tíu ein­stak­linga.

Donald Trump forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Almenn­ingur í Banda­ríkj­unum hefur nú verið hvattur til þess að forð­ast allar sam­komur þar sem tíu eða fleiri koma saman. Hvíta húsið gaf þessar leið­bein­ingar út í gær, en á sunnu­dag höfðu heil­brigð­is­yf­ir­völd mælst til þess ekki kæmu fleiri en fimm­tíu saman í einu.

Það er því stig­mögnun í við­bragði banda­rískra yfir­valda, sem virð­ast með hverjum deg­inum átta sig betur á því hvaða afleið­ingar kór­ónu­veiran gæti haft á banda­rískt sam­fé­lag.

Til við­bótar við ráð­legg­ingar alrík­is­stjórn­ar­innar hafa yfir­völd í ein­staka ríkjum og borgum skipað fólki að halda sig heima eins og kostur er, til dæmis í nokkrum sýslum Kali­forníu-ríkis, þar sem útgöngu­bann er í gildi næstu þrjár vik­urnar, frá og með deg­inum í dag og tekur til um sjö millj­óna manna.

Stig­vax­andi við­brögð alrík­is­stjórn­ar­innar virð­ast, sam­kvæmt umfjöllun New York Times, vera byggð á nýrri skýrslu frá sér­fræð­ingum við Imperial College í Lundúnum, sem spáðu því að far­ald­ur­inn myndi hafa meiri áhrif í Banda­ríkj­unum en í Bret­landi sökum þess að Banda­ríkin væru land­fræði­lega mun stærri, sem þýddi að fleiri stað­bundnir far­aldrar færu af stað.

Einn af leið­togum COVID-19-við­bragð­steymis Hvíta húss­ins, Dr. Deborah Birx, sagði á blaða­manna­fundi að breytt við­brögð alrík­is­stjórn­ar­innar hefðu byggst á upp­lýs­ingum frá breskum rann­sak­endum.

Fjölþættar aðgerðir nauðsynlegar til að hlífa heilbrigðiskerfum

Skýrslan frá Imperial College var gerð opin­ber í gær, en banda­rísk yfir­völd hafa haft vit­neskju um það sem í henni kemur fram und­an­farna viku og fengu upp­kast að henni sent til sín um helg­ina.

Í skýrsl­unni segja sér­fræð­ing­arnir að ríki heims verði að grípa til fjöl­þættra aðgerða á sama tíma til þess að hefta útbreiðslu veirunnar eins og kostur er.

Svört­ustu spár far­alds­fræð­ing­anna við Imperial College gerðu ráð fyrir því að allt að 2,2 millj­ónir Banda­ríkja­manna gætu látið lífið ef far­ald­ur­inn fengi að geisa ómild­aður þar í landi án þess að gripið yrði til varn­ar­að­gerða.

„Kínverska veiran“

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti, sem hefur und­an­farnar vikur virst í afneitun gagn­vart alvar­leika þeirrar vár sem útbreiðsla kór­ónu­veirunnar er, virð­ist vera far­inn að átta sig á raun­veru­leik­anum, en er reyndar byrj­aður að kalla kór­ónu­veiruna „kín­versku veiruna“.

Einungis rúmar tvær vikur eru síðan for­set­inn sak­aði demókrata um að nota kór­ónu­veiruna sem „nýja blekk­ingu“ (e. new hoax) til þess að skaða hann póli­tískt. Þann sjö­unda þessa mán­aðar sagði hann að hann vildi helst ekki að far­þegum af skemmti­ferða­skip­inu Diamond Princess, sem lón­aði utan við strendur Kali­forníu, yrði hleypt í land þar sem hann væri ánægður með töl­urnar yfir fjölda smit­aðra í Banda­ríkj­unum eins og þær voru, en þá var fjöldi greindra smita nokkrir tugir.

Samkvæmt nýj­ustu upp­færslu frá banda­rískum sótt­varna­yf­ir­völdum hafa nú tæp­lega 3.500 til­felli COVID-19 verið stað­fest þar í landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár