Ásmundur keyrir enn og aftur mest – Kostnaðurinn 300 þúsund á mánuði í ár

Frá því að Ásmundur Frið­riks­son sett­ist á þing 2013 og fram á mitt þetta ár hefur hann fengið 33,1 millj­ónir króna í greiddan akst­urs­kostnað frá Alþingi. Þingmenn mega nú ekki rukka þingið vegna akst­urs í aðdrag­anda kosn­inga.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Akstur Ásmundar Frið­riks­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi, kost­aði skatt­greið­endur mest á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2021. Alls keyrði Ásmundur fyrir 1,8 millj­ónir króna á tíma­bil­inu, en akst­urs­kostn­aður hans sam­anstendur ann­ars vegar af kostn­aði vegna leigu á bíla­leigu­bílum og hins vegar vegna elds­neytis sem hann hefur keypt á þá bíla. Enginn þing­maður keyrði fyrir hærri upp­hæð en Ásmundur á fyrri hluta yfir­stand­andi árs en hann er að með­al­tali 300 þús­und krónur á mán­uði.

Þetta má lesa út úr tölum Alþingis um kostn­að­ar­greiðslur til þing­manna.

Ásmundur er ekki óvanur því að vera sá þing­maður sem fær mest end­ur­greitt frá Alþingi vegna akst­urs. Hann hefur verið í fyrsta sæti yfir þá þing­menn sem keyra mest frá því að hann sett­ist á þing árið 2013, en sam­tals hefur þing­mað­ur­inn fengið 33,1 milljón króna end­ur­greiddar vegna akst­urs á því tíma­bili.

Mestur var kostn­að­ur­inn árið 2014 þegar Ásmundur keyrði fyrir 5,4 millj­ónir króna en þá keyrði hann um á eigin bíl og gerði kröfu á Alþingi vegna þeirrar notk­unar.

Keyrði meira í ár en í fyrra

Eftir að akst­urs­greiðslur til þing­manna voru loks opin­ber­aðar í fyrsta sinn snemma árs 2018, eftir að fjöl­miðlar höfðu kallað eftir þeim árum saman, kom sér­staka Ásmundar í akstri í ljós og var mikið gagn­rýnd. Í kjöl­farið dró Ásmundur mikið úr akstr­inum og nam end­ur­greiddur kostn­aður hans á árinu 2018 2,5 millj­ónum króna. Það var lægsta upp­hæð sem Ásmundur hefur fengið end­ur­greidda vegna akst­urs frá því að hann sett­ist á þing. Þorri hans fór auk þess fram á bíla­leigu­bíl, ekki bif­reið Ásmundar, líkt og skrif­stofa Alþingis hafði beðið þing­menn um að gera.

[adspot]Árið 2019 jókst akst­urs­kostn­aður hans á ný og var um 3,8 millj­ónir króna. Í fyrra, þegar heims­far­aldur geis­aði sem tak­mark­aði öll ferða­lög, dróst akstur Ásmundar veru­lega saman og kostn­aður hans var 2,2 millj­ónir króna. Hann hefur því keyrt fyrir rúm­lega 80 pró­sent þeirrar upp­hæðar sem akstur hans kost­aði á fyrri hluta yfir­stand­andi árs.

Ásmundur er í þriðja sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi í kom­andi kosn­ingum, en flokk­ur­inn er með þrjá þing­menn í kjör­dæm­inu sem stendur.

Þrír þingmenn keyrðu fyrir meira en milljón

Skammt á eftir Ásmundi kemur Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna og odd­viti flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í kosn­ing­unum sem fara fram í næsta mán­uði. Hún keyrði fyrir rúm­lega 1,6 millj­ónir króna á fyrri hluta árs. Sá munur er á keyrslu þeirra að Bjarkey not­aði eigin bíl fyrir um eina milljón króna.

Eini þing­mað­ur­inn fyrir utan þau tvö sem keyrði fyrir meira en milljón krónur á fyrstu sex mán­uðum árs­ins var Sigurður Páll Jónsson, þing­maður Mið­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Alls keyrðu þing­menn lands­ins fyrir 13,7 millj­ónir króna á fyrri hluta árs­ins 2021. Í fyrra keyrðu þeir fyrir 23,2 millj­ónir króna sem var umtals­vert minna en árið 2019 þegar akstur þeirra sem greiddur var úr sam­eig­in­legum sjóðum kost­aði 30,2 millj­ónir króna. Kostn­að­ur­inn var mjög svip­aður árið 2018, eða 30,7 millj­ónir króna, og árið 2017, þegar hann var 29,2 millj­ónir króna. Hann dróst því saman um rúm­lega 20 pró­sent á árinu 2020 miðað við árið áður en yrði að óbreyttu meiri í ár en í fyrra.

Fá ekki endurgreiðslur fyrir síðustu sex vikur kjörtímabils

Í apríl síð­ast­liðnum mælti Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingi, fyrir frum­varpi um þing­fara­kaup og -kostnað alþing­is­manna. Frum­varpið, sem var lagt fram af öllum sem sitja í for­sætis­nefnd og áheyrn­ar­full­trúum hennar, að Þor­steini Sæmunds­syni, full­trúa Mið­flokks­ins und­an­skildum, hafði þann til­gang að tak­marka rétt þing­manna til end­ur­greiðslu ferða­kostn­aðar í aðdrag­anda kosn­inga til Alþingis.

Samkvæmt frum­varp­inu átti réttur þing­manna til end­ur­greiðslu á akst­urs­kostn­aði falla niður sex vikum fyrir kjör­dag, með til­teknum und­an­þágum þó. Tak­mark­anir áttu til að mynda ekki ná til þeirra þing­manna sem ætl­uðu ekki að gefa kost á sér áfram til setu á þingi og ef þing­maður sem verður í fram­boði þarf að sinna opin­berum erinda­gjörðum á vegum Alþingis innan ofan­greinds tímara­mma þá má hann áfram fá akst­urs­kostn­að­inn end­ur­greiddan.

[adspot]Frum­varpið varð að lögum í júní síð­ast­liðnum. Síðasti dag­ur­inn sem þing­menn gátu rukkað Alþingi um ferða­kostnað sinn á þessu kjör­tíma­bili var því síð­ast­lið­inn laug­ar­dagur.

Kostnaður jókst í kringum kosningar

Frum­varpið er lagt fram af ástæðu. Þingmenn hafa fengið mun hærri end­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar á þeim tíma­bilum þar sem kosn­ingar fara fram en öðr­um. Það bendir til þess að sitj­andi þing­menn sem sækj­ast eftir end­ur­kjöri séu að láta Alþingi greiða þann reikn­ing. Aðrir sem eru að sækj­ast eftir sæti á listum í t.d. próf­kjörum, eða eru að bjóða fram fyrir nýja flokka, geta ekki gert slíkt.

Stein­grímur ræddi þessa stöðu í sjón­varps­þætti Kjarnans í febr­úar 2018. Þar sagði hann að ef menn hafi rukkað þingið fyrir akstur vegna próf­kjörs­þátt­töku þá væri eðli­leg­ast að þeir end­ur­greiddu þær greiðsl­ur. „Eigum við bara að hafa það skýrt að þátt­taka í próf­kjörum er ekki til­efni til að senda inn eigin reikn­ing?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár