Komið í veg fyrir að Alþingi borgi fyrir akstur þingmanna í kosningabaráttu

Kostn­aður vegna akst­urs þing­manna, sem er greiddur úr rík­is­sjóði, hefur auk­ist í kringum síð­ustu þrjár kosn­ingar. Það bendir til þess að skatt­greið­endur hafi verið að borga fyrir kosn­inga­bar­áttu sitj­andi þing­manna. Nú á að taka fyrir þetta.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, mun í dag mæla fyrir frum­varpi um þing­fara­kaup og -kostnað alþing­is­manna. Frum­varpið, sem er lagt fram af öllum sem sitja í for­sætis­nefnd og áheyrn­ar­full­trúum hennar, að Þor­steini Sæmunds­syni, full­trúa Mið­flokks­ins und­an­skildum, hefur þann til­gang að tak­marka rétt þing­manna til end­ur­greiðslu ferða­kostn­aðar í aðdrag­anda kosn­inga til Alþingis.

Samkvæmt frum­varp­inu mun réttur þing­manna til end­ur­greiðslu á akst­urs­kostn­aði falla niður sex vikum fyrir kjör­dag, með til­teknum und­an­þágum þó. Tak­mark­anir munu til að mynda ekki ná til þeirra þing­manna sem hyggj­ast ekki gefa kost á sér áfram til setu á þingi og ef þing­maður sem verður í fram­boði þar að sinna opin­berum erinda­gjörðum á vegum Alþingis innan ofan­greinds tímara­mma þá má hann áfram fá akst­urs­kostn­að­inn end­ur­greiddan.

Frum­varpið er lagt fram af ástæðu. Þingmenn hafa fengið mun hærri end­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar á þeim tíma­bilum þar sem kosn­ingar fara fram en öðr­um. Það bendir til þess að sitj­andi þing­menn sem sækj­ast eftir end­ur­kjöri séu að láta Alþingi greiða þann reikn­ing. Aðrir sem eru að sækj­ast eftir sæti á listum í t.d. próf­kjörum, eða eru að bjóða fram fyrir nýja flokka, geta ekki gert slíkt.

Stein­grímur ræddi þessa stöðu í sjón­varps­þætti Kjarnans í febr­úar 2018. Þar sagði hann að ef menn hafi rukkað þingið fyrir akstur vegna próf­kjörs­þátt­töku þá væri eðli­leg­ast að þeir end­ur­greiddu þær greiðsl­ur. „Eigum við bara að hafa það skýrt að þátt­taka í próf­kjörum er ekki til­efni til að senda inn eigin reikn­ing?“

Aksturskostnaður loks opinberaður

Akst­urs­kostn­aður þing­manna hefur verið mjög til umfjöll­unar á síð­ustu árum, eða allt frá því að for­seti Alþingis svar­aði fyr­ir­­spurn Björns Leví Gunn­­ar­s­­sonar, þing­­manns Pírat­­a, um akst­­ur­s­­kostn­að. Í svari for­­seta var greint frá því hversu háar greiðslur þeir tíu þing­­menn sem fengu hæstu skatt­lausu end­­ur­greiðsl­­urnar þáðu á síð­­­ustu fimm árum. Ekki var hins vegar greint frá nafni þeirra.

[adspot]Í töl­unum mátti þó sjá að fjórir þing­menn sem þáðu hæstu end­ur­greiðsl­urnar fengu sam­tals 14 millj­ónir króna, eða tæp­lega helm­ing allra end­ur­greiðslna vegna akst­urs.

Upp­lýs­ing­arnar vöktu upp mikla reiði og ásak­anir um mögu­lega sjálftöku þing­manna. Sér­stak­lega þegar fyrir lá að Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hafði sagst keyra 47.644 kíló­metra á árinu 2017 einu saman vegna vinnu sinnar sem þing­maður, og fékk kostnað vegna þeirrar keyrslu end­ur­greiddan, alls 4,6 millj­ónir króna.

Í kjöl­farið varð það krafa þings, þjóðar og fjöl­miðla að allar greiðslur vegna akst­urs yrðu gerðar opin­berar og að þær yrðu per­sónu­grein­an­leg­ar. Þá varð það einnig krafa að allar aðrar greiðslur sem þing­menn fá vegna starfa sinna yrðu gerðar opin­ber­ar, sund­ur­lið­aðar og mörg ár aftur í tím­ann. Hvort sem um væri að ræða hús­næð­is­styrk, greiðslur vegna flugs eða kostn­aður vegna bíla­leigu­bíla. Allt ætti að koma upp á borð­ið.

For­sætis­nefnd ákvað að bregð­ast við og allar upp­lýs­ingar um kostnað sem fylgir störfum þing­manna er nú birtur mán­að­ar­lega.

Kjarninn greindi frá því í jan­úar að sam­tals keyrðu þing­menn lands­ins fyrir 23,2 millj­ónir króna í fyrra. Það er umtals­vert minna en árið 2019 þegar akstur þeirra sem greiddur var úr sam­eig­in­legum sjóðum kost­aði 30,2 millj­ónir króna. Kostn­að­ur­inn var mjög svip­aður árið 2018, eða 30,7 millj­ónir króna, og árið 2017, þegar hann var 29,2 millj­ónir króna. Hann dróst því saman um rúm­lega 20 pró­sent á árinu 2020 miðað við árið áður.

Sá þing­maður sem keyrði mest í fyrra var áfram sem áður Ásmundur Frið­riks­son. Frá því að Ásmundur sett­ist á þing árið 2013 og fram að síð­ustu ára­mótum hefur sam­an­lagður akst­urs­kostn­aður hans verið 31,4 millj­ónir króna.

Mun hærri endurgreiðslur í kringum kosningar

Í jan­úar 2019 greindi Kjarninn frá því í frétta­skýr­ingu að kostn­aður vegna akst­urs þing­manna hafi auk­ist mikið í kringum kosn­ingar. Í einu vor­kosn­ing­unum sem farið hafa fram frá byrjun árs 2013 fengu þing­menn mun hærri end­ur­greiðslur en á öðrum sam­bæri­legum tíma­bilum þegar slíkar áttu sér ekki stað. Það varð aug­ljós aukn­ing á kröfum um end­ur­greiðslur kostn­aðar á þeim haust­mán­uðum þar sem próf­kjör og kosn­ingar hafa farið fram.

Kosið var til Alþingis í apríl 2013. Á fyrri hluta þess árs voru end­ur­greiðslur 5,8 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði eða alls 35 millj­ónir króna yfir hálfs árs tíma­bil.

Til sam­an­burðar var kostn­aður vegna end­ur­greiðslu á sama tíma­bili fyrri hluta árs 2014 23,8 millj­ónir króna, árið 2015 22,8 millj­ónir króna, árið 2016 20,2 millj­ónir króna, árið 2017 17,3 millj­ónir króna og 12,1 milljón króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins í fyrra. Því liggur fyrir að síð­ast þegar kosn­ingar fóru fram að vori til á Íslandi fengu þing­menn 23 millj­ónum krónum meira í end­ur­greiðslu akst­urs­kostn­aðar á fyrri hluta árs en þeir fengu á sama tíma­bili í fyrra. Það þýðir að þing­menn­irnir keyrðu næstum þrisvar sinnum meira, og fengu næstum þrisvar sinnum hærri end­ur­greiðslu af skattfé fyrir akstur sinn, á fyrri hluta árs þegar kosn­ingar voru en þegar slíkar voru ekki.

Sama sagan í haustkosningum

Síð­ustu tvær þing­kosn­ingar hafa farið fram að hausti til, þ.e. í októ­ber 2016 og 2017.

Árið 2013 fengu þing­menn 24 millj­ónir króna í end­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar á síð­ari hluta árs og ári síðar var sú tala afar svip­uð, eða 24,7 millj­ónir króna. Árið 2015 lækk­aði hún í 21,1 milljón króna en 2016, þegar kosn­ingar voru haldn­ar, hækk­aði hún í 24,1 milljón króna, eða um þrjár millj­ónir króna. Það var aukn­ing um 14,2 pró­sent milli árs þar sem kosn­ingar áttu sér ekki stað og árs þar sem slíkar voru haldn­ar.

[adspot]Árið 2017 var svo boðað til kosn­inga með rúm­lega mán­aðar fyr­ir­vara. Flestir flokkar slepptu því að halda próf­kjör fyrir þær kosn­ingar og kosn­inga­bar­áttan var mjög knöpp. End­ur­greiddur kostn­aður þing­manna vegna akst­urs lækk­aði því umtals­vert milli ára og var 17,6 millj­ónir króna.

Athygl­is­vert er þó að bera saman end­ur­greiddan akst­urs­kostnað á seinni hluta árs­ins 2018 og árs­ins á und­an, en á síð­ustu fimm mán­uðum síð­asta árs nam end­ur­greiðslan 11,6 millj­ónum króna. Hlé var gert á þing­fundum 14. des­em­ber, sem er mjög snemmt í öllum sam­an­burði, og því má ætla að kostn­aður vegna rétt­mætra end­ur­greiðslna ætti ein­ungis að eiga við um hálfan þann mán­uð. Ef miðað er við með­al­tal­send­ur­greiðslur fyrstu fimm mán­aða tíma­bils­ins þá má því ætla að heild­ar­end­ur­greiðslu fyrir síð­ari hluta árs 2018 væru um 14 millj­ónir króna. Það þýðir að kostn­aður vegna end­ur­greiðslu dróst saman um 20 pró­sent frá síð­ari hluta kosn­inga­árs­ins 2017 og sama tíma­bils ári síð­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár