Varar við hruni breska heilbrigðiskerfisins

Ef almenn­ingur fer ekki að til­mælum um að halda sig til hlés og fjar­lægð á milli fólks gæti breska heil­brigð­is­kerfið hrunið. Far­ald­ur­inn þar í landi er aðeins 2-3 vikum seinni á ferð­inni en á Ítalíu þar sem dauðs­föll skipta þús­undum.

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, biður fólk að sleppa því að heimsækja ástvini í dag.
Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, biður fólk að sleppa því að heim­sækja ást­vini í dag. Mynd: EPA

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, varar við því að heil­brigð­is­kerfið þar í landi gæti hrunið ef almenn­ingur taki ekki þátt í því að hægja á útbreiðslu COVID-19. Hann hvetur landa sína til að heim­sækja ekki ást­vini sína í dag – á mæðra­deg­inum.

For­sæt­is­ráð­herr­ann biðl­aði til almenn­ings að taka þátt í „hetju­legu og sam­eig­in­legu þjóð­ar­átaki“ og að fylgja til­mælum um félags­forðun (e. social distancing).

Í gær höfðu 233 lát­ist úr COVID-19 í Bret­landi og yfir 5.000 smit verið greind.

Fólk í áhættu­hópum, að minnsta kosti um 1,5 millj­ónir manna, mun nú fá bréf eða texta­skila­boð frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum þar sem því er ráð­lagt að fara ekki út á meðal almenn­ings í tólf vikur.

Í þessum hópi eru líf­færa­þegar, fólk með önd­un­ar­færa­sjúk­dóma og ákveðnar teg­undir krabba­meina.

[links]Boris Johnson ávarp­aði bresku þjóð­ina í gær­kvöldi og sagði að útlitið væri ekki gott og að smitum væri að fjölga.

„Ítalir eru með fram­úr­skar­andi heil­brigð­is­kerfi. En samt hafa læknar og hjúkr­un­ar­fræð­ingar verið ofur­liði borin vegna eft­ir­spurn­ar­innar. Dauðs­föll á Ítalíu er þegar orðin mörg þús­und og verða sífellt fleiri. Ef við bregð­umst ekki í sam­ein­ingu við til að hægja á útbreiðsl­unni þá er lík­legt að okkar sjúkra­hús verði einnig ofur­liði borin.“

Benti hann á að þróun far­ald­urs­ins í Bret­landi væri aðeins um 2-3 vikum á eftir Ítölum. Hann sagði að stjórn­völd hefðu brugð­ist við með aðgerðum sem ekki hefðu áður sést, hvorki á frið­ar­tímum né í stríði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár