Óvíst hvort skýrslan um bankasöluna verði birt fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins

Skýrsla sem átti að koma út í júní, svo júlí, svo ágúst, svo sept­em­ber, svo októ­ber kemur nú út í nóv­em­ber. Ekki liggur fyrir hvort hún verði birt opin­ber­lega fyrir lands­fund Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þar sem for­manns­slagur fer fram.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Ráðuneyti hans ber ábyrgð á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Ráðu­neyti hans ber ábyrgð á eign­ar­hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Mynd: Eyþór Árnason

Guð­mundur Björgvin Helgason rík­is­end­ur­skoð­andi getur ekki svarað af eða á um hvort skýrsla stofn­un­ar­innar um sölu á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka verði birt fyrir kom­andi helgi. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

[links]Verið er að vinna úr umsögnum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og Banka­sýslu rík­is­ins um skýrslu­drögin, en ráðu­neytið fer með eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og fól und­ir­stofnun sinni, Banka­sýsl­unni, að selja umræddan hlut í Íslands­banka. Frestur til að skila inn umsögnum rann út um miðja síð­ustu viku og fyrir liggur að bæði ráðu­neytið og Banka­sýsla rík­is­ins skil­uðu inn umfangs­miklum umsögnum.

Í Morg­un­blað­inu er haft eftir Guðmundi Björg­vini að hann vilji ekki gefa neinn tímara­mma á það hversu lengi það kunni að taka að vinna úr umsögn­unum. „Þetta er umfangs­mikil skýrsla um flókið og umfangs­mikið við­fangs­efni. Umsagn­irnar bera þess merki, sem eðli­legt er.“

Þegar Rík­is­end­ur­skoðun lýkur vinnu sinni mun stofn­unin afhenda for­seta Alþingis, Birgi Ármanns­syni, skýrslu sína. Þaðan fer hún til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar til kynn­ingar og umfjöll­unar og í kjöl­farið verður hún birt opin­ber­lega.

Gæti haft áhrif á formannskjör

Stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar snýst í meg­in­at­riðum um hvort fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, sem stýrt er af Bjarna Bene­dikts­syni for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Banka­sýsla rík­is­ins, und­ir­stofnun þess, hafi staðið til­hlýði­lega að fram­kvæmd söl­unnar á áður­nefndum 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka til 207 fjár­festa í lok­uðu útboði fyrir 52,65 millj­arða króna í mars síð­ast­liðnum.

[adspot]Um liðna helgi til­kynnti Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, að hann muni skora Bjarna á hólm í for­manns­slag í Sjálf­stæð­is­flokknum á lands­fundi sem fram fer um næstu helgi.

Ljóst má vera að skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar gæti gagn­ast öðrum hvorum þeirra í bar­átt­unni um for­manns­sætið verði hún birt fyrir fund­inn. Ef engar eða smá­vægi­legar athuga­semdir eru gerðar við aðkomu Bjarna að söl­unni getur það nýst honum til að sækja atkvæði. Ef athuga­semdir eru miklar eða alvar­legar gæti það nýst Guðlaugi Þór.

Átti að birtast fyrir júnílok

Skýrslan er gerð að beiðni Bjarna en hann bað for­m­­­­lega um gerð hennar 7, apríl síð­­­­ast­lið­inn og Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoðun sam­­­­þykkti að taka að sér verkið í kjöl­far­ið. Það gerð­ist í kjöl­far þess að sölu­­ferlið var harð­­lega gagn­rýnt víða í sam­­fé­lag­inu. Í bréfi ráðu­­­­­neyt­is­ins kom fram að umræða hafi skap­­­­­ast um hvort fram­­­­­kvæmd söl­unnar hafi verið í sam­ræmi við áskilnað laga og upp­­­­­­­­­legg stjórn­­­­­­­­­valda sem borið var undir fjár­­­­­laga­­­­­nefnd og efna­hags- og við­­­­­skipta­­­­­nefnd Alþingis til umsagn­­­­­ar.

Það var gert þrátt fyrir háværar kröfur um að skipuð yrði rann­­sókn­­ar­­nefnd Alþing­is, sem hefur mun víð­tæk­­ari rann­­sókn­­ar­heim­ild­ir, til að fara yfir söl­una. Í könnun Gallup frá því í apríl kom fram að næstum þrír af hverjum fjórum aðspurðum vildi að rann­­sókn­­ar­­nefnd yrði skipuð og taldi að ekki væri nægj­an­­legt að Rík­­is­end­­ur­­skoðun skoð­aði mál­ið. Meiri­hluti kjós­­enda allra flokka utan eins, Sjálf­­stæð­is­­flokks, voru á þeirri skoð­un.

Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoðun ákvað dag­inn eft­ir, þann 8. apr­íl, að verða við beiðn­­­­­i Bjarna.

Í bréfi sem hún sendi til Bjarna vegna þess sagði að „áætlun um afmörkun og fram­­­­­kvæmd úttekt­­­­­ar­innar hefur ekki farið fram en hún mun verða end­­­­­ur­­­­­skoðuð eftir því sem úttekt­inni vindur fram. Í því sam­­­­­bandi er ítrekað að skv. 3. mgr. 1. gr. fram­an­­­­­greindra laga er rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoð­andi sjálf­­­­­stæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlut­verki sínu sam­­­­­kvæmt lög­­­­­un­­­­­um. Stefnt er að því að nið­­­­­ur­­­­­staða úttekt­­­­­ar­innar verði birt í opin­berri skýrslu til Alþingis í jún­­­­í­mán­uði 2022.“

Enginn ríkisendurskoðandi til staðar

Það flækti málin að Alþingi átti eftir að kjósa nýjan rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­anda í stað Skúla Egg­erts Þórð­­­­ar­­­­son­­­­ar, sem ákvað að hætta sem slíkur og verða ráðu­­­­neyt­is­­­­stjóri í nýju við­­­­skipta- og menn­ing­­­­ar­ráðu­­­­neyti. Til stóð að kjósa nýjan rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­anda á þingi fyrir maí­­­­lok.

Því var sú staða uppi að Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoðun var falið að ráð­­­­ast í úttekt á einu umdeildasta þjóð­­­­fé­lags­­­­máli síð­­­­­­­ari ára án þess að búið væri að skipa nýjan rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­anda.

Guð­­­­mundur Björg­vin var starf­andi rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­andi á þessum tíma og einn þeirra tólf sem sótt­­­­ist eftir emb­ætt­in­u.

Það frestað­ist að ganga frá kosn­­­­ingu rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­anda og þann 8. júní hafði Kjarn­inn eftir Guð­­­­mundi Björg­vini að til stæði að skila skýrsl­unni um Íslands­­­­­­­banka­­­­söl­una til Alþingis í síð­­­­­­­ustu viku jún­­­í­mán­að­­­­ar. Dag­inn eft­ir, þann 9. júní, var Guð­­­­mundur Björg­vin kos­inn nýr rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­and­i.

Þegar þing­fundum var frestað 16. júní síð­­­ast­lið­inn var það gert til að þing­­­menn gætu verið í sum­­­­­ar­fríi til 13. sept­­­em­ber, eða í þrjá mán­uði. For­­­seti Alþing­is, Birgir Ármanns­­­son, bað þing­­­menn hins vegar um að vera undir það búna að Alþingi yrði kallað saman til fram­halds­­­funda þegar þing­inu hefur borist skýrsla rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­anda um sölu á hluta­bréfum rík­­­is­ins í Íslands­­­­­banka.

Júlí, ágúst, september, október og loks nóvember

Skýrslu­skilin frest­uð­ust þó fljótt. Þegar fjöl­miðlar spurð­ust fyrir um stöðu mála seinni hluta jún­í­mán­aðar feng­ust þau svör að búist væri við því að skýrslan yrði til­­­búin fyrir lok júlí­mán­að­­ar, fyrir versl­un­­ar­­manna­helg­i.

Þegar leið að versl­un­­ar­­manna­helgi spurð­ist Kjarn­inn fyrir um afdrif skýrsl­unnar og fékk þá þau svör að hún yrði til­­­búin fyrri hluta ágúst­mán­að­­ar.

Seint í ágúst sagði for­­seti Alþing­is svo við RÚV að hann bygg­ist við skýrsl­una um kom­andi mán­aða­mót. Skömmu síðar var greint frá því að skýrslan myndi birt­ast upp úr mán­aða­mót­unum ágúst/sept­em­ber.

Í byrjun sept­em­ber fékk Kjarninn svo þau svör að vinnan væri „á loka­metr­unum“ og að skýrslan myndi ber­ast for­seta Alþingis ein­hvern tím­ann í sept­em­ber.

Það stóðst ekki drög að skýrsl­unni bár­ust ekki þeim sem fengu tæki­færi til að skila inn umsögnum um hana fyrr en 12. októ­ber. Upp­haf­lega áttu ráðu­neytið og Banka­sýslan að fá viku til að vinna umsagnir sínar en Banka­sýslan óskaði eftir rýmri tíma, eða viku í við­bót. Síðustu umsagnir bár­ust því ekki fyrr en 26. októ­ber. Nú blasir við að um sjö mán­uðir munu hafa verið liðnir frá því að Rík­is­end­ur­skoðun sam­þykkti að taka að sér að gera umrædda skýrslu, og skila henni fyrir júní­lok, þar til að skýrslan verður gerð opin­ber.

Yfir 70 prósent treystu ekki Bjarna í apríl

Ástæða þess að Rík­is­end­ur­skoðun var falið að skoða þetta mál er, líkt og áður sagði, mikil gagn­rýni sem kom fram í kjöl­far síð­­asta hluta sölu­­með­­­ferðar á hlutum í Íslands­­­banka.

[adspot] Hóp­­ur­inn sem fékk að kaupa inn­i­hélt meðal ann­­ars starfs­­menn og eig­endur sölu­ráð­gjafa, litla fjár­­­festa sem rök­studdur grunur er um að upp­­­fylli ekki skil­yrði þess að telj­­ast fag­fjár­­­fest­­ar, erlenda skamm­­tíma­­sjóði sem höfðu sýnt það áður í verki að þeir hafi engan áhuga á að vera lang­­tíma­fjár­­­festar í Íslands­­­banka, fólk í virkri lög­­­reglu­rann­­sókn, aðila sem áttu stóra hluti í bönkum fyrir hrun og föður fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Könnun sem Gallup gerði skömmu eftir að salan var um garð gengin sýnd­i að 87,2 pró­­­sent lands­­­manna töldu að staðið hafi verið illa að útboði og sölu á hlut rík­­­is­ins í Íslands­­­­­banka, næstum sjö af hverjum tíu töldu að lög hefðu verið brotin og næstum níu af hverjum tíu töldu að óeðli­­legir við­­skipta­hættir hefðu verið við­hafð­­ir. Málið hafði aug­ljós­lega áhrif á stöðu Bjarna í huga lands­manna. Í könnun sem Maskína gerði í apríl kom fram að hann naut ein­ungis trausts 18,3 pró­sent kjós­enda en 70,7 pró­sent sögð­ust van­treysta hon­um. Engum öðrum ráð­herra var van­treyst jafn mikið og ein­ungis Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra var treyst af færri, eða 17,8 pró­sent svar­enda.

Kjarn­inn greindi frá því fyrr í októ­ber að ekki hafi verið tekin ákvörðun um áfram­hald­andi sölu eign­­­ar­hluta rík­­­is­ins í Íslands­­­­­banka. Yfir­­­lýs­ing for­­­manna stjórn­­­­­ar­­­flokk­anna þriggja frá 19. apríl, þar sem segir að ekki verði ráð­ist í sölu á frek­­­ari hlutum í Íslands­­­­­banka að sinni, stendur því enn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár