Gyldendal í vanda

Það er ekki allt í lukk­unnar vel­standi hjá hinu gam­al­gróna danska bóka­for­lagi Gyld­en­dal. Fjöl­margir þekktir höf­undar hafa yfir­gefið for­lagið á síð­ustu árum og útgáfan dreg­ist saman. For­stjór­inn hefur verið rek­inn.

Árið 1787 keypti Søren Gyldendal hús við Klareboderne í Kaupmannahöfn og þar er forlagið Gyldendal enn til húsa.
Árið 1787 keypti Søren Gyld­en­dal hús við Klareboderne í Kaup­manna­höfn og þar er for­lagið Gyld­en­dal enn til húsa. Mynd: Orf3us

Síð­ast­lið­inn fimmtu­dag, 25. ágúst, var haldin hin árlega haust­mót­taka hjá bóka­for­lag­inu Gyld­en­dal í húsa­kynnum for­lags­ins í mið­borg Kaup­manna­hafnar. Löng hefð er fyrir þessum við­burði hjá for­lag­inu og þangað er boðið, auk starfs­fólks for­lags­ins, höf­undum, gagn­rýnendum og ýmsum öðrum sem tengj­ast útgáf­unni með einum eða öðrum hætti.
Skömmu áður en mót­takan hófst hafði dönsku kaup­höll­inni, Børsen, verið til­kynnt að fram­kvæmda­stjóri for­lags­ins, Morten Hesseldahl myndi hætta störfum 1. sept­em­ber. Gest­irnir sem mættir voru í teitið höfðu því nóg um að tala. Morten Hesseldahl tók við fram­kvæmda­stjóra­starf­inu árið 2018.

Elsta starfandi bókaforlag Danmerkur

Gyld­en­dal á sér langa sögu, stofnað árið 1770. Stofn­and­inn Søren Gyld­en­dal leit­aði ekki langt yfir skammt eftir nafn­inu á fyr­ir­tæk­inu, en á þessum tíma var algengt að fyr­ir­tæki bæru nafn stofn­and­ans. Søren Gyld­en­dal var fæddur á Jótlandi árið 1742, skírn­ar­nafnið var Søren Jensen. Faðir hans hafði tekið sér nafnið Gyld­en­dal og þegar Søren stofn­aði útgáfu­fyr­ir­tæki sitt ákvað hann að það skyldi heita Gyld­endalske Bog­handel. Það nafn bar fyr­ir­tækið allt til árs­ins 2010, en var þá breytt í Gyld­en­dal, enda hafði fyr­ir­tækið alla tíð gengið undir því nafni.

Að loknu prófi frá Lat­ínu­skól­anum í Álaborg flutti Søren til Kaup­manna­hafnar og lauk prófi í sál­fræði frá Hafn­ar­há­skóla árið 1767. Hann fékk ungur áhuga fyrir bókum og við­skiptum og fæstum sem til þekktu kom á óvart að hann skyldi hasla sér völl sem bóka­út­gef­andi. Árið 1787 keypti Søren Gyld­en­dal hús við Klareboderne í Kaup­manna­höfn og þar er for­lagið Gyld­en­dal enn til húsa. Søren Gyld­en­dal lést árið 1802 en þá hafði hann gert Gyld­en­dal að stór­veldi í danskri bóka­út­gáfu. Þann sess hefur fyr­ir­tækið lengst af skipað.

Hver var galdurinn?

Þessa spurn­ingu lagði danskur blaða­maður fyrir rit­höf­und­inn Klaus Rifbjerg sem um sjö ára skeið var útgáfu­stjóri Gyld­en­dal. Klaus Rifbjerg svar­aði því til að að Gyld­en­dal for­lagið hefði lagt áherslu á fjöl­breytta útgáfu: skáld­sögur, ævi­sögur, fræði­rit, orða­bækur, kennslu­bækur og fleira og fleira. „Eitthvað fyrir alla“ sagði Klaus Rifbjerg. Hann nefndi einnig að Gyld­en­dal hefði tek­ist að skapa sér sess sem útgef­and­inn sem allir höf­undar sótt­ust eftir að fá útgáfu­samn­ing við. „Gyld­en­dal var gæða­stimp­ill“ sagði Klaus Rifbjerg. Dönsk bóka­út­gáfa hefur ætíð verið áhættu­söm, margir hafa fetað þann veg, í upp­hafi með bjart­sýn­ina að leið­ar­ljósi. Gyld­en­dal, í krafti sterkrar stöðu sinnar, keypti mörg slík fyr­ir­tæki og rak þau ýmist áfram undir upp­runa­legu heiti sem dótt­ur­fé­lög, eða sam­ein­aði þau Gyld­en­dal.

Vinsælir höfundar hafa leitað annað

Á allra síð­ustu árum hefur hallað undan fæti hjá Gyld­en­dal. Margir þekktir höf­undar hafa leitað til ann­arra útgef­enda, það á einkum við hina svo­nefndu glæpa­sagna­höf­unda, krimi­for­fatt­ere. Á sama tíma hafa mörg önnur bóka­for­lög sótt mjög í sig veðrið á þessum mark­aði, þar má til dæmis nefna Lind­hardt & Ringhof og Politi­kens for­lag. Glæpa­sögur njóta mik­illa vin­sælda meðal danskra les­enda, og nær alltaf efstar á svoköll­uðum bestseller listum. Sú stað­reynd að Gyld­en­dal hefur mátt sjá á bak mörgum vin­sælum höf­undum kemur fram í sölu- og afkomu­tölum útgáf­unnar. Í áður­nefndri til­kynn­ingu Gyld­en­dal til kaup­hall­ar­innar kom fram að fyrri áætl­anir um hagnað og veltu myndu ekki stand­ast. Í ávarpi sínu við upp­haf haust­fagn­að­ar­ins sl. fimmtu­dag sagði Poul Erik Tøjner stjórn­ar­for­maður nauð­syn­legt að bregð­ast við og upp­sögn Morten Hesseldahl væri liður í því að skipta um kúrs, eins og stjórn­ar­for­mað­ur­inn komst að orði.

Bakari fyrir smið

Ekki eru allir jafn vissir um að Morten Hesseldahl sé um að kenna hvernig staðan hjá Gyld­en­dal er. Lars Ole Kornum, sem er einn stærsti ein­staki hlut­hafi í fyr­ir­tæk­inu segir það mikla ein­földun að skella skuld­inni á Morten Hesseldahl. Lars Ole Kornum, sem er umsvifa­mik­ill í dönsku við­skipta­lífi sagði nýlega í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske að frá því að Poul Erik Tøjner (sem er fram­kvæmda­stjóri lista­safns­ins Louisiana) tók við stjórn­ar­for­mennsk­unni árið 2011 hefði leiðin því miður legið niður á við. Lars Ole Kornum sagði nauð­syn­legt að skipta um stjórn­ar­for­mann hjá Gyld­en­dal, en tók fram að hann sækt­ist ekki eftir starf­inu. Gagnrýni Lars Ole Kornum á stjórn­ar­for­mann­inn er ekki ný af nál­inni. Hann hefur áður margoft gagn­rýnt stefnu Poul Erik Tøjner og stjórn­ar­innar. Á síð­ustu árum, áður en Morten Hesseldahl varð fram­kvæmda­stjóri, hafi áhersla stjórnar Gyld­en­dal verið á svo­kall­aðar fínni bók­menntir (orða­lag Lars Ole Kornum) en minni á afþrey­ing­ar­bók­menntir, sem gefa mestu tekj­urnar. Á síð­asta ári sendi Gyld­en­dal frá sér 350 bækur en fyrir nokkrum árum voru bæk­urnar um það bil 750 sem út komu á ári hverju. Morten Hesseldahl vildi leggja aukna áherslu á útgáfu afþrey­ing­ar­bók­mennta en svo virð­ist sem margir danskir rit­höf­undar sem skrifa slíkar bækur hafi ekki haft trú á að það gengi eftir og hafa þess vegna leitað til ann­arra útgef­enda.

Of seinir að mæta breyttum aðstæðum

Þegar Morten Hesseldahl hóf störf hjá Gyld­en­dal lýsti hann því yfir að undir sinni stjórn yrði áhersla lögð á að mæta nýjum veru­leika, eins og hann komst að orði. Gyld­en­dal hefði verið alltof lengi að bregð­ast við breyt­ingum á mark­aðnum, hljóð­bókum og net­út­gáfu. Árið 2020 stofn­aði Gyld­en­dal, ásamt fleiri útgef­endum, net- og hljóð­bóka­fyr­ir­tækið Chapter. Þegar fyr­ir­tækið hafði starfað í eitt ár drógu sam­starfs­fyr­ir­tæki Gyld­en­dal sig út úr rekstr­inum. Það kostar mikið fé að koma net- og hljóð­bóka­fyr­ir­tæki á lagg­irnar og Chapter hefur enn sem komið er verið rekið með tapi. Chapter var hug­ar­fóstur Morten Hesseldahl en stjórnin deildi ekki skoð­unum hans varð­andi fyr­ir­tækið. Í áður­nefndri til­kynn­ingu til kaup­hall­ar­innar kom fram að Gyld­en­dal myndi nú leggja meg­in­á­herslu á kjarna­starf­semi, án þess að það væri útskýrt nánar. Í áður­nefndu við­tali við Berl­ingske sagði Lars Ole Kornum að Morten Hesseldahl hefði ætlað sér of mikið, hann hefði haft ákveðnar skoð­anir á hvað þyrfti að gera en „haft fleiri bolta á lofti en fyr­ir­tækið réði við“.

Gyldendal ekki á leið í gröfina

Danskir fjöl­miðlar hafa fjallað tals­vert um Gylendal og stöðu fyr­ir­tæk­is­ins síðan frétt­irnar af upp­sögn Morten Hesseldahl bár­ust. Allir virð­ast á einu máli um að Gyld­en­dal sé ekki að kom­ast í þrot. Fyr­ir­tækið sé mjög stórt og öfl­ugt og geti staðið af sér tíma­bundna erf­ið­leika. Það sem við blasi sé að rétta kúr­s­inn og það sé ærið verk­efni. Hanne Sal­omon­sen tekur tíma­bundið við sem fram­kvæmda­stjóri Gyld­en­dal. Hún hefur um ára­bil verið yfir­maður þeirrar deildar Gyld­en­dal sem ann­ast útgáfu náms­efnis

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár