Einfætti maðurinn og gæsluvarðhaldið

Það er ekki dag­legt brauð að maður grun­aður um að und­ir­búa sjó­rán sé leiddur fyrir dóm­ara í Kaup­manna­höfn. Slíkt gerð­ist þó sl. föstu­dag. Maðurinn var hand­tek­inn eftir skot­bar­daga á Gíneuflóa en situr nú í gæslu­varð­haldi.

Danska freigátan Esbern Snare.
Danska frei­gátan Esbern Snare. Mynd: Wikicommons

Saga þessa máls hófst 24. nóv­em­ber sl. Þann dag var danska frei­gátan Esbern Snare á sigl­ingu á Gíneuflóa. Frei­gátan hafði verið send þangað til að ann­ast gæslu á þess­ari fjöl­förnu sigl­inga­leið sem hund­ruð skipa fara dag­lega, þar á meðal 30 – 40 sem sigla undir dönskum fána.

Þegar komið var undir kvöld áður­nefndan dag fékk áhöfnin á Esbern Snare veður af því að grun­sam­legur bátur væri á ferð ekki langt undan. Þyrla frei­gát­unnar var send á loft og kom fljót­lega auga á bát­inn. Um borð sáust átta eða níu menn og ýmis konar bún­aður sem áhöfn þyrl­unnar lýsti sem „verk­færa­kassa“ sjó­ræn­ingja, vopn, stiga, kaðla og fleira slíkt. Gegnum tal­stöð sendi áhöfn þyrl­unnar skipun til báts­verja að stansa þegar í stað. Báts­verjar sinntu því engu (síðar kom í ljós að þeir höfðu enga tal­stöð) og þá skaut þyrlu­á­höfnin á einn utan­borðs­mótor báts­ins og eyði­lagði hann.

Hrað­skreiður gúmmí­bátur með sér­þjálf­aða frosk­menn inn­an­borðs var þá lagður af stað í átt­ina að ókunna bátnum. Þegar bát­ur­inn frá frei­gát­unni nálg­að­ist ókunna bát­inn kall­aði yfir­maður frosk­mann­anna gegnum gjall­ar­horn. Þegar ekki barst svar var skotið við­vör­un­ar­skotum, sem svarað var með skot­hríð frá ókunna bátnum. Eftir stuttan skot­bar­daga gáfust menn­irnir á ókunna bátnum upp. Þá voru þrír lif­andi um borð ásamt fjórum sem fallið höfðu í bar­dag­anum, einn til við­bótar var á sundi í sjónum.

[adspot]Sá hafði særst illa á fæti eftir að hann kastaði sér fyrir borð, lík­lega lent með fót­inn ískrúf­una. Þegar mað­ur­inn var kom­inn um borð í bát frei­gát­unnar sást strax að hann hafði slasast alvar­lega á öðrum fæt­inum. Menn­irnir fjórir af ókunna bátnum ásamt lík­unum fjórum voru svo fluttir um borð í Esbern Snare. Líkunum var komið í kæli-eða frysti­geymslu, þrír voru settir í sér­staka fanga­klefa um borð en sá slas­aði fluttur í sjúkra­stofu frei­gát­unnar, þar sem læknar urðu að fjar­lægja annan fót hans. Í einu og öllu var reynt að fylgja alþjóða­lögum, sem Danmörk hefur skuld­bundið sig til að hlíta, um með­ferð fanga. Daginn eftir hand­tök­una voru fjór­menn­ing­arnir, í Bæj­ar­rétti Kaup­manna­hafnar, úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald, in absentia eins og það heitir.

Babb í bátinn

Margar þjóðir hafa gert sér­stakt sam­komu­lag við lönd sem liggja að Gíneuflóa um að taka við sínum rík­is­borg­urum hafi þeir verið hand­teknir utan lög­sögu við­kom­andi ríkis á fló­anum. Ein­hverra hluta vegna höfðu dönsk stjórn­völd ekki gert neinn slíkan samn­ing áður en Esben Snare var sendur.

Eftir nokk­urra daga japl, jaml og fuður, var ákveðið að Esbern Snare héldi til hafnar í Gana, þar sem slas­aði mað­ur­inn færi á sjúkra­hús. Yfirvöld í Gana tóku hins vegar skýrt fram í samn­ingum að mað­ur­inn yrði ekki þar í landi til fram­búðar, og hinir fang­arnir þrír og líkin fjögur yrðu áfram um borð í frei­gát­unni.

Klúður

Danskir þing­menn gagn­rýndu varn­ar­mála­ráðu­neytið fyrir að hafa ekki gengið frá samn­ingum við lönd í nágrenni Gíneuflóa um að taka við mönnum sem hugs­an­lega yrðu hand­teknir á hafi úti. Varn­ar­mála­ráðu­neytið svar­aði því til að þetta til­tekna atvik á Gíneuflóa væri óvenju­legt og aldrei hefði staðið til að áhöfnin á Esbern Snare hand­tæki sjó­ræn­ingja, eða, eins og í þessu til­viki, menn sem und­ir­byggju sjó­rán.

Snúið mál

Í upp­hafi var ekki vitað af hvaða þjóð­erni átt­menn­ing­arnir væru. Danskir blaða­menn töldu sig fljót­lega vita að þeir væru frá Nígeríu. Sem síðar kom í ljós að var rétt. Sökum þess að milli Nígeríu og Dan­merkur var eng­inn samn­ingur um afhend­ingu fanga var málið snúið. Danir vildu í lengstu lög forð­ast að rétta yfir mönn­unum í Danmörku og í umfjöllun um málið í fjöl­miðlum kom fram að sjó­ræn­ingjar sem Hol­lend­ingar höfðu hand­tekið og réttað yfir í Hollandi höfðu sótt um hæli þar í landi, og fengið. Hol­lend­ingar sitja uppi með þessa menn eins og danskur lög­fræð­ingur komst að orði. Danir kæra sig ekki um að slíkt ger­ist í Danmörku.

En væri þá ekki ein­fald­ast að senda menn­ina í land í Nígeríu? Málið er hins­vegar ekki svona ein­falt. Dönsk stjórn­völd yrðu, í sam­ræmi við mann­rétt­inda­sátt­mála, fyrst að fá full­vissu fyrir því að fang­arnir fengju rétt­láta máls­með­ferð, myndu ekki sæta pynt­ingum eða yrðu jafn­vel teknir af lífi. Danski varn­ar­mála­ráð­herr­ann og emb­ætt­is­menn ráðu­neyt­is­ins klór­uðu sér í koll­inum dögum og vikum saman en á meðan biðu fang­arnir þrír, og líkin fjögur, um borð í Esbern Snare á Gíneuflóa. Fanginn sem misst hafði fót­inn dvaldi enn um sinn á sjúkra­húsi í Gana.

Þrír settir um borð í bát

Í lið­inni viku dró til tíð­inda í mál­efnum fang­anna. Þre­menn­ing­arnir sem höfðu verið um borð í Esbern Snare voru settir um borð í lít­inn bát, sem til­heyrði frei­gát­unni, skammt frá landi, utan lög­sögu Nígeríu. Báturinn var búinn litlum utan­borðs­mótor og nægi­legu elds­neyti til að sigla til lands og enn­fremur var matur og vatn um borð. Áhöfnin á Esbern Snare fylgd­ist með bátnum þangað til hann var kom­inn upp undir land, við ósa Níger­fljóts. Danski dóms­mála­ráð­herr­ann lagði áherslu á að fallið hefði verið frá ákæru en menn­irnir hefðu ekki verið náð­aðir. Til­gang­ur­inn með að falla frá ákærunni væri að menn­irnir kæmu ekki til Dan­merkur.

Einfætti maðurinn til Kaupmannahafnar

Sama dag og Níger­íu­menn­irnir þrír voru settir um borð í bát úti fyrir strönd Nígeríu var félagi þeirra, sá sem missti fót­inn, fluttur með flugi til Kaup­manna­hafnar. Ástæða þess að mað­ur­inn er þangað kom­inn er sú að hann er illa hald­inn eftir fóta­miss­inn, verður að vera á sjúkra­húsi og yfir­völd í Gana neit­uðu honum um dvöl þar, meðal ann­ars vegna þess að hann er fangi Dana.

Gæsluvarðhaldskrafa

Daginn eftir kom­una til Dan­merkur var Níger­íu­mað­ur­inn leiddur fyrir dóm­ara í Bæj­ar­rétti Kaup­manna­hafnar. Ákæru­valdið krafð­ist þess að mað­ur­inn yrði úrskurð­aður í gæslu­varð­hald meðan réttað verður í máli hans. Verði hann sekur fund­inn getur dóm­ur­inn hljóðað upp á fimm ára fang­elsi hið minnsta en mest allt að lífs­tíð.

Maðurinn hefur ekki verið nafn­greindur en hann er 39 ára og frá Nígeríu. Hann neit­aði sök en skýrði í dóm­salnum frá atburða­rásinni.

[adspot]Maðurinn sagði að vinur sinn hefði hringt í sig og sagt að sig vant­aði mann en sá sem hringdi og nokkrir aðrir hefðu verið beðnir um að lóðsa tank­skip að ströndum Nígeríu. Borgað yrði fyrir vinn­una og þess vegna sagð­ist mað­ur­inn hafa tekið þetta að sér. Hann sagð­ist hafa þekkt nokkra þeirra sem fóru í ferð­ina, en sér hefði komið á óvart að sjá þrjár byssur og stiga um borð í bátnum sem not­aður var í ferð­ina.

[links]Hann sagði jafn­framt frá því að níu menn hefðu verið um borð þegar lagt var af stað en níundi mað­ur­inn hefði fallið, eða stokkið, fyrir borð þegar áhöfn þyrl­unnar skaut við­vör­un­ar­skotum. Við vorum ekki með neina tal­stöð og heyrðum þess vegna ekk­ert í áhöfn þyrl­unnar en þegar byrjað var að skjóta á bát­inn hróp­aði einn „þeir ætla að drepa okkur“ og þá svör­uðu félagar mínir með skot­hríð. „Ég kann ekk­ert með byssu að að fara. Allt gerð­ist mjög hratt og skömmu síðar var hrað­bát­ur­inn frá frei­gát­unni kom­inn á stað­inn og þá var skipst á skotum og bát­ur­inn okkar byrj­aði að sökkva. Ég stökk fyrir borð en lenti með fót­inn í skrúf­unni. Ég hróp­aði á hjálp og menn­irnir frá frei­gát­unni björg­uðu mér. Svo man ég ekk­ert fyrr en ég vakn­aði um borð í frei­gát­unni og átt­aði mig á því að búið var að taka af mér annan fót­inn.“

Þegar dóm­ari spurði hvers vegna hann hefði tekið þátt í þess­ari ferð svar­aði mað­ur­inn að hann væri fyr­ir­vinna tveggja barna sinna, 12 og 16 ára, hann hefði enga fasta vinnu og maður yrði að taka því sem byð­ist eins og hann komst að orði. Börnin tvö dvelja nú hjá móður manns­ins í Nígeríu. Þess má geta að hann tal­aði ensku í dóm­salnum.

Verjandinn ósáttur en gæsluvarðhald úrskurðað til 1. febrúar

Birgitte Skjødt, verj­andi manns­ins, krafð­ist þess að skjól­stæð­ingur sinn yrði lát­inn laus. Hann hefði ekki hleypt af skotum og stokkið fyrir borð þegar skot­hríðin byrj­aði. „Félögum hans þremur sem verið hafa fangar um borð í Esbern Snare hefur nú verið sleppt, þetta er klár­lega mis­munun“ sagði Birgitte Skjødt.

Dómarinn féllst á að málið væri í alla staði mjög óvenju­legt „en okkur hér ber að fylgja dönskum lögum“. Nefndi svo að sú stað­reynd að fallið hefur verið frá ákæru á hendur þremur félögum manns­ins gæti hugs­an­lega haft áhrif á fram­hald máls­ins. Stað­festi síðan gæslu­varð­halds­úr­skurð­inn, sem gildir til 1. febr­úar næst­kom­andi.

Loks má nefna að lík þeirra fjög­urra manna sem féllu í átök­unum við áhöfn Esbern Snare eru enn um borð í frei­gát­unni. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá danska flot­anum hafa ekki verið teknar nán­ari ákvarð­anir um hvað gert verður við líkin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár