Líkin í lestinni og fangarnir fjórir

Í tíu daga hefur dönsk frei­gáta lónað skammt undan landi á Gíneuflóa. Áhöfnin bíður fyr­ir­mæla danskra stjórn­valda um hvað gera skuli við óvenju­lega fragt um borð í skip­inu: fjögur lík og fjóra fanga.

Þegar turn­klukka kirkj­unnar í Frederiks­havn á Norður- Jótlandi sló tólf á hádegi 24. októ­ber síð­ast­lið­inn leysti áhöfnin á frei­gát­unni Esbern Snare land­festar. Skipið var að leggja í lang­ferð, fimm mán­aða úthald fjarri ætt­jörð­inni. Áhöfnin, 175 manns, vissi að mán­uð­irnir framundan yrðu ekki nein skemmti­ferð, ferð­inni var heitið til Gíneuflóa.

Mikilvæg en hættuleg siglingaleið

Gíneu­fló­inn er gríð­ar­mik­ill flói undan vest­ur­strönd Afríku, um það bil 2.350.000 fer­kíló­metrar, jafn­gildir rétt tæp­lega 23 sinnum stærð Íslands.

Gíneu­flói er mik­il­væg sigl­inga­leið en dag­lega fara þar um hund­ruð skipa. Flóinn er jafn­framt tal­inn ein hættu­leg­asta sigl­inga­leið í heimi. Það er þó hvorki veð­ur­far né blind­sker sem ógna sæfar­endum, heldur sjó­ræn­ingjar.

Á síð­asta ári voru skráð 130 sjó­rán í Gíneuflóa, það eru um það bil 95% allra sjó­rána í heim­inum það ár. Þar við bæt­ast fjöl­margar til­raunir sjó­ræn­ingja til að ráð­ast á skip en ekki haft árangur sem erf­iði. Tjón vegna sjó­rána er talið nema jafn­gildi hund­ruðum millj­arða króna árlega.

Það var á þessar slóðir sem för Esbern Snare var heitið þegar haldið var úr höfn 24. októ­ber. Um borð voru, auk hinnar venju­legu áhafnar, sér­þjálfaðir frosk­menn, og enn­fremur Seahawk þyrla.

Af hverju dönsk freigáta?

Danir eru í fimmta sæti þeirra þjóða sem gera út flest fragt­skip, í dag sigla um það bil 800 undir dönskum fána.

Daglega fara 30 – 40 dönsk skip um Gíneufló­ann. Á síð­asta ári urðu nokkur dönsk skip fyrir barð­inu á sjó­ræn­ingjum, en áhafn­irnar sluppu í öll skiptin heilar á húfi.

Danski flot­inn hafði áður tekið þátt í gæslu á haf­svæð­inu við aust­ur­strönd Afríku, á Adenflóa, og áhöfn Esbern Snare vissi vel við hverju mætti búast.

Ákvörð­unin um að senda danska frei­gátu til Gíneuflóa var til­kynnt á frétta­manna­fundi 16. mars sl. Þá til­kynntu Trine Bramsen varn­ar­mála­ráð­herra og Jeppe Kofod utan­rík­is­ráð­herra að rík­is­stjórnin hefði ákveðið að með haustinu yrði sent eitt her­skip til eft­ir­lits á þessu erf­iða og hættu­lega haf­svæði, eins og ráð­herr­arnir komust að orði.

Í við­tali við danska öryggis- og varn­ar­mála­tíma­ritið OLFI lýsti Maria Skipper Schwenn, örygg­is­mála­stjóri Samtaka dönsku skipa­út­gerð­anna, ánægju með ákvörðun dönsku rík­is­stjórn­ar­innar. Hún sagði að sjó­ræn­ingjar færi sig stöðugt upp á skaftið, þeir séu betur vopnum búnir, hafi betur búna báta til umráða og verði sífellt ill­skeytt­ari. Allt valdi þetta áhyggjum og ótta skips­hafna, fyrir utan þann kostnað sem fylgi þegar skip kom­ast ekki leiðar sinnar dögum og jafn­vel vikum saman.

Flóknara verkefni

Á áður­nefndum frétta­manna­fundi kom fram að eft­ir­lit á Gíneuflóa væri flókn­ara en á Adenflóa. Á síð­ar­nefnda svæð­inu væri fyrst og fremst gegn­um­streym­is­um­ferð skipa sem hefðu ekki við­komu í höfnum á svæð­inu. Umferðin á Gíneuflóa væri meira þvers og kruss, eins og full­trúi sam­taka skipa­út­gerð­anna komst að orði. Jeppe Kofod utan­rík­is­ráð­herra minnt­ist sömu­leiðis á að land­helgi landa sem liggja að Gíneuflóa, 12 mílur, setji bar­átt­unni við sjó­ræn­ingja vissar skorður. Danskt her­skip hafi ekki leyfi til að ráð­ast gegn, eða hand­taka fólk, í þessu til­viki sjó­ræn­ingja, innan 12 mílna land­helgi ann­arra landa.

Frétta­menn spurðu ráð­herrana um kostn­að­ar­hlið verk­efnis sem þessa. Svörin voru þau að verk­efni af þessu tagi kosti mikið og í varnar- og örygg­is­málum sé í mörg horn að líta. Varn­ar­mála­ráð­herr­ann sagði að flot­inn hefði ekki bol­magn til að halda úti mörgum skipum við eft­ir­lit og örygg­is­gæslu miss­erum og jafn­vel árum saman. Fjármagn til þessa til­tekna verk­efnis, sem stæði í fimm mán­uði væri tryggt.

24. nóvember

Sigling Esbern Snare suður til Gíneuflóa gekk vel og fátt bar til tíð­inda. Það breytt­ist hins vegar 24. nóv­em­ber, réttum mán­uði eftir að lagt var upp frá Danmörku. Þann dag fékk áhöfnin á Esbern Snare veður af því að ekki langt frá væri bátur á sigl­ingu. Þyrlan var send á loft og áhöfnin kom strax auga á umræddan bát. Um borð sáust átta menn og ýmiss konar bún­aður sem til­heyra „verk­færa­kassa“ sjó­ræn­ingja, t.d. stigar. Hrað­skreiður gúmmí­bátur, með sér­þjálf­uðu frosk­menn­ina var sendur áleiðis. Þegar gúmmí­bát­ur­inn var kom­inn í kall­færi við ókunna bát­inn kall­aði yfir­maður frosk­mann­anna gegnum gjall­ar­horn til áhafnar ókunna báts­ins. Þegar ekk­ert svar barst skaut áhöfn gúmmí­báts­ins við­vör­un­ar­skotum upp í loftið. Því var svarað með skot­hríð frá ókunna bátnum. Eftir stuttan skot­bar­daga, þar sem fjórir úr áhöfn ókunna báts­ins lágu í valnum og sá fimmti sár, gáfust menn­irnir á ókunna bátnum upp, en bátur þeirra sökk í hafið. Lík hinna föllnu og þeir fjórir sem eftir lifðu voru fluttir um borð í Esbern Snare.

Allt eftir bókinni

Líkunum var komið fyrir í sér­stökum kæli- eða frysti­geymslum en föng­unum fjórum í sér­stökum „fanga­klefum“ um borð. Um með­ferð fang­anna og hinna látnu er fylgt alþjóða­lögum, sem Danmörk hefur skuld­bundið sig til að hlíta. Ef fang­arnir hafa sér­stakar mat­ar­venjur, eða vilja halda sér­stakar bæna­stundir og fleira í þeim dúr ber Dönunum að virða allt slíkt.

Í við­tali við dag­blaðið Politi­ken sagði Kristina Maria Siig háskóla­pró­fessor að sam­kvæmt haf­rétt­ar­lögum hefðu Danirnir verið í fullum rétti, ókunni bát­ur­inn hefði verið utan við 12 mílur og áhöfn hans hefði átt upp­tökin að átök­unum. Þar að auki hefði danska þingið, Fol­ket­inget, veitt áhöfn­inni á Esbern Snare leyfi til að beita valdi, í sjálfs­vörn, og ef ráð­ist yrði á dönsk skip.

25. nóv­em­ber, dag­inn eftir hand­töku þeirra fjög­urra sem lifðu af bar­dag­ann við Danina, voru þeir úrskurð­aðir í 13 daga gæslu­varð­hald, í Bæj­ar­rétti Kaup­manna­hafnar.

Vilja ekki rétta yfir mönnunum í Danmörku

Ekki hefur verið upp­lýst um þjóð­erni átt­menn­ing­anna sem voru um borð í ókunna bátnum. Einungis sagt að þeir væru afrískir. Dönsk stjórn­völd vilja gjarna losna við að rétta yfir föng­unum. Enn sem komið er hefur ekk­ert ríki í Afríku lýst sig reiðu­búið til að taka við föng­unum. Dönsk stjórn­völd eiga hins vegar í við­ræðum við „nokkur ríki“ eins það var orðað í svari við spurn­ingum blaða­manns. Ekki feng­ust nákvæm­ari svör um hvaða ríki það væru.

Engir samningar

Danskir blaða­menn telja sig vita að dönsk stjórn­völd hafi verið í sam­bandi við stjórn­völd í Nígeríu varð­andi fang­ana.

En málið er ekki svo ein­falt að Danir geti, bara sisvona, afhent yfir­völdum í við­kom­andi landi fang­ana. Fyrst verða dönsk stjórn­völd að full­vissa sig um að fang­arnir fengju rétt­láta máls­með­ferð, myndu ekki sæta pynt­ingum í heima­land­inu, og ekki hljóta dauða­dóm.

Lög­fræð­ing­ur­inn Rasmus Sølberg, sér­fræð­ingur í sjó- og alþjóða­rétti sagði að dönsk stjórn­völd séu í vanda stödd varð­andi fang­ana. Engir samn­ingar hafi verið gerðir við ríki sem liggi að Gíneuflóa varð­andi hugs­an­lega fanga. Danir vilji kom­ast hjá að rétta yfir föng­unum í Danmörku. Hann benti á að Hol­lend­ingar hefðu fyrir nokkru hand­tekið sjó­ræn­ingja á Gíneuflóa og réttað yfir þeim í Hollandi. Það mál end­aði þannig að sjó­ræn­ingj­arnir sóttu um, og fengu, hæli í Hollandi. „Dönsk stjórn­völd kæra sig lítt um slíka jóla­gjöf,“ sagði Rasmus Sølberg.

Eins og nefnt var í upp­hafi þessa pistils lónar Esbern Snare nokkuð frá landi á Gíneuflóa, utan 12 mílna land­helgi. Svar upp­lýs­inga­þjón­ustu flot­ans við spurn­ingu blaða­manns um hve lengi fang­arnir og líkin verði um borð í Esbern Snare var stutt og laggott „þangað til lausn er fundin“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár