Ásmundur faldi færslu um ljósmæður: „Ég tala ekki við ykkur“

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, faldi færslu af Facebook þar sem hann gagn­rýndi kjara­bar­áttu ljós­mæðra. Færslan fékk mikla gagn­rýni. Ásmundur neit­aði að ræða við Stundina um málið.

Ásmundur Friðriksson
Ásmundur Frið­riks­son Ásmundur eyddi út færslu um „ljót­leika kjara­bar­átt­unnar“ hjá ljós­mæðrum. Mynd: Morgunblaðið/Eggert

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, faldi færslu af Facebook tíma­línu sinni þar sem hann gagn­rýndi kjara­bar­áttu ljós­mæðra. „Ljót­leiki kjara­bar­átt­unnar á sér engin tak­mörk,“ skrif­aði Ásmundur og birti mynd af for­síðu Frétta­blaðs­ins í dag.

Á for­síð­unni er mynd frá und­ir­bún­ingi sam­stöðu­fundar með ljós­mæðrum þar sem ólétt kona býr til mót­mæla­skilti. Á skilt­inu stendur „Helvítis fokk­ing fæð­ingar.“

Þegar blaða­maður náði í Ásmund neit­aði hann að ræða við Stundina. „Nei ég tala ekki við ykkur. Gangi þér vel, bless.“

„Ásmundur hinna mörgu kílómetra“

Fjöldi fólks hafði skrifað athuga­semdir við færslu Ásmundar eða deilt henni með gagn­rýnum skila­boðum. „Ljót­leiki sjálftök­unnar á sér engin tak­mörk!“ skrifar Ingimar Karl Helgason, sam­skipta­stjóri Öryrkja­banda­lags Íslands.

Annar sem deilir færsl­unni er Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. „Kæri Ásmundur hinna mörgu kíló­metra og laun­aðra nefnd­ar­starfa sem þú mætir ekki í af því að þú sinnir öðrum störfum á meðan,“ skrifar Björn Leví. „Þú sem talar fyrir bættum kjörum eldri borg­ara en greiðir atkvæði gegn þeim. Takk fyrir að vera þú og sýna svo skýrt og greini­lega hvað er að í íslenskum stjórn­málum. Vona að þér vegni vel í fram­tíð­inni, bara á ein­hverjum öðrum vett­vangi. /passive agressive“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár