Fyrst af þeim sem fæðst hafa á 21. öldinni til að taka sæti á Alþingi

Gunn­hildur Fríða Hall­gríms­dóttir varð í dag yngst til að taka sæti á þingi, er hún kom inn sem vara­þing­maður fyrir hönd Pírata. Hún er fædd árið 2002 og er fyrsta mann­eskjan sem fædd er eftir alda­mót til að taka sæti á Alþingi.

Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir er fædd árið 2002. Hún varð í dag yngst til að taka sæti á Alþingi, 19 ára og 240 daga gömul.
Gunn­hildur Fríða Hall­gríms­dóttir er fædd árið 2002. Hún varð í dag yngst til að taka sæti á Alþingi, 19 ára og 240 daga gömul. Mynd: Skjáskot úr útsendingu Alþingis

Tveir vara­þing­menn Pírata, þær Gunn­hildur Fríða Hall­gríms­dóttir og Lenya Rún Taha Karim, tóku sæti á Alþingi í dag fyrir þing­menn­ina Björn Leví Gunn­ars­son og Andrés Inga Jónsson. Gunn­hildur Fríða er 19 ára og 240 daga gömul og því yngri en nokkur vara­þing­maður sem hefur sest á þing til þessa – og fyrsta mann­eskjan sem fædd er á 21. öld­inni sem tekur sæti á þingi, en hún fædd­ist árið 2002.

Lenya Rún er 22 ára og 9 daga gömul, fædd 1999 og er því fimmta yngsta mann­eskjan sem tekur sæti á Alþingi sem vara­maður, sam­kvæmt lista sem yfir það er hald­inn á vef Alþingis.

Í kosn­ing­unum í lok sept­em­ber var um tíma útlit fyrir að hún yrði upp­bót­ar­þing­maður Pírata í Reykja­vík og þá um leið sú yngsta til að ná kjöri til Alþingis frá upp­hafi, en eftir að atkvæði voru talin á ný í Norð­vest­ur­kjör­dæmi varð það ekki raunin.

Áður en Gunn­hildur Fríða varð yngsti vara­mað­ur­inn á Alþingi frá upp­hafi í dag hafði Karl Lilj­en­dal Hólm­geirs­son getað státað af því að hafa verið yngstur er hann tók sæti á þingi, en hann fædd­ist árið 1997 og kom inn á þing fyrir Mið­flokk­inn árið 2018, þá 20 ára og 355 daga gam­all.

Yngstu varaþingmenn sögunnar:

  • Gunn­hildur Fríða Hall­gríms­dóttir, fædd 2002, kemur á þing 2021, aldur 19 ár og 240 dagar.
  • Karl Lilj­en­dal Hólm­geirs­son, fæddur 1997, kemur á þing 2018, aldur 20 ár og 355 dagar.
  • Bjarni Halldór Janusson, fæddur 1995, kemur á þing 2017, aldur 21 ár og 142 dagar.
  • Víðir Smári Petersen, fæddur 1988, kemur á þing 2010, aldur 21 ár og 328 dagar.
  • Lenya Rún Taha Karim, fædd 1999, kemur á þing 2021, aldur 22 ár og 9 dagar.
  • Lilja Rannveig Sig­ur­geirs­dóttir, fædd 1996, kemur á þing 2018, aldur 22 ár og 84 dagar.
  • Sigurður Magn­ús­son, fæddur 1948, kemur á þing 1971, aldur 23 ár og 167 dagar.
  • Ásta Guðrún Helga­dóttir, fædd 1990, kemur á þing 2014, aldur 24 ára og 34 dagar.
  • Helgi Seljan, fæddur 1934, kemur á þing 1958, aldur 24 ár og 37 dagar.
  • Sigríður María Egils­dóttir, fædd 1993, kemur á þing 2018, aldur 24 ár og 132 dagar.
  • Einar K. Guð­finns­son, fæddur 1955, kemur á þing 1980, aldur 24 ár og 134 dagar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár