Aðgerðarhópur í húsnæðismálum vinnur að fjórtán aðgerðum

Búist er við því að aðgerða­á­ætlun til að taka á neyð­ar­á­standi á hús­næð­is­mark­aði verði kynnt í þess­ari viku eða þeirri næstu. Ríkið mun selja sveit­ar­fé­lögum lóðir til íbúð­ar­upp­bygg­ingar til að mæta ástand­inu.

Aðgerð­ar­hópur fjög­urra ráð­herra vegna neyð­ar­á­stands í hús­næð­is­málum vinnur að fjórtán mis­mun­andi aðgerðum til að bregð­ast við neyð­ar­á­standi á íslenskum hús­næð­is­mark­aði. Ein þeirra aðgerða snýst um að ríkið selji sveit­ar­fé­lögum lóðir til íbúða­upp­bygg­ingar.

Þetta kemur fram í pistli sem Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur birt á heima­síðu Við­reisnar þar sem hann fer yfir lof­orð flokks­ins og efndir það sem af er kjör­tíma­bili.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans mun aðgerð­ar­hóp­ur­inn kynna aðgerð­ar­á­ætlun sína í þess­ari viku eða snemma í þeirri næstu. Á meðal þess sem þar verður lagt til er að bygg­ing­ar­reglu­gerðir verði ein­fald­aðar, að gjald­töku sveit­ar­fé­laga vegna lóða­út­hlut­ana verði tak­mörkuð eða breytt og frek­ari tak­mark­anir á útleigu íbúð­ar­hús­næðis til ferða­manna til að mæta hús­næð­is­vanda Íslend­inga.

Auk þess er búist við því að bætt verði enn frekar í aðgerðir til að tryggja tekju­lágum hús­næði, til dæmis með áfram­hald­inu upp­bygg­ingu svo­kall­aðra leigu­heim­ila.

Vantar níu þúsund íbúðir

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um stöð­una á hús­næð­is­mark­aði í sjón­varps­þætti sínum á Hring­braut í apríl og í frétta­skýr­ingu sem birt var í kjöl­farið.

Þar kom fram að fjórar sam­hang­andi ástæður hafa gert það að verkum að ungt og/eða efna­lítið fólk getur ekki kom­ist inn á hús­næð­is­markað, þrátt fyrir lang­vinnt góð­æri. Allar stuðla þær að því að aðrir hópar hagn­ast á neyð þeirra sem koma ekki þaki yfir höf­uðið. Farið var yfir málið í nýjum sjón­varps­þætti Kjarnans.

Meg­in­á­stæðan er skortur á fram­boði. Mestu sök­ina þar bera stærstu sveit­ar­fé­lög lands­ins, sem hafa ekki tryggt nægt bygg­ing­ar­land til að halda í við eft­ir­spurn eftir hús­næði. Nýleg grein­ing Íbúða­lána­sjóðs, sem gerð var fyrir aðgerð­ar­hóp félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, sýndi þessa stöðu svart á hvítu. Samkvæmt henni vantar nú þegar 4.600 íbúðir og byggja þarf níu þús­und íbúðir til loka árs 2018 til að ná jafn­vægi milli fram­boðs og eft­ir­spurnar.

Hinar þrjár ástæð­urnar sem leggja sitt að mörkum til að skapa það ástand sem er á hús­næð­is­mark­aði eru gríð­ar­stór leigu­fé­lög sem rekin eru með hagn­að­ar­sjón­ar­miði, útleiga á þús­undum íbúða til ferða­manna sem þá nýt­ast ekki íbúum lands­ins og aðgerðir rík­is­stjórna á borð við Leið­rétt­ing­una, sem olli ruðn­ings­á­hrifum á hús­næð­is­mark­aði og stuðl­aði þannig að hærra hús­næð­is­verði en ella hefði orðið.

Vill takmarka Airbnb

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, sagði í þætt­inum að meg­in­vand­inn væri fram­boðsvandi og að hraða þurfi fram­kvæmdum. Í því sam­hengi sé verið að skoða að selja stórar jarð­eignir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem í dag eru í eigu rík­is­ins til sveit­ar­fé­laga svo hægt sé að nota þær undir íbúða­byggðir. Þegar hafi Víf­il­stað­ar­landið í Garðabæ verið selt og einnig sé horft á t.d. Keldna­holt, Land­helg­is­gæslu­reit, Veð­ur­stofu­reit og landið í kringum gamla SS-húsið í Laug­ar­dal í þessu sam­hengi. Þor­steinn sagði einnig breyta þyrfti bygg­ing­ar­reglu­gerðum, taka á gjald­töku sveit­ar­fé­laga, halda áfram öfl­ugri upp­bygg­ingu leigu­heim­ila og tak­marka Air­bn­b-út­leig­u.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár