Klækjarefurinn Lars Løkke ekki á förum úr pólitík

Þegar Lars Løkke Rasmus­sen sagði af sér for­mennsku í danska Venstre flokknum 2019 töldu margir að dagar hans í stjórn­málum yrðu brátt taldir. Skoð­ana­kann­anir benda til ann­ars, nýstofn­aður flokkur Lars Løkke nýtur tals­verðs fylgis kjós­enda.

Lars Løkke fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur og formaður í Venstre.
Lars Løkke fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur og for­maður í Venstre. Mynd: EPA

Lars Løkke er tví­mæla­laust meðal þekkt­ustu stjórn­mála­manna í Danmörku á síð­ari árum. Hann er 57 ára og hefur setið á þingi í 26 ár. Hann tók við sem for­sæt­is­ráð­herra og for­maður í Venstre árið 2009, þá voru tvö ár eftir af kjör­tíma­bil­inu en eftir kosn­ingar 2011 tók stjórn undir for­ystu Helle Thorning- Schmidt við völdum.

Lökke, eins og hann er oft­ast kall­aður til aðgrein­ingar frá tveimur for­verum sínum á stóli for­sæt­is­ráð­herra, sett­ist aftur í for­sæt­is­ráðu­neytið eftir kosn­ingar árið 2015 og sat fram að kosn­ingum 2019. Fylg­is­hrun Danska Þjóð­ar­flokks­ins, sem stutt hafði stjórn Venstre, olli því að Lars Løkke missti lykla­völdin í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu til Mette Frederik­sen og jafn­að­ar­manna.

Viðraði nýjar hugmyndir

Í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2019 nefndi Lars Løkke í við­tölum að kannski væri kom­inn tími til að hugsa dönsk stjórn­mál upp á nýtt. Brjóta upp blokka­skipt­ing­una svo­nefndu. Danska þingið, Fol­ket­inget skipt­ist í tvær blokkir, bláa og rauða. Þeirri bláu til­heyra hægri flokk­arnir svo­nefndu en vinstri flokk­arnir þeirri rauðu. Utan þess­ara blokka hefur Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn staðið en hann hafði lengi stutt rík­is­stjórnir bláu blokk­ar­innar.

Hug­myndir Lars Løkke um brjóta upp blokka­skipt­ing­una, vinna yfir miðj­una eins og hann komst að orði, féllu í grýttan jarð­veg hjá mörgum flokks­mönnum Venstre. Í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske 7. ágúst 2019 vís­aði Kristian Jensen vara­for­maður Venstre hug­myndum Lars Løkke á bug. Danskir stjórn­mála­skýrendur sögðu aug­ljóst að ein­hvers­konar upp­gjör væri í vændum í Venstre. Þeir reynd­ust sann­spáir.

Átakafundur, afsögn formanns og varaformanns

Á miklum átaka­fundi Venstre í lok ágúst 2019 var ákveðið að boða til lands­fundar þrem vikum síðar, 21. sept­em­ber, og þar yrði eitt mál á dag­skrá: kosn­ing for­manns og vara­for­manns. Lars Løkke fór fram á að flytja lands­fund­inum skýrslu um for­manns­störf sín, en þeirri kröfu var hafnað. Lars Løkke fann að allur vindur var úr for­manns­seglum hans, til­kynnti afsögn sína, gekk á dyr bak­dyra­megin, og var á bak og burt áður en fund­ar­menn höfðu áttað sig. Nokkrum mín­útum síðar til­kynnti Kristian Jensen vara­for­maður um afsögn sína, með grát­staf­inn í kverk­unum.

Lands­fundur Venstre fór fram 21. sept­em­ber 2019, eins og ákveðið hafði verið, þar var Jakob Ellemann-Jensen kos­inn for­maður og Inger Støjberg vara­for­maður. Hún er mjög umdeild og sagði síðar af sér vara­for­mennsku og enn síðar skilið við Venstre. Það gerð­ist eftir að þing­menn sam­þykktu að henni skyldi stefnt fyrir Landsdóm vegna ákvarð­ana og fyr­ir­skip­ana hennar í mál­efnum inn­flytj­enda, meðan hún gegndi emb­ætti ráð­herra inn­flytj­enda­mála. Þau mála­ferli standa nú yfir en ekki verður nánar um þau fjallað hér.

Ætlaði sér greinilega að halda áfram í stjórnmálum

Um mán­aða­mótin ágúst sept­em­ber 2020 sendi Lars Løkke frá sér bók­ina „Om de fleste og det meste“. Þar fór hann yfir atburða­rás­ina sem leiddi til afsagnar hans sem for­manns Venstre en gagn­rýnendur sögðu frá­sögn­ina nokkuð ein­hliða og höf­und sleppa mörgu um eigin „kaf­báta­hernað“ eins og einn orð­aði það.

Í bók­inni gefur Lars Løkke til kynna, án þess þó að segja berum orðum, að hann velti fyrir sér að snúa aftur í fram­línu stjórn­mál­anna. Þegar bókin kom út var Lars Løkke enn þing­maður Venstre en í byrjun þessa árs sagði hann skilið við flokk­inn, varð þing­maður utan flokka, løs­gæn­ger. Hann til­kynnti við það tæki­færi stofnun nýrrar stjórn­mála­hreyf­ingar „Det politiske møde­sted“. Dönsku fjöl­miðl­arnir köll­uðu það bið­leik, Lars Løkke væri að kanna jarð­veg­inn fyrir nýjan flokk. Sem reynd­ist rétt.

Moderaterne

Í apríl til­kynnti Lars Løkke að hann hefði stofnað nýjan flokk, Modera­terne. Til­kynn­ingin um stofnun flokks­ins birt­ist fyrst í inn­sendri grein í dag­blað­inu B.T. Í grein­inni sagði Lars Løkke að nýi flokk­ur­inn myndi stað­setja sig á miðju stjórn­mál­anna, sama hug­myndin og hann hafði áður lýst. Í grein­inni nefndi hann nokkur helstu áherslu­at­riði nýja flokks­ins þar á meðal lægri skatta á atvinnu­lífið, breyt­ingar á náms­styrkja­kerf­inu, aukna styrki til vís­inda­rann­sókna. „Skynsemi og kreddu­leysi mun ein­kenna okkar störf,“ sagði Lars Løkke.

Stjórn­mála­skýrendur dönsku fjöl­miðl­anna sögðu flokks­stofn­un­ina tíð­indi í dönskum stjórn­málum og töldu lít­inn vafa á að klækja­ref­ur­inn Lars Løkke (orða­lag Politi­ken) myndi draga að sér fylgi. Enginn vafi léki á að hann ætti sér fjöl­marga fylg­is­menn. Jafn­framt bentu stjórn­mála­skýrendur á að Venstre, gamli flokkur Lars Løkke ætti í miklum erf­ið­leikum, fylgið hafði hrunið og Jakob Ellemann-Jensen ætti erfitt með að finna takt­inn, eins og það var orðað.

Margt Venstrefolk undrandi

Árlegur lands­fundur Venstre fór fram helg­ina 9-10. sept­em­ber sl. For­mað­ur­inn Jakob Ellemann-Jensen fór yfir stöð­una í flokknum og sagði brýnt að félagar í flokknum standi saman, erf­ið­leika­tíma­bil, bæði í flokknum og lands­mál­unum væri að baki og horfa yrði fram á við. Þótt mál­efni Lars Løkke og nýja flokks­ins væru ekki á dag­skrá fund­ar­ins voru þau mál heil­mikið rædd, utan dag­skrár. Meðal þeirra sem hafa lýst mik­illi undrun og óánægju með þá ákvörðun Lars Løkke að snúa baki við flokknum er Anders Fogh Rasmus­sen fyrr­ver­andi for­maður Venstre og for­sæt­is­ráð­herra. Sagðist hann telja að það hefði þjónað flokknum, og Lars Løkke, best að hann hefði verið áfram í flokknum. Bertel Haarder fyrr­ver­andi ráð­herra og áhrifa­maður í Venstre í ára­tugi hefur talað á sömu nótum og enn­fremur Claus Hjort Frederik­sen, sem var ráð­herra í stjórn Lars Løkke og hans helsti ráð­gjafi.

Ný skoðanakönnun er byr í seglin hjá Moderaterne

Í nýrri Gallup könnun meðal danskra kjós­enda myndu Modera­terne fá 3,5% atkvæða og sex þing­menn ef kosið væri í dag. Það sem vakti sér­staka athygli stjórn­mála­skýrenda var sú stað­reynd að tæpur helm­ingur þeirra sem studdu Modera­terne í þess­ari könnun var fólk sem studdi Venstre í kosn­ing­unum 2019. Þetta segja stjórn­mála­skýrendur ekki góð skila­boð til for­ystu Venstre. Kasper Møller Hansen pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Hafn­ar­há­skóla segir könn­un­ina vís­bend­ingu um að það verði atkvæðin á miðj­unni sem ráði úrslitum í næstu kosn­ingum. „Klækja­ref­ur­inn Lars Løkke gæti því hugs­an­lega ráðið því hver verði næsti for­sæt­is­ráð­herra Dana. Sú til­hugsun veldur gæsa­húð hjá Venstre fólki.“

Rétt er að geta þess varð­andi könnun Gallup að sam­kvæmt henni hefur rík­is­stjórn Mette Frederik­sen, og stuðn­ings­flokkar hennar, tryggan meiri­hluta á þing­inu. Næstu þing­kosn­ingar í Danmörku fara fram árið 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár