Jólatónleikar í algleymingi

Jülevenner Emmsjé Gauta

 Hvar? Háskóla­bíó

 Hvenær? 22. og 23. des­em­ber

 Aðgangs­eyrir: 4.990–8.990 kr.

 Jülevenner Emmsjé Gauta er sann­kölluð jóla­keyrsla þar sem hópur skemmti­krafta sam­ein­ast. Popptón­list, leik­þættir og jólastemn­ing mun ráða ríkjum. Jülevenner Emmsjé Gauta eru meðal ann­ars Aron Can, Salka Sól, Steindi JR, Selma Björns og Herra Hnetu­smjör. Hljóm­sveit Jülevenner Emmsjé Gauta skipa Magnús Jóhann Ragn­ars­son, Vignir Rafn Hilm­ars­son, Matt­hildur Haf­liða­dóttir, Rögn­valdur Borg­þórs­son, Þor­valdur Þór Þor­valds­son, Björn Valur Pálsson og Stein­grímur Teague.

„Við náðum ekki að halda Jülevenner í fyrra svo það er tvö­föld spenna fyrir gigg­inu í ár. Það er upp­selt á flestar sýn­ing­arnar en við erum líka í streymi fyrir þá sem sjá sér ekki fært að mæta á svæðið,“ segir Emmsjé Gauti.

Aðventudagatal Ferðafélags Íslands

Hvar? Víða

Hvenær? í des­em­ber

Verð: Ókeypis!

Til að heiðra minn­ingu Johns Snorra Sig­ur­jóns­sonar stendur Ferða­fé­lag Íslands fyrir aðventu- og bros­göngum í des­em­ber og frá 1. des­em­ber hefur Ferða­fé­lag Íslands birt eina hug­mynd að göngu á Facebook-síðu FÍ og Instagram.
Hver ganga / við­burður er far­inn á eigin vegum heiman að frá og þátt­taka ókeypis. Hver ganga er létt og þægi­leg fyrir alla ald­urs­hópa og í nærum­hverf­inu. 
Þátt­tak­endur eru beðnir að taka myndir úr sinni göngu, merkja með #fiað­venta og deila á sam­fé­lags­miðlum.

,,Skamm­degið er erf­iður tími fyrir marga og mik­il­vægt að nýta birt­una eins og hægt er, fara út og hreyfa sig og reyna að fá fólk með sér í göngu,“ segir Heiðrún Ólafs­dóttir hjá FÍ.

Emil í Kattholti

Hvar? Borg­ar­leik­húsið

Verð: 5.900 kr.

Fallega fjöl­skyldu­sýn­ingin um Emil í Katt­holti, þar sem Þórunn Arna Krist­jáns­dóttir leik­stjóri leiðir sann­kallað stór­skota­lið leik­ara Borg­ar­leik­húss­ins og tón­list­ar­manna inn í Smá­löndin sænsku, var frum­sýnd á stóra svið­inu um síð­ast­liðna helgi og ríkti gríð­ar­leg ánægja meðal gesta. Kattholt er heill heimur ævin­týra og nú hefur hann lifnað sem aldrei fyrr í söngvum og gleði á stóra sviði Borg­ar­leik­húss­ins.

KK & MUGISON í Fríkirkjunni

Hvar? Frí­kirkjan

Hvenær? 15. og 16. des­em­ber kl. 10 og 22, fernir tón­leikar

Miðaverð: 4.990 kr. 

KK og Mugison munu koma saman fram á tón­leikum í Frí­kirkj­unni en báðir hafa átt stór­glæsi­lega sól­ó­ferla ásamt því að hafa unnið hug og hjörtu þjóð­ar­innar með söng­perlum sem margir þekkja. Þor­leifur Gaukur mun koma fram með þeim og spila á slide-gítar og munn­hörpu.

„Í Frí­kirkj­unni ætlum við að spila okkar bestu lög í bland við nokkra lélega brand­ara sem við höfum verið að semja saman und­an­farið,“ segir Mugison.

Guðrún Árný og Egill Rafns – Jólasingalong

Hvar? Bæjarbíó, Hafn­ar­firði

Hvenær? 16. des­em­ber kl. 20.00

Miðaverð: 3.900 kr.

Söng­konan og píanó­leik­ar­inn Guðrún Árný og trommu­leik­ar­inn Egill Rafns verða með jóla-singa­long­kvöld í Bæj­ar­bíói 16. des­em­ber. Gestir hafa mikið um laga­valið að segja og taka þannig virkan þátt og syngja með.

„Þetta er með því skemmti­legra sem við gerum. Áhorf­endur geta beðið um óska­lög og við erum alveg óhrædd við að vera með áhættu­at­riði og telja bara í. Við lofum eðal­par­tíi þar sem við hvetjum alla til að syngja hástöfum með,“ segir Guðrún Árný.

Hera Björk – Ilmur af jólum í 20 ár

Hvar? Hall­gríms­kirkja

Hvenær? 20. des­em­ber.

Miðaverð: 8.900 kr.

Söng­konan Hera Björk blæs til hátíðar- og afmæl­is­tón­leik­anna ILMUR AF JÓLUM í 20 ÁR í Hall­gríms­kirkju 20. des­em­ber en jóla­plata hennar, ILMUR AF JÓLUM, fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir. Ásamt Heru Björk koma fram Páll Óskar, Hjördís Geirs, Ari Ólafs og Þórdís Petra ásamt hljóm­sveit, strengja­kvar­tett­inum LÝRU, kórnum VOX FELIX og félögum úr VóKal.  Saman munu þau, ásamt tákn­mál­stúlkum frá Hraðar hendur, flytja lögin af ILMUR AF JÓLUM I & II í bland við vel valdar jóla­perlur. Miðasala á TIX.is.

„Hjá mér er að ræt­ast lang­þráður draumur um ILMUR AF JÓLUM í Hall­gríms­kirkju. Og það að fá tákn­mál­stúlk­ana með í flutn­ing­inn mun klár­lega lyfta þessu í hæstu hæðir. Ég hlakka því alveg extra mikið til að syngja og spila jólin inn með öllu þessu dásam­lega sam­starfs­fólki. Við stefnum á jólagaldra af bestu sort og hlökkum til að eiga þessa stund með ykkur áhorf­endum,“ segir Hera Björk.

Margrét Eir Jólatónleikar

Hvar? Frí­kirkjan í Hafn­ar­firði

Hvenær? 22. des­em­ber

Miðaverð: 4.900 krónur

Margrét Eir kemur fram á jólatón­leikum í Frí­kirkj­unni í Hafn­ar­firði 22. des­em­ber ásamt hljóð­færa­leik­ur­unum Daða Birg­is­syni, Birki Hrafni Birg­is­syni og Þorgrími Jónssyni. Sér­stakur gestur verður Egill Árni Pálsson ten­ór­söngv­ari. Þetta verður kvöld til að hverfa frá amstri hvers­dags­ins og ströngum und­ir­bún­ingi jól­anna og njóta fal­legrar tón­listar og afslöpp­unar. „Ég hef haldið þessa tón­leika í nokkur ár og mér þykir mjög vænt um stemn­ing­una sem mynd­ast þarna svona rétt fyrir aðfanga­dag. Leyfa sér að slaka á og njóta,“ segir Margrét Eir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár