Sjávarútvegsfyrirtæki fengu 175 milljónir króna úr hlutabótaleiðinni

Tvö dótt­ur­fyr­ir­tæki Samherja skera sig úr á meðal sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem nýttu hluta­bóta­leið­ina. Alls voru 245 starfs­menn þeirra settir á leið­ina. Sam­stæðan ætlar að end­ur­greiða rík­is­sjóði greiðsl­urnar sem hún fékk.

Þorsteinn Már Baldvinsson, er annar forstjóra Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, er annar for­stjóra Samherja. Mynd: Samherji

Sam­an­lagðar greiðslur til launa­manna sem settir voru á hluta­bóta­leið­ina innan fisk­veiða og fisk­vinnslu voru 175,1 millj­ónir króna í mars og apríl. Þau tvö fyr­ir­tæki sem settu flesta starfs­menn á leið­ina innan þess geira eru nátengd. Annars vegar er um Samherja Íslands að ræða, sem setti 116 starfs­menn á hluta­bætur, og hins vegar Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga, sem setti 129 manns á hana. Þessi tvö félög skáru sig úr þegar kemur að fjölda starfs­manna sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem settir voru á hluta­bóta­leið­ina. Næst á eftir þeim var Jakob Valgeir ehf. með 60 manns. Raunar voru ein­ungis fjögur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem settu yfir 50 manns á hluta­bóta­leið­ina. Það fjórða var Búlands­tindur ehf., með 57 manns.

Bæði félögin eru í eigu Samherja hf., eins stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tækis lands­ins. Sam­an­lagt greiddi rík­is­sjóður 18 millj­ónir króna í mars og apríl vegna þátt­töku í launa­greiðslum starfs­manna þess­ara tveggja fyr­ir­tækja, sam­kvæmt því sem fram kemur í úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar á hluta­bóta­leið­inni, sem birt var fyrir helgi.

Þar segir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hafi haft tölu­verð áhrif á sjáv­ar­út­veg. „Fyr­ir­tæki hafa bæði þurft að senda starfs­fólk heim vegna sótt­varna­ráð­staf­ana en einnig hefur eft­ir­spurn eftir fiskaf­urðum minnkað. Nokkur fyr­ir­tæki í þessum flokki hafa þó boðað að þau muni end­ur­greiða rík­inu hluta­bætur sem það greiddi starfs­mönnum þess þar sem rekstur hefur gengið betur en útlit var fyrir.“ Á meðal þeirra fyr­ir­tækja sem það hafa boðað er Samherji.

Eðlilegt að bera sjálf kostnaðinn

Kjarn­inn greindi frá því 10. apríl að Sam­herjasam­stæð­an, sem er stærsta sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tæki lands­ins sem átti 111 millj­­arða króna í eigið fé í lok árs 2018, hefði sett starfs­­menn í fisk­vinnslum Sam­herja og dótt­­ur­­fé­lags­ins Útgerð­­ar­­fé­lags Akur­eyr­inga á hluta­­bóta­­leið­ina.

[adspot]Í til­kynn­ingu á vef Sam­herja, sem birt­ist 13. maí síð­ast­lið­inn, segir að fyr­ir­tækin Sam­herji Ísland og Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyrar hafi þurft að minnka starfs­hlut­fall starfs­manna í vinnslu á Akur­eyri og á Dal­vík eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn hófst og voru þessir starfs­menn um tíma í 50 pró­sent starfi. Breytt starfs­hlut­fall hafi meðal ann­ars til komið vegna krafna stjórn­valda um sótt­varnir en mark­miðið hafi verið að minnka líkur á að smit bær­ist á milli fólks og tryggja að starfs­fólk gæti unnið í sem mestu örygg­i.

Stjórn­endur Sam­herja Íslands og Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyrar hefðu talið „sjálf­sagt að nýta hluta­starfa­leið­ina þar sem um var að ræða lög­bundið úrræði stjórn­valda. Það var svo talið jafn eðli­legt að láta fyr­ir­tækin sjálf bera kostn­að­inn, af þeirri röskun sem varð á starf­semi þeirra, þegar ljóst var að rekst­ur­inn gekk betur en útlit var fyrir í upp­hafi far­ald­urs­ins“.

Björgólfur Jóhanns­son, annar for­stjóri Sam­herja, sagði í sömu til­kynn­ingu að betur hafi tek­ist að vinna úr þeirri stöðu sem var uppi í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins en útlit var fyrir í byrj­un. „Veið­ar, vinnsla og sala hafa gengið betur en menn þorðu að vona. Af þeim sökum hafa þessi fyr­ir­tæki ákveðið að nýta ekki hluta­bóta­leið­ina og greiða starfs­fólki að fullu. Félögin munu því bera allan kostnað sem féll til vegna trufl­unar á starf­sem­inni í þágu sótt­varna.“

Greinin á mörg hundruð milljarða í eigin fé

Sjáv­ar­út­vegur er ein stærsta stoð íslensks atvinnu­lífs. Greinin í heild átti eigið fé upp á 276 millj­arða króna í lok árs 2018 og við­búið er að það hafi auk­ist í fyrra, sem var gjöf­ult ár í útvegi.

[links]Frá hruni hefur eig­in­fjár­staða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna batnað um 355 millj­arða króna, en hún var nei­kvæð í lok árs 2008.

í lok árs 2008 var eig­in­fjár­staða geirans nei­kvæð en er nú, líkt og áður sagði jákvæð um 276 millj­arða króna. Hún batn­aði um 14 millj­arða króna á árinu 2018.

Alls greiddu fyr­ir­tækin sér arð upp á 12,3 millj­arða króna í fyrra. Frá árinu 2010 hafa þau greitt 92,5 millj­arða króna til eig­enda sinna í arð­greiðslur.

Sam­an­lagt hefur hagur sjáv­ar­út­veg­ar­ins, því vænkast um 447,5 millj­arða króna frá árinu 2008 og út síð­asta ár, eða á einum ára­tug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár