Fyrirtækin sem fengu mest út úr hlutabótaleiðinni í mars og apríl

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um hluta­bóta­leið­ina má finna nið­ur­brot á því hversu mikið fé rann frá Vinnu­mála­stofnun til starfs­manna fyr­ir­tækja sem nýttu hluta­bóta­leið­ina í mars og apríl. Kjarninn tók það helsta saman.

Icelandair Group er efst á lista, enda með meira en eitt og hálft prósent íslenska vinnumarkaðarins í hlutastarfi í mars og apríl.
Icelandair Group er efst á lista, enda með meira en eitt og hálft pró­sent íslenska vinnu­mark­að­ar­ins í hluta­starfi í mars og apríl. Mynd: EPA

Rík­is­end­ur­skoðun birti í skýrslu sinni um hluta­bóta­leið­ina lista yfir öll fyr­ir­tæki sem fengu heild­ar­greiðslur til launa­manna sinna yfir 30 millj­ónum króna í mars og apríl. Fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu eru fyr­ir­ferða­mest á þeim lista, sem Kjarninn hefur rýnt í og tekið saman hér að neðan.[links]

Tekið skal fram að þetta eru ein­ungis greiðsl­urnar sem launa­menn þess­ara félaga fengu frá Vinnu­mála­stofnun í mars og apríl, en heild­ar­greiðslur vegna hluta­bóta­leið­ar­innar á þessu tíma­bili námu um 11,7 millj­örðum króna. Hins vegar er nú gert ráð fyrir því að hluta­bóta­leiðin muni kosta rík­is­sjóð 34 millj­arða þar til í lok ágúst.

1. Icelandair Group - 1,11 milljarðar króna

Icelandair Group er langefst á lista, en sam­an­dregið fengu launa­menn hjá dótt­ur­fé­lögum sam­stæð­unnar, 3.318 tals­ins, 1.116 milljón króna greiðslur frá Vinnu­mála­stofnun í mars og apríl vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls.

Þar af voru 2.493 starfs­menn Icelandair ehf. í skertu starfs­hlut­falli og 502 starfs­menn Flug­leiða­hót­ela hf., auk starfs­manna Air Iceland Connect, Iceland Travel og fleiri dótt­ur­fé­laga.

[adspot]

Starfs­menn Flug­leiða­hót­ela fengu alls 248 millj­ónir króna greiddar frá Vinnu­mála­stofnun vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls í mars og apríl, en inn í heild­ar­summ­una sem fór til starfs­manna Icelandair Group reikn­ast ein­ungis 87 millj­ónir af þeirri upp­hæð, sökum þess að í apríl seldi Icelandair Group 75 pró­sent hlut sinn í hót­el­keðj­unni.

2. Bláa lónið - 185,8 milljónir króna

Bláa lónið setti alls 441 starfs­mann í minnkað starfs­hlut­fall í mars og apríl. Heild­ar­greiðslur til launa­manna fyr­ir­tæk­is­ins frá Vinnu­mála­stofnun á þessu tíma­bili námu tæpum 186 millj­ónum króna.

Áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á hafði fyr­ir­tækið 764 starfs­menn í vinnu. 164 þeirra var sagt upp 26. mars og fyr­ir­tækið hefur nú til­kynnt að um kom­andi mán­aða­mót verði 403 starfs­mönnum til við­bótar sagt upp störfum.

Ekki liggur fyrir hvort Bláa lónið ætli að óska eftir því að hluti launa­greiðslna starfs­manna á upp­sagn­ar­fresti greið­ist úr rík­is­sjóði.

3. Íslandshótel / Fosshótel Reykjavík - 161,3 milljónir króna

Hót­el­keðjan Íslands­hótel, sem er ein sú stærsta hér á landi og rekur meðal ann­ars Grand Hótel auk Foss­hót­ela víða um land, var með 365 starfs­menn í minnk­uðu starfs­hlut­fall í mars og apríl og fengu þeir 122,6 millj­ónir greiddar frá Vinnu­mála­stofnun.

Foss­hótel Reykja­vík, sem er tengt félag, var svo með 108 starfs­menn í skertu starfs­hlut­falli í mars og apríl og fengu þeir starfs­menn 38,6 millj­ónir greiddar frá Vinnu­mála­stofnun.

Sam­an­lagt voru félögin því með 473 starfs­menn á hluta­bóta­leið­inni á tíma­bil­inu. Nokkrum hót­elum í keðj­unni hefur verið lokað tíma­bundið.

4. CenterHotels - 98,1 milljón króna

Hótelin hafa staðið auð að mestu frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn braust út. CenterHotels hafa ekki farið var­hluta af því, en 201 starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins var í minnk­uðu starfs­hlut­falli í mars og apríl. Nokkrum hót­elum keðj­unnar hefur verið lokað tíma­bundið.

5. Kynnisferðir - 81,5 milljónir króna

Rútu­fyr­ir­tækið Kynn­is­ferðir, ann­ars vegar hóp­bíla­hlut­inn og hins vegar ferða­skrif­stofu­hlut­inn, kom­ast bæði á lista Rík­is­end­ur­skoð­unar yfir þau fyr­ir­tæki sem fengu hæstar greiðslur til starfs­manna sinna vegna hluta­bóta­leið­ar­innar. 

Sam­an­lagt setti fyr­ir­tækið 151 starfs­mann á hluta­bóta­leið­ina í mars og apríl. 150 starfs­mönnum var sagt upp í lok apríl.

6. IKEA á Íslandi (Miklatorg) - 65 milljónir króna

IKEA lok­aði verslun sinni í Kauptúni í Garðabæ á meðan kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn gekk yfir, en 180 starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins voru settir á hluta­bóta­leið­ina á meðan. Versl­unin opn­aði á ný 4. maí og ekki hefur þurft að koma til upp­sagna þar.

7. Airport Associates - 58,4 milljónir króna

Mikill sam­dráttur varð hjá Airport Associates, sem þjón­ustar flug­fé­lög á Kefla­vík­ur­flug­velli, þegar flug­fé­lög hættu að fljúga til og frá Íslandi. Fyr­ir­tækið var með 153 starfs­menn á hluta­bóta­leið­inni í mars og apríl, en sagði upp 131 starfs­manni í lok apr­íl­mán­aðar.

8. Gray Line (Allrahanda) - 56,3 milljónir króna

Rútu­fyr­ir­tækið Gray Line var með 109 starfs­menn á hluta­bóta­leið­inni í mars og apríl. Í lok apríl sagði fyr­ir­tækið upp nær öllum starfs­mönnum, eða 107 af alls 116 sem þar störf­uðu.

9. Bílaleiga Akureyrar - Höldur - 53,5 milljónir króna

Bíla­leiga Akur­eyrar er stærsta bíla­leiga lands­ins og var með 183 starfs­menn á hluta­bótum í mars og apríl.

Fram kemur á vef fyr­ir­tæk­is­ins að um 5.000 bílar séu þar í rekstri yfir sum­ar­tím­ann, en fyr­ir­tækið er einnig með bíla­sölu, bif­reiða­verk­stæði og dekkja­þjón­ustu. Fyr­ir­tækið sagði upp um það bil 20 manns í lok apríl.

10. KEA-hótel - 49,9 milljónir króna

KEA-hótel voru með 153 starfs­menn á hluta­bóta­leið­inni í mars og apríl. Greiðslur til þeirra námu tæpum 50 millj­ónum króna.

11. Sjóklæðagerðin 66°Norður - 46,3 milljónir króna

66°Norður nýtti hluta­bóta­leið­ina fyrir alls 87 starfs­menn í mars og apríl og lok­aði nokkrum versl­unum á meðan far­ald­ur­inn var að ganga yfir.

12. Festi - um 45 milljónir króna

Smá­sölu­sam­stæðan Festi nýtti hluta­bóta­leið­ina fyrir starfs­menn dótt­ur­fé­lag­anna N1 og Elko. Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar segir að 156 starfs­menn N1 hafi verið í minnk­uðu starfs­hlut­falli í mars og apríl og greiðslur til þeirra hafi numið rúmum 29 millj­ónum króna.

Í skýrsl­unni kemur hins vegar ekk­ert fram um hversu margir starfs­menn Elko voru á hluta­bóta­leið­inni. Eggert Þór Krist­ó­fers­son for­stjóri Festar sagði þó við mbl.is fyrr í mán­uð­inum að heild­ar­greiðslur til starfs­manna fyr­ir­tækja Festar vegna hluta­bóta­leið­ar­innar hefðu verið um 45 millj­ónir króna.

Fyr­ir­tækið er í hópi stöndugra stór­fyr­ir­tækja sem stjórn­völd gagn­rýndu skyndi­lega og harð­lega fyrir notkun á hluta­bóta­leið­inni og hefur gefið út að það ætli að end­ur­greiða féð í rík­is­sjóð.

13. Fríhöfnin - 45,2 milljónir króna

Alls 152 starfs­menn Frí­hafn­ar­innar á Kefla­vík­ur­flug­velli voru á hluta­bóta­leið­inni í mars og apríl. 30 starfs­mönnum var sagt upp í lok apríl. Frí­höfnin er dótt­ur­fé­lag opin­bera hluta­fé­lags­ins Isavia.

14. Penninn - 39 milljónir króna

Penninn sagði upp 90 manns strax í lok mars­mán­aðar, en þar var aðal­lega um að ræða fólk í hluta­störfum undir 45 pró­sent starfs­hlut­falli, sem hluta­bóta­leiðin náði ekki til. Upp­sagn­irnar náðu til um það bil 35 stöðu­gilda.

Fjöldi ann­arra starfs­manna, alls 135 tals­ins, voru í minnk­uðu starfs­hlut­falli í mars og apríl.

15. World Class - 36,9 milljónir króna

Lík­ams­rækt­ar­stöðvum var gert að loka vegna sótt­varna­ráð­staf­ana. Sú stærsta í þeim geira hér­lendis, World Class, var með 117 starfs­menn á hluta­bótum í mars og apríl.

16. Öryggismiðstöð Íslands - 36,6 milljónir króna

Alls 142 starfs­menn Örygg­is­mið­stöðvar Íslands voru á hluta­bótum í mars og apríl. Um 75 pró­sent þeirra sem voru í minnk­uðu starfs­hlut­falli störf­uðu við flug­vernd­ar­þjón­ustu á Kefla­vík­ur­flug­velli.

17. Hertz (Bílaleiða Flugleiða) - 36,4 milljónir

Bíla­leiga Flug­leiða, sem fer með rekstur Hertz á Íslandi, var með 94 starfs­menn á hluta­bótum í mars og apríl.

18. Arctic Adventures (Straumhvarf) - 36,3 milljónir króna

Straum­hvarf, dótt­ur­fé­lag Arctic Adventures, var með 86 starfs­menn á hluta­bóta­leið­inni í mars og apríl. Öllum starfs­mönnum Arctic Adventures og dótt­ur­fé­laga, alls 152 tals­ins, var sagt upp í lok apríl.

19. Bílaleigur ALP hf. - 35,9 milljónir króna

ALP hf., sem rekur bíla­leig­urnar Avis og Budget á Íslandi, var með 84 starfs­menn á hluta­bóta­leið­inni í mars og apríl.

20. Bílaumboðið Askja - 35,4 milljónir króna

Askja var með 112 starfs­menn í minnk­uðu starfs­hlut­falli í mars og apríl.

21. Brimborg - 32,2 milljónir króna

Brimborg var með 165 starfs­menn á hluta­bóta­leið­inni í mars og apríl.

22. Húsasmiðjan - 31 milljón króna

Húsa­smiðjan var með alls 148 starfs­menn í minnk­uðu starfs­hlut­falli í mars og apríl.

23. Össur - 30,6 milljónir króna

Össur nýtti hluta­bóta­leið­ina fyrir um þriðj­ung starfs­manna sinna á Íslandi, alls 166 manns. Starfs­hlut­fall þeirra fór niður í 50 pró­sent í apríl, en fyr­ir­tækið hefur gefið það út að það hygg­ist end­ur­greiða Vinnu­mála­stofnun, eftir að hvöss gagn­rýni kom skyndi­lega fram frá stjórn­völdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár