Turnbygging sem íbúar lýstu sem „fokkmerki“ lækkuð um 10 hæðir

Hópur íbúa í Glað­heima­hverfi í Kópavogi krafð­ist þess að hæsta hús á Íslandi yrði ekki byggt í hverf­inu, til þess að áfram yrði gott að búa í Kópavogi. Turn sem átti eitt sinn að verða 32 hæðir og síðan 25 hæðir verður á end­anum senni­lega bara 15 hæðir.

Svona leit turnbyggingin út í teikningum sem fylgdu deiliskipulagstillögu bæjarins.
Svona leit turn­bygg­ingin út í teikn­ingum sem fylgdu deiliskipu­lags­til­lögu bæj­ar­ins. Mynd: Úr deiliskipulagstillögu Kópavogsbæjar.

Fyr­ir­huguð turn­bygg­ing í nýju Glað­heima­hverfi í Kópavogi verður að hámarki 15 hæðir, en ekki 25 hæðir eins og lagt var til í deiliskipu­lags­til­lögu sem var til umsagnar í sumar. Íbúar í grennd­inni settu sig upp á móti hæð turns­ins og sögðu hann meðal ann­ars svipta þá sem búa í aust­ur­hluta hverf­is­ins kvöldsól á svölum.

Fleiri en einn íbúi líkti turn­inum svo við „fokk­merki“, í umsögnum til skipu­lags­yf­ir­valda í bænum, sem féllust á að lækka turn­inn vegna athuga­semda íbúa. Sú afgreiðsla var stað­fest af bæj­ar­stjórn Kópavogs í lok októ­ber.[links]

Deiliskipu­lags­til­lagan, sem Kjarninn fjall­aði um í lok júní, fól reyndar þegar í sér lækkun á fyr­ir­hug­aðri turn­bygg­ingu frá því deiliskipu­lagi sem tók gildi árið 2009. Þar var nefni­lega gert ráð fyrir 32 hæða turni.

En íbúum í grennd­inni þótti lækk­unin ekki nógu mikil og vildu ekki sjá fram á að allt að 115 metra há bygg­ing, sú hæsta á Íslandi ef bygg­ing­ar­heim­ildin yrði full­nýtt, myndi rísa á þessum stað.

[adspot]

„Það verður að segj­ast að hug­myndin um tröll­auk­inn turn er dap­ur­leg til­vísun til árs­ins 2007, minn­is­varði um útþanda karl­mennskuí­mynd og gildi ofríkis, „ég á‘etta, má‘etta, vil‘etta, get‘etta“, steyttur hnefi með löngu­töng upp í loft, stærsta reð­ur­tákn sem reist hefur verið til himna hér­lendis, tákn­mynd tíð­ar­anda sem ætti að grafa í jörð, en ekki upp­hefja að nýju,“ sagði í einni umsögn íbúa í grennd­inni.

Í umsögnum sem bár­ust vegna deiliskipu­lags­til­lög­unnar var nán­ast án und­an­tekn­inga minnst á turn­inn mikla. Gegn­um­gang­andi var það við­horf að falla ætti frá því að leyfa svona háan turn á þessum stað, svo áfram gæti orðið gott að búa á þessum stað í Kópavogi.

Flott skipulag, en skrambans turninn

Margir voru ánægðir með nán­ast allt í til­lög­unni um Glað­heima­hverfið, nema turn­inn: „Það er bara þessi skrambans 25 hæða turn sem allt ætlar að skemma og ég vil hér með koma á fram­færi mik­illi and­stöðu minni,“ skrif­aði til dæmis ein kona til skipu­lags­yf­ir­valda bæj­ar­ins.

Hún sagði turn­inn vera „mein“ sem ekki ætti heima í þessu hverfi, tæki sól frá mörgum íbúðum og gnæfði yfir eins og gott „fokk­merki“ til íbú­anna.

Áhyggjur af vindstrengjum

Margir lýstu yfir áhyggjum af því að vinda­samt gæti orðið við svona háa bygg­ingu og vís­uðu til þess að reynslan sýndi að oft mynd­uð­ust vind­strengir við háhýsi eins og eru á Smára­torg­inu í Kópavogi og við Höfða­torg í Reykja­vík.

„Við álíka turna sem byggðir hafa verið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa mynd­ast miklir svipti­vindar, oft svo miklir að fólk stendur ekki undir sér. Litlar upp­lýs­ingar liggja fyrir um áhrif þeirra en varla verður hægt að halda fram að áhrif þeirra verði minni en þegar land liggur mun lægra,“ sagði í einni umsögn.

Skipu­lags- og bygg­ing­ar­deild bæj­ar­ins lagði til að turn­inn yrði lækk­aður um 10 hæðir sem áður segir. Ráðgerð hæð 15 metra turns er áætluð um 55 metrar sem þýðir að efsti punktur hans yrði í um 93 metra hæð yfir sjáv­ar­máli, enda liggur Glað­heima­hverfið nokkuð hátt í land­inu, í óbyggðri hæð­inni austan Reykja­nes­brautar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár