Gert ráð fyrir allt að 115 metra háum turni í nýju hverfi í Kópavogi

Breytt deiliskipu­lag fyrir Glað­heima­hverfið í Kópavogi gerir ráð fyrir því að allt að 115 metra hár turn rísi austan Reykja­nes­brautar. Núgild­andi skipu­lag sem er frá 2009 gerir ráð fyrir 32 hæða turni. Húsið yrði lang­hæsta bygg­ing lands­ins.

Gert er ráð fyrir að turninn verði 25 hæða hár, en núgildandi skipulag gerir ráð fyrir 32 hæða turni. Hér er hugmynd að því hvernig hann gæti litið út, samkvæmt deiliskipulagskynningunni.
Gert er ráð fyrir að turn­inn verði 25 hæða hár, en núgild­andi skipu­lag gerir ráð fyrir 32 hæða turni. Hér er hug­mynd að því hvernig hann gæti litið út, sam­kvæmt deiliskipu­lags­kynn­ing­unni. Mynd: Úr deiliskipulagskynningu Kópavogsbæjar

Kópa­vogs­bær hefur sett í kynn­ingu breyt­ingar á deiliskipu­lagi fyrir vest­ari hluta Glað­heima­hverfis, sem er hverfi sem er í upp­bygg­ingu austan Reykja­nes­brautar, á milli Smára- og Linda­hverfa. Í nýju skipu­lagi er gert ráð fyrir allt 115 metra háum turni sem myndi gnæfa yfir nær­liggj­andi byggð og láta turn­inn á Smára­torgi, sem er í dag hæsta bygg­ing lands­ins, virka lít­inn í sam­an­burði.

Sá turn er 77,6 metra hár og 20 hæðir, en turn­inn í Glað­heima­hverf­inu, sem mun standa tölu­vert hærra í lands­lag­inu, á sam­kvæmt skipu­lag­inu að verða 25 hæðir og allt að 114,9 metrar. Það er þó tölu­vert lægri turn en áætlað var að byggja í upp­hafi, en í núgild­andi skipu­lagi hverf­is­ins sem er frá 2009, er ráð­gert að byggja 32 hæða turn undir atvinnu­starf­semi og þjón­ustu.

Turninn verður að sjálf­sögðu lang­hæsta húsið í Glað­heima­hverf­inu, sem þó verður háreist, en áætlað er að íbúð­ar­hús­næði í hverf­inu verði á bil­inu 5-12 hæðir, en að atvinnu­hús­næði verði að mestu á 3-5 hæðum. Fyrir utan auð­vitað turn­inn háa, sem mun sam­kvæmt skipu­lag­inu standa nyrst á upp­bygg­ing­ar­svæð­inu, næst Bæj­ar­lind og alveg upp við Reykja­nes­braut­ina.

Íbúabyggð bætt við í nýju skipulagi

Alls er áætlað að um 730 manns muni búa innan svæð­is­ins í fram­tíð­inni í 270 íbúðum, en ekki er gert ráð fyrir íbúa­byggð í núgild­andi skipu­lagi, heldur ein­ungis atvinnu­hús­næði. Heild­ar­bygg­inga­magn á svæð­inu verður sam­kvæmt nýja skipu­lag­inu um 132.000 fer­metrar, en þar af er ráð­gert að um 40.000 fer­metrar verði í nið­ur­gröfnum bíla­kjöll­urum.[links]

Bæj­ar­stjórn Kópavogs sam­þykkti að setja deiliskipu­lagið í kynn­ingu á fundi sínum 9. júní síð­ast­lið­inn, en áður hafi bæj­ar­ráð fjallað um málið 7. maí og skipu­lags­ráð bæj­ar­ins tekið skipu­lag hverf­is­ins fyrir þann 4. maí. Frestur til þess að gera athuga­semdir við skipu­lagið rennur út 19. ágúst.

Verk­fræði­stofan Mannvit vann minn­is­blað þar sem umhverf­is­á­hrif af upp­bygg­ing­unni voru metin, meðal ann­ars með hlið­sjón af skugga­varpi frá fyr­ir­hug­aðri upp­bygg­ingu. Þau áhrif voru metin nei­kvæð, en óveru­leg, en sam­kvæmt myndum sem Mannvit dró upp af ætl­uðu skugga­varp mun skuggi frá turn­inum leggj­ast yfir allar akreinar Reykja­nes­brautar um hádeg­is­bil í mars­mán­uði.

Samkvæmt nýju skipu­lagi er gert ráð fyrir því að atvinnu­hús­næðið standi nær Reykja­nes­braut­inni, en að ofar í hæð­inni nær Linda­hverfi verði íbúa­byggð og grænn bæj­ar­garður, auk leik­skóla.

Nánar má kynna sér fyr­ir­hug­aðar deiliskipu­lags­breyt­ingar á vef Kópa­vogs­bæjar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár