Ljóti lúxusturninn

Á Carlsberg-svæð­inu í Kaup­manna­höfn stendur ný 100 metra há bygg­ing. Átti að verða sú flottasta í borg­inni en þykir for­ljót. Illa gengur að selja fok­dýrar íbúð­irnar og það sem verra er, klæð­ingin á hús­inu skapar stór­hættu.

Fyrsti turninn sem hefur verið fullkláraður á Carlsberg-svæðinu er kenndur við eðlisfræðinginn Niels Bohr.
Fyrsti turn­inn sem hefur verið full­klár­aður á Carlsberg-svæð­inu er kenndur við eðl­is­fræð­ing­inn Niels Bohr. Mynd: Carlsberg Byen

Síðan danskt efna­hags­líf fór að taka við sér í kjöl­far krepp­unnar eftir banka­hrunið 2008 hefur mikið verið byggt í Kaup­manna­höfn. Ekki veitir af því mik­ill skortur er á íbúð­ar­hús­næði í borg­inni. Það er reyndar ekki nýtil­komið ástand, hefur verið við­var­andi í ára­tugi. Einkum skortir litlar og með­al­stórar íbúðir sem ungt og efna­m­inna fólk ræður við að kaupa, eða leigja. 

Borg­ar­stjór­arnir (þeir eru sjö í Kaup­manna­höfn) tala iðu­lega um að þennan vanda þurfi að leysa, en orðum þurfa að fylgja athafnir. Í les­enda­bréfum og aðsendum greinum í dönskum fjöl­miðlum má iðu­lega lesa að í þeim efnum skorti nokkuð á.

[adspot]

Á allra síð­ustu árum hefur mikið verið byggt á svæðum þar sem áður var ýmis konar iðn­aðar- og verk­smiðju­starf­semi. Við strönd­ina á Amager hefur á fáum árum orðið til nýtt hverfi, sömu sögu er að segja um Norð­ur­höfn­ina þar sem Tuborg og fleiri stór­fyr­ir­tæki voru áður. Á Íslands­bryggju og í Suð­ur­höfn­inni hefur á síð­ustu árum verið mikið byggt og þar eru þús­undir nýrra íbúða. Sama gildir um vest­ur­hluta Amager, þar hefur sprottið upp nýtt hverfi, blokkir og rað­hús.

Þessi svæði eiga það nær öll sam­eig­in­legt að íbúð­irnar eru ekki það sem kalla má „ódýrar“.

Carlsberg-svæðið

Eitt nýju bygg­ing­ar­svæð­anna er Carlsberg-hverfið svo­nefnda í suð­vest­ur­hluta Kaup­manna­hafnar. Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða svæðið þar sem Carlsberg verk­smiðj­urnar voru frá stofnun fyr­ir­tæk­is­ins árið 1847 til árs­ins 2008 þegar fram­leiðslan var flutt til Fredericia á Jótlandi. Mörg önnur fyr­ir­tæki voru á þessu svæði sem er sam­tals 33 hekt­arar á stærð en þau hafa öll flutt á brott eða hætt starf­semi.

Í mynd­band­inu hér að neðan má sjá fyr­ir­hug­aða upp­bygg­ingu á svæð­inu.

Níu turnar

Meðal þeirra bygg­inga sem gert hefur verið ráð fyrir á Carlsberg-svæð­inu eru níu turnar, mis­háir. Sá hæsti verður 120 metrar á hæð en þeir lægstu 50 metrar. Þessum turn­bygg­ingum verður, ef áætl­anir stand­ast, lokið árið 2024. Turn­arnir eiga allir að bera nöfn og sömu­leiðis er ætl­unin að vegg­klæðn­ingar þeirra verði í mis­mun­andi litum. Einn verði gulur, annar grá­leitur og svo fram­vegis.

Bohrs-turninn

Fyrstur þess­ara níu turna sem fyr­ir­hug­aðir eru á Carlsberg-reitnum, og sá eini sem er full­klár­aður, ber nafn hins þekkta eðl­is­fræð­ings Niels Bohr. Bohrs-turn­inn. Byggingu hans var lokið árið 2017. Hann er 100 metrar á hæð, 29 hæðir. Á nokkrum neðstu hæð­unum eru, eða verða, fyr­ir­tæki og enn­fremur skóli, en á þeim efri íbúðir, 88 tals­ins.

Í dönskum fjöl­miðlum var all­mikið fjallað um þessar fyr­ir­hug­uðu turn­bygg­ingar og Carlsberg-reit­inn. Þarna yrði allt gert með vönd­uðum hætti, turn­arnir yrðu þeir glæsi­leg­ustu, og hæstu, sem sést hefðu í Kaup­manna­höfn. Pasteurs-turn­inn sem á að vera full­gerður árið 2022 verður þeirra hæstur, mun skaga 120 metra upp í loftið. Þegar íbúð­irnar í Bohrs-turn­inum voru aug­lýstar var full­yrt að annar eins lúxus hefði aldrei sést í Kaup­manna­höfn.

Verðið var hins vegar ekki við alþýðu hæfi, eins og stundum er sagt, ódýr­ustu íbúð­irnar kosta 6,6 millj­ónir króna (136 millj­ónir íslenskar) en þær dýr­ustu 14 millj­ónir (290 millj­ónir íslenskar). Þetta eru miklir pen­ingar og hafi þeir sem stóðu að bygg­ing­unni ímyndað sér að sleg­ist yrði um íbúð­irnar hafa þeir ugg­laust orðið fyrir von­brigðum. Salan var strax frá upp­hafi mjög treg og þegar þetta er skrifað, þremur árum eftir að húsið var full­gert, eru enn margar íbúðir óseldar.

Meðal ljótustu bygginga í Kaupmannahöfn

Þeir sem fjalla um bygg­inga­list í dönskum fjöl­miðlum hafa ekki sparað stóru orðin varð­andi Bohrs-turn­inn. Þeir eru sam­mála um að bygg­ingin sé að flestu leyti mis­heppnuð. Þetta sé fer­kant­aður risa­kassi sem skagi upp í loftið, hlið­arnar stein­dauðir fletir, sem ekki minnsta til­raun sé gerð til að brjóta upp. Allar íbúð­irnar hafi glugga í tvær áttir, fyrir horn, þannig að hvergi sé gegn­umbirta. Þetta sé mik­ill galli. „Auðvitað skiptir það ekki máli fyrir aðra en þá sem búa í hús­inu hvort inni sé bjart eða ekki en mjög margir borg­ar­búar hafa þennan 100 metra háa kassa fyrir aug­unum, og sú sjón er ekki fögur,“ sagði blaða­maður Politi­ken í umfjöllum sinni og blaða­maður Berl­ingske tal­aði á sömu nótum.

Útveggjaplöturnar

Um aldaraðir var múr­steinn aðal bygg­ing­ar­efni danskrar húsa­gerðar, þeir upp­götv­uðu aldrei dásemdir báru­járns­ins! Á síð­ari árum hafa komið á mark­að­inn ýmis efni sem notuð eru til vegg­klæðn­inga þótt múr­steinn­inn standi alltaf fyrir sínu. Í dag eru for­steyptar veggja­ein­ingar algengar með ein­angrun að utan og svo eins konar vind- og regnkápu yst.

Ein gerð þess­ara klæðn­inga eru svo­nefndar MGO-plötur. Þegar þær komu á mark­að­inn í Danmörku árið 2010 þóttu þær hafa ýmsa kosti, þær voru ódýrar og léttar og þess vegna auð­veldar í með­förum. Plöt­urnar, sem fram­leiddar eru í Kína, er hægt að fá í ýmsum litum, þykktir og stærðir mis­mun­andi, allt eftir óskum kaup­and­ans. Og þær brenna ekki. En það fylgdi bögg­ull skamm­rifi.

Rakadrægar

Eins og áður sagði komu MGO-plöt­urnar á mark­að­inn í Danmörku árið 2010. Og urðu strax vin­sælar til útveggja­klæðn­inga. Árið 2013 fór fólk að veita því athygli að engu var lík­ara en plöt­urnar „grétu“ eftir úrkomu­tíð. Það er að segja raki perl­aði á plöt­unum. Nú fóru í hönd miklar rann­sóknir. Og nið­ur­staðan var ekki bein­línis jákvæð. Í ljós kom að MGO-plöt­urnar, sem inni­halda mikið salt­efni, eru mjög raka­drægar sem ekki getur talist heppi­legt í löndum þar sem úrkomu gætir. Sökum þess að þær soga í sig rak­ann ger­ist tvennt: bak við plöt­urnar mynd­ast auð­veld­lega mygla og í öðru lagi lin­ast plöt­urnar og missa styrk sinn og geta þess vegna auð­veld­lega molnað. 

Eftir að þessar nið­ur­stöður lágu fyrir árið 2015 var notkun MGO-platn­anna, sem utan­húss­klæðn­ingar, að mestu hætt í Danmörku en þá höfðu þús­undir húsa þegar verið klædd með þessum plötum. Mörg mál vegna notk­unar MGO hafa ratað fyrir dóm­stóla, þar sem deilt hefur verið um ábyrgð.

Klæðningin á Bohrs-turninum

Fyrir skömmu fóru ein­hverjir að veita því athygli að rifur voru komnar í klæðn­ing­una á Bohrs-turn­inum. Skömmu síðar fund­ust smá bútar úr klæðn­ing­unni á gang­stétt skammt frá turn­inum. Þá var farið að rann­saka málið og í ljós kom að víða á turn­inum eru rifur í klæðn­ing­unni. Fyr­ir­tækið sem sá um útveggja­klæðn­ing­una neitar því að not­aðar hafi verið MGO-plötur en ekki hefur þegar þetta er ritað feng­ist úr því skorið hvaða efni er í útveggja­klæðn­ing­unni.

[adspot]

Öryggisráðstafanir

Nokkurt svæði umhverfis Bohrs-turn­inn hefur nú verið girt af og íbúar turns­ins og þeir sem þar vinna og stunda nám hvattir til að gæta ítr­ustu var­úðar. Sér­fræð­ingur sem dag­blaðið Berl­ingske ræddi við sagði að það þyrfti ekki flókna útreikn­inga til að finna út hvað ger­ast myndi ef bútur á stærð við far­síma kæmi fljúg­andi úr 50 -60 metra hæð í höfuð manns sem stæði á gang­stétt við turn­inn.

Framhaldið

Eigendur turns­ins hafa lýst því yfir að þeir muni leita réttar síns varð­andi klæðn­ing­una. Hvort endir­inn verði sá að fjar­lægja þurfi útveggja­klæðn­ing­una af þessu hund­rað metra háa húsi er á þess­ari stundu óljóst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár