Þrjár konur vinsælustu ráðherrarnir á Íslandi

Ný könnun sýnir sterka stöðu þriggja kvenna sem sitja í rík­is­stjórn lands­ins, og umtals­verðar óvin­sældir hinna tveggja kvenn­anna sem þar hafa setið. Hún sýnir líka að í tveimur til­vikum eru vara­for­menn stjórn­ar­flokka vin­sælli en for­menn­irnir.

Í vik­unni birti Maskína könnun þar sem mæld var ánægja og óánægja með störf þeirra ráð­herra sem sitja í þeirri rík­is­stjórn sem nú er við völd.

[links]Athygli vekur að þeir þrír ráð­herrar sem mest ánægja er með eru allt konur, ein frá hverjum stjórn­ar­flokki. Hinar tvær kon­urnar sem setið hafa í rík­is­stjórn­inni eru hins vegar á meðal óvin­sæl­ustu ráð­herr­anna.

Þá sýnir könn­unin að hjá tveimur stjórn­ar­flokkum er mun meiri ánægja með störf vara­for­manna þeirra en þá sem leiða flokk­anna. Eini flokks­for­mað­ur­inn sem nýtur mestra vin­sælda af ráð­herrum síns flokks er Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra.

Stjarna Lilju rís hratt

Mest er ánægjan með Lilju Dögg Alfreðs­dóttur, vara­for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Alls segj­ast 67,6 pró­sent aðspurðra vera ánægðir með störf hennar. Hún er líka sá ráð­herra sem minnst óánægja er með, en 9,6 pró­sent sögð­ust ekki ánægðir með störf Lilju.

[adspot]Lilja hefur látið tölu­vert til sín taka frá því að hún sett­ist í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið. Hún hefur meðal ann­ars látið vinna nýja aðgerð­ar­á­ætlun til að fjölga kenn­urum, kynnt frum­varp um stuðn­ing stjórn­valda við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla, unnið að nýju stuðn­ings­kerfið fyrir náms­menn og látið auka sam­an­tekt á hag­tölum svo hægt sé að greina hvort að speki­leki sé frá Íslandi.

Lilja var einnig ein þeirra sem varð hvað mest fyrir barð­inu á drykkju­tali sex þing­manna á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber. Viðbrögð hennar við því sem um hana var sagt vöktu mikla athygli og mælt­ust afar vel fyrir. Í við­tali við Kastljós 5. des­em­ber 2018 var hún mjög afger­andi í afstöðu sinni gagn­vart fram­ferði Klaust­ur­fólks­ins., sagði tal þeirra vera „algjört ofbeldi“ og að hún væri „ofboðs­lega“ ósátt við það. Lilja sagði enn fremur að „ofbeld­is­menn hafa ekki dag­skrár­vald í íslensku sam­fé­lagi“.

Það stendur líka upp úr í könn­un­inni að Lilja er lang­vin­sæl­asti ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins. Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður flokks hennar, mælist með 27,8 pró­sent ánægju og Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, með enn minni, eða 22,3 pró­sent. Óánægja með störf þeirra er auk þess mun meiri en með störf Lilju.

Í könnun Maskínu kemur fram að ánægja með störf Lilju aukast hjá stuðn­ings­mönnum allar flokka nema eins. Hjá stuðn­ings­mönnum Mið­flokks­ins, klofn­ings­flokks úr Framsókn undir for­ystu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, hefur ánægjan dalað. Líklega má rekja það að hluta til Klaust­ur­máls­ins, en fjórir helstu þing­menn hans voru í aðal­hlut­verki í því máli. Það er óneit­an­lega athygl­is­vert að rúm­lega helm­ingur kjós­enda Flokks fólks­ins, Pírata og Sam­fylk­ingar, sem sitja í stjórn­ar­and­stöðu, eru ánægðir með störf Lilju. Hjá Viðreisn er ánægjan enn meiri, en 85,8 pró­sent. Það er meiri ánægja en hjá kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks, sem þó situr í stjórn með Framsókn.

Á meðal Fram­sókn­ar­manna nýtur Lilja þó 100 pró­sent stuðn­ings, og er eini ráð­herr­ann þar sem allir kjós­endur ákveð­ins flokks segj­ast ánægðir með störf hans. Þannig segj­ast ein­ungis 76,9 pró­sent kjós­enda Fram­sóknar ánægðir með störf for­manns síns, Sigurðar Inga, og 34,7 pró­sent þeirra eru ánægðir með Ásmund Einar.

Þórdís vinsælli en Bjarni

Næst vin­sæl­asti ráð­herr­ann er Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Hún tók nýverið við stjórn­ar­taumunum í dóms­mála­ráðu­neyt­inu til við­bótar við emb­ætti ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra.

Þórdís er yngsti ráð­herr­ann í rík­is­stjórn lands­ins – verður 32 ára í lok árs – og þykir einna lík­leg­ust til að verða næsti for­maður Sjálf­stæð­is­flokks þegar Bjarni Bene­dikts­son ákveður að stiga til hliðar, sem alls óljóst er hvort verður í náinni fram­tíð. Hann hefur raunar sagt það nýlega að hann sé ekki far­inn að hugsa um að hætta. Litlar sem engar líkur eru á að ein­hver skori Bjarna á hólm.

Þórdís hefur á sínum herðum helstu efna­hags­stoð íslensk efna­hags­lífs, ferða­þjón­ust­una, og hefur auk þess þurft að há flókna bar­áttu innan flokks og utan vegna þriðja orku­pakk­ans svo­kall­aða.

Alls segj­ast 43,2 pró­sent lands­manna vera ánægð með störf hennar og 19 pró­sent vera óánægð. Þar eru skilin milli ánægju kjós­enda stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu þó mun skýr­ari með þeirri einu und­an­tekn­ingu að rúm­lega tveir af hverjum þremur kjós­endum Við­reisnar eru ánægðir með Þórdísi.

[adspot]Einungis kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks eru ánægð­ari með hana en Við­reisn­ar­fólkið. Á meðal þeirra eru hins vegar 87,5 pró­sent aðspurðra ánægðir með Þórdísi en 81 pró­sent segj­ast vera ánægðir með Bjarna, for­mann flokks­ins.

Sá sem oft­ast er nefndur sem lík­legur mót­fram­bjóð­andi Þórdísar í for­manns­slag fram­tíð­ar­innar innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra, siglir nokkuð lygnan sjó sam­kvæmt könn­un­inni, og þriðji hver þátt­tak­andi sagð­ist ánægður með hans störf en rúm­lega fjórði hver lýsti yfir óánægju. Innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins segj­ast 80,1 pró­sent vera ánægðir með störf hans.

Forsætisráðherra með varnarsigur

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur lengi notið mik­illar lýð­hylli þvert á flokka. Í könnun sem gerð var árið 2015 naut hún mest trausts alls for­ystu­fólks í stjórn­málum. Sex af hverjum tíu sögð­ust treysta henni. Ýmsar kann­anir sem gerðar voru fyrir til­urð sitj­andi rík­is­stjórnar sýndu einnig að flestir Íslend­ingar vildu Katrínu sem for­sæt­is­ráð­herra. Í maí 2016 gerði Frétta­blaðið meira að segja skoð­ana­könnun um með hvaða stjórn­mála­menn lands­menn myndu helst vilja búa með og þar var Katrín einnig hlut­skörpust. Alls vildu 13 pró­sent aðspurðra búa með Katrínu.

Skömmu áður hafði Stundin gert skoð­ana­könnun um hvaða Íslend­ing þjóðin vildi helst sem for­seta. Þar mæld­ist Katrín með mestan stuðn­ing allra sem komust á blað.

Viðbúið var að umdeilt stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn myndi hafa áhrif á vin­sældir Katrínar, bæði innan flokks og utan. Samt sem áður er hún sá ráð­herra sem er í þriðja sæti yfir þá sem mest ánægja með, en 38,6 pró­sent lands­manna segj­ast vera það með störf Katrínar. Hún er hins vegar umdeild­ari en flestir ráð­herrar líkt og oft vill verða með leið­toga rík­is­stjórna og þegar kemur að hinni hlið­inni þá eru nán­ast jafn margir, eða 34,4 pró­sent, óánægðir með Katrínu.

Í sam­an­burði við hina tvo stjórn­ar­leið­tog­anna, Bjarna Bene­dikts­son og Sigurð Inga Jóhanns­son, er staða Katrínar þó ansi sterk. Um fjórð­ungur aðspurðra var ánægður með þeirra störf og Bjarni er auk þess að glíma við að vera sá ráð­herra sem næst mest óánægja er með, á eftir Sigríði Á. Andersen. Alls sögð­ust 51,6 pró­sent aðspurðra í könnun Maskínu vera óánægð með störf Bjarna.

Fleiri óánægðir með Svandísi en ánægðir

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra er sá kvenn­ráð­herra sem enn situr í rík­is­stjórn sem nýtur minnstrar hylli hjá lands­mönnum. Ólíkt hinum sitj­andi kvenn­ráð­herrum þá eru fleiri óánægðir með Svandísi en ánægðir. Einungis Sigríður Á. Andersen, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, og Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, mæl­ast óvin­sælli en Svandís. Alls seg­ist ein­ungis fimmt­ungur aðspurðra vera ánægð með hana.

Þegar kemur að óánægju er staðan aðeins skárri. Þá bæt­ist Bjarni Bene­dikts­son við þá tvo flokks­fé­laga sína, Sigríði og Kristján Þór, sem sitja í þremur efstu sætum óánægju­list­ans. En þar á eftir kemur Svandís.

Líkast til spilar inn í að Svandís situr í einu erf­ið­asta ráðu­neyt­inu og því fjár­frekasta. Heil­brigð­is­mál eru ofar­lega á baugi í íslenskum stjórn­málum og erfitt að gera öllum til geðs. En Svandís er sann­ar­lega umdeild og hefur meðal ann­ars tekið harða afstöðu gegn auknum einka­rekstri í heil­brigð­is­málum. Hinir tveir ráð­herrar Vinstri grænna, Katrín Jak­obs­dóttir og Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, mæl­ast með mun betri ánægju­tölur en Svandís og mun færri eru líka óánægðir með störf þeirra. Um þriðj­ungur aðspurðra er til að mynda ánægður með Guðmund en fjórð­ungur óánægður.

[adspot]Hún hefur líka talað opin­skátt um rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og sagði meðal ann­ars í sjón­varps­þætti Kjarnans fyrir rúmu ári að hún væri þeirrar skoð­unar að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi ráðið allt of miklu á Íslandi allt of miklu allt of lengi. „Ég var mjög efins um þessa leið, að vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum og fara svona þvert yfir. En ég er algjör­lega sann­færð um það núna að þetta var mjög góð hug­mynd[...]Mér finnst við pínu­lítið skulda Íslend­ingum að reyna þetta. Auð­vitað er það þannig að undir slíkum kring­um­stæðum erum við ekki að fara fram með ítr­ustu póli­tísku sýn Vinstri grænna. Og heldur ekki ítr­ustu póli­tísku sýn sjálf­stæð­is­manna. En á sama tíma verð ég ekki sjálf­stæð­is­mað­ur. Og Bjarni [Bene­dikts­son] verður mjög seint Vinstri grænn.“

Það kemur enda í ljósi að Sjálf­stæð­is­menn eru síst ánægðir með störf hennar af öllum ráð­herrum í rík­is­stjórn, en ein­ungis 19,1 þeirra segj­ast ánægðir með Svandísi. Að sama skapi sögð­ust 51,6 pró­sent þeirra vera ánægðir með hana. Það mæld­ist meiri ánægja, og minni óánægja, með störf Svan­dísar á meðal kjós­enda stjórn­ar­and­stöðu­flokks­ins Sam­fylk­ingar en á meðal Sjálf­stæð­is­manna.

Sigríður í sérflokki

Sigríður Á. Andersen sagði af sér sem dóms­mála­ráð­herra 13. mars vegna nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Land­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða. Það gerði hún ekki af fúsum og frjálsum vilja, enda hafði Sigríður sagt í við­tölum dag­inn áður en hún sagði af sér, að það kæmi ekki til greina.

Heim­ildir Kjarnans herma hins vegar að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hafi gert Bjarna Bene­dikts­syni og Sigurði Inga Jóhanns­syni ljóst að Sigríður gæti ekki setið áfram að hennar mati. Þeim skila­boðum þyrfti að koma skýrt til hennar. Þegar Katrín fór á þing­flokks­fund síðar saman þennan dag lá enn ekki skýrt fyrir hvort Sigríður ætl­aði að segja af sér eða ekki. Samkvæmt við­mæl­endum Kjarnans innan úr Vinstri grænum kom til greina að slíta stjórn­ar­sam­starfi ef Sigríður yrði ekki látin víkja.

Klukkan 13:49 síð­degis mið­viku­dag­inn 13. mars var boðað til blaða­manna­fundar í dóms­mála­ráðu­neyti sem skyldi hefj­ast 41 mín­útu síðar. Þar flutti Sigríður nokkuð sam­heng­is­lausa ræðu sem vakti mikla furðu á meðal ýmissa innan rík­is­stjórn­ar­sam­starfs­ins. Þegar leið á ræð­una kom í ljósi að dóms­mála­ráð­herr­ann ætl­aði að stíga til hliðar sem ráð­herra á meðan að verið væri að fjalla meira um Lands­rétt­ar­málið og vinna úr þeirri stöðu sem upp var komin. Hún hefði skynjað að hennar per­sóna kynni að hafa trufl­andi áhrif á frek­ari með­ferð máls­ins.

Svo virt­ist sem Sigríður teldi ráð­stöf­un­ina tíma­bundna, en slíkt gengur þó ekki upp sam­kvæmt stjórn­skipun lands­ins. Ráðherra getur ekki vikið tíma­bundið, heldur segir af sér og fer úr rík­is­stjórn. Það hefur Sigríður nú gert.

[adspot]Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir bætti við sig dóms­mála­ráðu­neyt­inu um stund í kjöl­farið. Fyrir liggur þó að nýr dóms­mála­ráð­herra verður skip­aður. Heim­ildir Kjarnans herma að Sigríður sæki það fast að snúa aftur þótt að ekk­ert hafi annað gerst í Lands­rétt­ar­mál­inu frá afsögn hennar utan þess að stjórn­völd hafa ákveðið að láta reyna á hvort efri deild Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins vilji taka málið fyrir.

Könnun Maskínu sýnir að Sigríður nýtur ekki mik­illar hylli hjá almenn­ingi. Hún er sá ráð­herra þeirrar rík­is­stjórnar sem setið hefur á þessu kjör­tíma­bili sem fæstir eru ánægðir með 13,8 pró­sent, og lang­flestir óánægðir með, 65,8 pró­sent. Auk þess er hún sá ráð­herra sem flestir höfðu fast­mót­aða skoðun á. Þ.e. hlut­fall þeirra sem voru hvorki ánægðir né óánægir með Sigríði var lægst allra ráð­herra. Þegar skoðað er ein­ungis þeir sem taka afstöðu í könn­un­inni er nið­ur­staðan sú að tæp­lega 83 pró­sent voru óánægðir með störf Sigríðar.

Óvin­sældir Sigríðar eru ekki nýtil­komnar. Í könnun sem Maskína gerði fyrir Stundina í febr­úar í fyrra kom fram að 72,5 pró­sent lands­manna vildu að hún myndi segja af sér emb­ætti vegna Lands­rétt­ar­máls­ins.

End­ur­koma hennar í rík­is­stjórn verður því að telj­ast afar lang­sótt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár