Hefur lengi verið þeirrar skoðunar að Sjálfstæðisflokkurinn ráði of miklu

Heil­brigð­is­ráð­herra var mjög efins um stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokki. Í dag er hún sann­færð um að það hafi verið góð hug­mynd. Hún seg­ist þó enn þeirrar skoð­unar að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi ráðið of miklu á Íslandi.

„Ég hef lengi verið þeirrar skoð­unar að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi ráðið allt of miklu á Íslandi. Hafi ráðið allt of miklu allt of lengi. Ég er ennþá þeirrar skoð­unar,“ segir Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra og þing­maður Vinstri grænna. Svandís situr í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur sem sam­anstendur af Vinstri grænum, Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki. Hún er gestur sjón­varps­þáttar Kjarnans sem frum­sýndur er á Hring­braut í kvöld klukkan 21. Hægt er að horfa á stiklu úr þætti kvölds­ins í spil­ar­anum hér að ofan.

Í þætti kvölds­ins ræðir Svandís vítt og breitt um heil­brigð­is­mál, hvers sé að vænta í þeim mála­flokki á kom­andi miss­erum og hverjar helstu áherslur hennar sem ráð­herra verða.

Svandís ræðir líka hið póli­tíska lands­lag og þá óvenju­legu stöðu sem er uppi að flokk­ur­inn sem er lengst til vinstri í íslenskum stjórn­málum sitji í rík­is­stjórn með flokknum sem stað­setji sig lengst til hægri.

Svandís segir rík­is­stjórn­ar­sam­starfið ganga merki­lega vel en við­ur­kennir að þetta sé stórfurðu­leg póli­tísk staða. „Ég, og við vinstri menn, höfum fyrst fremst litið á okkur sem and­stæð­inga Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Það er af ástæðu. Það er vegna þess að við erum hvort á sínum end­anum á hinu póli­tíska lit­rófi.“

Hún telur að sam­fé­lags­legt og póli­tískt lands­lag á Íslandi, sem við hafi verið að glíma eftir hrun, hafi kallað á nýjar lausnir. „Ég var mjög efins um þessa leið, að vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum og fara svona þvert yfir. En ég er algjör­lega sann­færð um það núna að þetta var mjög góð hug­mynd[...]Mér finnst við pínu­lítið skulda Íslend­ingum að reyna þetta. Auðvitað er það þannig að undir slíkum kring­um­stæðum erum við ekki að fara fram með ítr­ustu póli­tísku sýn Vinstri grænna. Og heldur ekki ítr­ustu póli­tísku sýn sjálf­stæð­is­manna. En á sama tíma verð ég ekki sjálf­stæð­is­maður. Og Bjarni [Bene­dikts­son] verður mjög seint Vinstri grænn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár