Repúblikanar hafa vaxandi áhyggjur af framgöngu Trumps

Vaxandi áhyggjur eru innan raða Repúblikana­flokks­ins af því að fram­ganga Trumps, meðal ann­ars á blaða­manna­fundum vegna heims­far­ald­urs­ins, gæti orðið til þess flokk­ur­inn missi meiri­hluta sinn í öld­unga­deild þings­ins í haust.

Donald Trump Bandaríkjaforseti á blaðamannafundi í Hvíta húsinu.
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti á blaða­manna­fundi í Hvíta hús­inu. Mynd: EPA

Nýlegar skoð­ana­kann­anir í Banda­ríkj­unum hafa valdið áhyggjum í röðum repúblik­ana, sem ótt­ast að fram­ganga Donalds Trump for­seta, meðal ann­ars á dag­legum blaða­manna­fundum vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar, sé farin að hafa slík áhrif að hætta sé á að flokk­ur­inn tapi ekki ein­ungis for­seta­emb­ætt­inu til Demókra­ta­flokks­ins í haust, heldur líka öld­unga­deild þings­ins.

Fjallað var um þetta á vef New York Times um helg­ina, en þar sagði líka að hörmu­legar efna­hags­horfur í Banda­ríkj­unum, þar sem 26 millj­ónir manna hafa sótt um atvinnu­leys­is­bætur síð­asta rúman mán­uð­inn, væru að kippa stoð­unum undan vonum Trumps um end­ur­kjör.

Haft er eftir Glen Bolger, sem hefur lengi verið Repúblikana­flokknum til ráð­gjafar í kosn­inga­bar­áttum, að áætl­anir um að heyja kosn­inga­bar­átt­una í haust á grund­velli góðrar stöðu í efna­hags­málum væru nú alfarið úr sög­unni.

For­set­inn hefur farið mik­inn á Twitter und­an­farna daga, eins og svo oft áður. Hann hefur sér­stak­lega látið til skarar skríða gegn fjöl­miðla­fólki, sem hann segir að sé ósann­gjarnt og flytji af honum ósannar sögur. Hann hefur líka mært sjálfan sig og frammi­stöðu sína í for­seta­emb­ætt­inu und­an­farnar vikur, miss­eri og ár.

Á sunnu­dag sagð­ist hann senni­lega hafa gert meira á þremur og hálfu ári í emb­ætti en nokkur annar for­seti, í tístum sem virt­ust vera beint svar við grein sem New York Times birti síð­asta fimmtu­dag. Fyr­ir­sögn grein­ar­innar var „Aleinn heima í Hvíta hús­inu: Svekktur for­seti með stöðugan félags­skap af sjón­varp­inu“ og þar var vitnað til aðstoð­ar­manna for­set­ans sem lýstu því hvernig dagar hans byrj­uðu með sjón­varps­glápi eldsnemma á morgn­ana og end­uðu með því líka.

For­set­anum var lýst sem döprum, í ein­angrun sinni heima við, nú þegar golf­spil og fjölda­fundir með stuðn­ings­mönnum eru ekki á döf­inni vegna anna og sótt­varna­ráð­staf­ana.

Sagt var frá því að for­set­inn hefði sívax­andi áhyggjur af því hvernig fjöl­miðlar fjöll­uðu um hann, nú væri staðan jafn­vel orðin sú að á frétta­stöð­inni Fox væru þátta­stjórn­endur, að hans mati, byrj­aðir að fjalla um hann á óvin­veittan hátt.

Var ánægður með blaðamannafundina

En það var þó ljós í myrkr­inu, sam­kvæmt aðstoð­ar­fólki for­set­ans, nefni­lega blaða­manna­fundir Hvíta húss­ins um veiru­far­ald­ur­inn, sem Trump hefur notað til þess að ávarpa banda­rísku þjóð­ina und­an­farnar vikur.

Þar fannst for­set­anum hann skína skært og blaða­manna­fund­anna hlakk­aði hann til, sam­kvæmt því sem haft er eftir aðstoð­ar­mönnum hans í grein Times. Hann hefur sjálfur hreykt sér af því að blaða­manna­fund­irnir fái gríð­ar­mikið áhorf, en eftir harða gagn­rýni og háðs­glósur sem hann fékk fyrir ummæli sín á einum slíkum á fimmtu­dag gaf hann það út að blaða­manna­fund­irnir væru ekki verð­ugir þess að hann eyddi tíma sínum í þá.

Á fimmtu­dag velti hann því upp, eins og frægt varð, að læknar ættu að skoða hvort mögu­lega væri hægt að nota sótt­hreinsi­efni eða útfjólu­bláa geisla til þess að vinna bug á veirunni. Hann veitti aðeins stutt ávarp og svar­aði engum spurn­ingum fjöl­miðla­fólks á föstu­dag og kom svo ekki fram á blaða­manna­fundum á hvorki laug­ar­dag né sunnu­dag.

Á sunnu­dag lét hann þó mikið fyrir sér fara á Twitter og vakti það athygli að hann virt­ist meðal ann­ars rugla Pulitzer-verð­laun­unum, sem veitt eru fyrir blaða­mennsku vest­an­hafs, við Nóbels­verð­launin, í röð tísta þar sem hann sagði meðal ann­ars rétt­ast að lög­sækja fjöl­miðla fyrir svik og fals­fréttir. Tístunum eyddi hann síðar og sagði svo að um „kald­hæðni“ hefði verið að ræða af hans hálfu.

Trump sagði, í tísti í gær­morgun, að aldrei í sög­unni hefðu fjöl­miðlar verið mein­yrt­ari né fjand­sam­legri og end­ur­tók enn á ný að „fals­fréttir“ væru „óvinur fólks­ins!“

Trump var svo á ný mættur á blaða­manna­fund í gær­kvöldi, sem skipu­lagður var með skömmum fyr­ir­vara. Eflaust varð það ein­hverjum repúblikan­anum til mæðu að sjá Trump snúa aftur í sviðs­ljósið, en í grein New York Times er haft eftir ónefndum öld­unga­deild­ar­þing­manni flokks­ins að dag­legar fram­komur Trumps á fund­unum væru orðnar svo pín­legar að hann gæti ekki horft á þær lengur.

Þá var haft eftir nokkrum nafn­greindum kjörnum full­trúum flokks­ins að for­set­inn gæti vandað skila­boð sín til þjóð­ar­innar betur og haft þau ögn hnit­mið­aðri. Ýmsir hafa mælst til þess að Trump tak­marki óbeisluð ræðu­höld sín á fund­unum.

Ari Fleischer, sem var fjöl­miðla­full­trúi Hvíta húss­ins þegar George W. Bush fór þar með lykla­völdin, segir að það að vera í pontu í meira en þrjá­tíu mín­útur sé eins og að vera á barnum eftir klukkan tvö á nótt­unni.

„Allt það góða er senni­lega búið að ger­ast nú þegar og það eina sem á eftir að ske verður slæmt. Svo drífðu þig af barnum – eða af svið­inu eftir um 30 mín­útur,“ ráð­lagði hann Trump í sam­tali við New York Times í gær.

Þurfi að snúast meira um Biden en Trump

Skoð­ana­kann­anir sýna að stuðn­ingur við for­set­ann fer minnk­andi meðal almenn­ings og að demókrat­inn Joe Biden myndi hafa betur í nær öllum þeim ríkjum þar sem telj­andi sam­keppni verður um kjör­menn­ina í haust.

Nýlegar kann­anir sýna einnig að öld­unga­deild­ar­þing­menn Repúblikana­flokks­ins í Arizona, Colorado, Norður-Karólínu og Maine eiga á hættu á að missa sæti sitt. Það myndi, að öðru óbreyttu, þýða að flokk­ur­inn missti meiri­hluta sinn í öld­unga­deild­inni.

Sumir repúblikanar telja að til þess að flokk­ur­inn eigi að eiga mögu­leika á að ná vopnum sínum þurfi Trump að stíga úr sviðs­ljós­inu og láta bar­átt­una snú­ast meira um að finna högg­stað á Joe Biden, sem hefur látið til­tölu­lega lítið fyrir sér fara síðan að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn braust út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár