Froskaflækjur

Froskar hafa sig að jafn­aði lítt í frammi og vilja helst fá að vera í friði með sitt kvakk. Þetta litla dýr veldur nú miklum deilum í Kaup­manna­höfn, þótt það hafi ekki annað til saka unnið en að vera til.

Stóra salamandra, svokölluð, verður um 10-16 sentimetrar á lengd. Vegna þessa litla dýrs eru fyrirætlanir um uppbyggingu húsnæðis á Amager fælled í Kaupmannahöfn í uppnámi.
Stóra salamandra, svokölluð, verður um 10-16 senti­metrar á lengd. Vegna þessa litla dýrs eru fyr­ir­ætl­anir um upp­bygg­ingu hús­næðis á Amager fælled í Kaup­manna­höfn í upp­námi. Mynd: Danmarks Naturfredsforening

Það er gangur í „bygg­inga­brans­anum“ í Kaup­manna­höfn. Og veitir ekki af, íbúum fjölgar ár frá ári. Í borg­inni er mikið um hús­næði sem ekki upp­fyllir kröfur nútím­ans enda komið til ára sinna. Á und­an­förnum árum hefur fjöldi húsa, í eldri hverfum borg­ar­innar, verið rif­inn og ný komið í stað­inn. Í nýjum húsum sem byggð hafa verið í stað þeirra eldri eru íbúð­irnar í mörgum til­vikum stærri og betri en jafn­framt færri. Þess konar end­ur­bygg­ing leysir því ekki hús­næð­is­vand­ann, meira þarf til.

Takmarkað landrými

Landrými til nýbygg­inga í Kaup­manna­höfn , sem ekki hefur þegar verið nýtt, er tak­markað. Á hafn­ar­svæð­unum, sem ekki eru lengur í notkun, Suð­ur­höfn­inni, Norð­ur­höfn­inni og Íslands­bryggju hefur mikið verið byggt á síð­ustu árum, sömu­leiðis Sví­þjóð­ar­megin á Amager (við Amager strand) og í Ørestad. Þessi svæði verða brátt full­byggð og því þarf að leita nýrra leiða. Eitt svæði sem horft hefur verið til sem hugs­an­legs nýbygg­inga­svæðis er á norð­vest­ur­hluta Amager, Amager fælled, en nánar verður vikið að því svæði síðar.

Fimmtíu ára Kaupmannahafnarplanið

Í októ­ber 2018 und­ir­rit­uðu Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra og Frank Jensen yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar sam­komu­lag ríkis og borgar um upp­bygg­ingu á 200 hekt­ara svæði við hafn­ar­mynni Kaup­manna­hafnar. Svæðið sem fengið hefur nafnið Lynettehol­men teng­ist Refs­haleøen, fyrrum athafna­svæði Burmeister & Wain skipa­smíða­stöðv­ar­innar. Lynettehol­men verður land­fyll­ing, allt efnið þarf að flytja að. Gert er ráð fyrir um það bil 20 þús­und íbúðum og hluti eyj­unnar er jafn­framt ætl­aður fyr­ir­tækjum. Við und­ir­skrift­ina, með til­heyr­andi handa­bandi, sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann að ef allt gengi eftir yrði verk­efn­inu lokið árið 2070. Jafn­framt er ætl­unin að byggja 15 þús­und nýjar íbúðir á Refs­haleøen.

Amager fælled

Eins og áður sagði hafði borg­ar­stjórn Kaup­manna­hafnar og skipu­lags­yf­ir­völd borg­ar­innar um nokk­urra ára skeið haft uppi áætl­anir um að selja bygg­inga­rétt á hluta Amager fælled. Svæðið sem um ræðir hefur lengi verið friðað og er óbyggt, fyrir utan eitt all­stórt far­hug­la­heim­ili sem hefur verið þarna um ára­tuga­skeið. Sam­komu­lag náð­ist um það í borg­ar­stjórn Kaup­manna­hafnar árið 2019 að aflétta friðun á hluta Amager fælled, í því skyni að leyfa að þar yrði byggt, og selja bygg­inga­rétt­inn. Danska þingið, Fol­ket­inget, sam­þykkti líka aflétt­ingu frið­unar.

Andvirði söl­unnar á bygg­inga­væð­inu yrði notað til að fjár­magna frek­ari upp­bygg­ingu lesta­kerf­is­ins (Metro). Fyr­ir­ætl­anir borg­ar­stjórnar um söl­una mættu frá upp­hafi mik­illi and­stöðu, tug­þús­undir skrif­uðu undir mót­mæla­skjöl, nátt­úr­vernd­ar­sam­tök lýstu mik­illi and­stöðu við ákvarð­anir borg­ar­stjórnar en það breytti engu, gengið var frá sölu svæð­is­ins. Samtökin Amager Fælleds Venner lögðu ekki árar í bát en stefndu borg­inni til að reyna að hindra bygg­inga­á­formin. Til að unnt yrði að höfða mál þurftu sam­tökin að leggja fram trygg­ingu, 2 millj­ónir danskra króna (um 40 millj­ónir íslenskar). Þeim pen­ingum var safnað á tveimur dögum og í ágúst sl. voru fram­kvæmdir sem hafnar voru (jarð­vegs­vinna) stöðv­aðar, eftir úrskurð Bæj­ar­réttar. Skrifari þessa pistils var í Kaup­manna­höfn fyrir skömmu og sá að á Amager fælled var allt stopp. Nokkur stór vinnu­tæki stóðu á hinu fyr­ir­hug­aða bygg­inga­svæði, það var allt og sumt. Ekki er ljóst hvert fram­haldið verður en málið er nú hjá sér­stakri úrskurð­ar­nefnd Atvinnu­mála­ráðu­neyt­is­ins. Búist er við nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar í jan­úar 2022.

Á hverju strandaði?

Nú má spyrja, er borg­inni ekki heim­ilt að breyta skipu­lagi og er hægt að koma í veg fyrir það, si svona?

Því er til að svara að lögin um nátt­úru­vernd eru mjög afdrátt­ar­laus. Samkvæmt þeim er ein­ungis hægt að aflétta friðun til­tek­ins svæðis ef brýn sam­fé­lags­leg nauð­syn krefur. Hvort um slíkt hafi verið að ræða í til­viki Amager fælled er umdeil­an­legt. En það var annað sem þarna spil­aði inn í og vó þyngra: salamandra­frosk­ur­inn.

Alfriðuð tegund

Lengi hefur verið vitað að á til­teknu svæði á Amager fælled er að finna sjald­gæfa teg­und froska. Nánar til­tekið eitt afbrigði svo­kall­aðrar stóru sala­möndru, sem er þrátt fyrir nafnið lítil. Þetta til­tekna afbrigði er alfriðað og sam­kvæmt sam­þykktum Evr­ópu­sam­bands­ins, sem Danmörk hefur skuld­bundið sig til að hlíta, er strang­lega bannað að raska búsetu­skil­yrðum frið­aðra dýra. Það er þetta sem nú hefur stöðvað bygg­inga­á­formin á Amager fælled. Borgin, og bygg­inga­verk­tak­inn, sem keypti landið, segja að hægt sé að flytja sala­möndr­urnar á annað svæði, þar sem þær fái að vera í friði, en nátt­úru­vernd­ar­sinnar gefa lítið fyrir þær yfir­lýs­ingar. En, eins og er una sala­möndr­urnar vænt­an­lega glaðar við sitt, enda vita þær ekk­ert um ósætti í mann­heimum.

Grænblettafroskarnir

Eftir und­ir­skrift danska for­sæt­is­ráð­herr­ans og yfir­borg­ar­stjóra Kaup­manna­hafnar um að hrinda úr vör „fimm­tíu ára áætl­un­inni“ hófst und­ir­bún­ingur þess sem nefnt er Lynetteholm verk­efnið. Eins og áður var á minnst verða hekt­ar­arnir 200 „til­búið land“, það er að segja land­fyll­ing. Ljóst er að þetta stóra verk­efni veldur margs konar raski á svæðum í nágrenn­inu. Mikil umferð stórra vöru­bíla, bygg­inga­krana og alls kyns vinnu­véla dag út og dag inn árum saman er fyr­ir­séð. Náttúru- og dýra­vernd­ar­sam­tök hafa bent á að á svæð­inu í nágrenni hinnar fyr­ir­hug­uðu land­fyll­ingar sé fjöl­breytt dýra­líf. Meðal ann­ars sé þar að finna sjald­gæfa teg­und froska, svo­nefnda græn­bletta­froska (grøn­broged tudse). Þessi froska­teg­und er alfriðuð.

Í skýrslu sem ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Rambøll vann fyrir dönsku umferð­ar­stof­una, Trafik­styrel­sen, er minnst á græn­bletta­frosk­ana. Nið­ur­staða Rambøll var að á síð­ustu árum hafi ekki fund­ist græn­bletta­froskar á svæðum í nágrenni hins fyr­ir­hug­aða bygg­inga­svæðis. Þess vegna þyrfti ekki að meta áhrif fram­kvæmda á froska og aðrar skyldar dýra­teg­undir. Þessi nið­ur­staða kom dýra­vernd­un­ar­sinnum á óvart, þeir segja vitað að umrædd svæði séu búsvæði margra dýra­teg­unda, ekki síst hinna frið­uðu græn­bletta­froska. Í skýrslu sem ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Amphi Consult vann fyrir dönsku nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin kemur fram að miklar líkur séu á að fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir raski við­kvæmu dýra­lífi á svæð­inu.

Íhuga málshöfðun

Þegar ágrein­ingur rís vegna skipu­lags- og fram­kvæmda er i flestum til­vikum hægt að skjóta þeim ágrein­ingi til úrskurð­ar­nefnda. Þannig var það t.d með Amager fælled málið. En hvað varðar Lynettehol­men er slíkum mögu­leika ekki til að dreifa. Ástæðan er sú að danska þingið sam­þykkti sér­lög varð­andi þetta stóra verk­efni og það und­an­skilur það lögum um áfrýjun. Dönsku nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin hafa sent sam­göngu­nefnd þings­ins sér­staka beiðni um að málið verði skoðað sér­stak­lega en hafa jafn­framt íhugað máls­sókn.

Lögin gilda fyrir alla

Í við­tali við dag­blaðið Politi­ken sagði Ellen Margrethe Basse pró­fessor í umhverf­is­rétti við Árósa­há­skóla að lögin væru skýr. Ef græn­bletta­froska er að finna á fram­kvæmda­svæðum skal meta áhrif fyr­ir­hug­aðra fram­kvæmda. ,,Það er skylt að tryggja öryggi græn­bletta­froskanna, það stendur skýrum stöfum í nátt­úru­vernd­ar­til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins. Sú til­skipun gildir líka fyrir danska þingið.“

Fyr­ir­hugað er að fram­kvæmdir við Lynettehol­men hefj­ist á næsta ári. Hvort sú verður raunin er of snemmt að segja til um.

Kvakk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár