Pólska ríkisstjórnin styrkir ítök í dómstólum

Ný lög tóku í gildi í Póllandi í gær sem eykur vald rík­is­stjórn­ar­innar yfir dóm­stólum lands­ins, en laga­breyt­ing­arnar hafa mætt mik­illi and­stöðu.

Malgorzata Gersdorf, forseti hæstaréttar Póllands
Malgorzata Gersdorf, for­seti hæsta­réttar Póllands Mynd: EPA

Þingmenn rík­is­stjórnar Póllands hrundu af stað laga­breyt­ingum um mið­nætti í gær sem leiðir til upp­sagnar 27 af 72 hæsta­rétt­ar­dóm­urum lands­ins. Laga­breyt­ing­unum var mætt með mót­mælum í meira en 60 bæjum um allt landið í gær­kvöldi og í dag hafn­aði einn frá­far­andi dóm­ar­anna ákvörð­un­inni með því að mæta í hæsta­rétt. Frá þessu er greint á Reuters og New York Times.

Í frétt­unum er greint frá laga­breyt­ingum rík­is­stjórn­ar­innar, en litið er á þær sem liður í her­ferð stjórn­ar­flokks­ins Laga-og rétt­lætis (PiS), gegn sjálf­stæði dóms­kerf­is­ins þar í landi. Eftir að hafa kom­ist til valda árið 2015 tók flokk­ur­inn yfir stjórn­ar­skrár­dóm­stól lands­ins og fól dóms­mála­ráð­herra vald yfir sak­sóknurum lands­ins. Nýlega hefur PiS svo gefið sér vald til að velja nýja dóm­ara og lækk­uðu svo eft­ir­launa­aldur þeirra niður í 65 ára.

Lækkun eft­ir­launa­ald­urs­ins, sem tók gildi um mið­nætti í gær, leiddi til þess að 27 af 72 hæstar­rétt­ar­dóm­urum Póllands voru neyddir til að segja af sér. Dóm­ar­arnir geta þó fengið und­an­þágu frá lög­unum frá Andrzej Duda, for­seta lands­ins, sem er hlið­hollur PiS.

Reuters greindi svo frá því að einn umræddra dóm­ara, Malgorzata Gersdorf, mætti til vinnu í hæsta­rétt í dag og hafn­aði þar með nýju laga­setn­ing­unni. Gersdorf, sem hefur verið for­seti hæsta­rétts­ins síðan 2014, segir laga­setn­ing­una brjóta í bága við ákvæði stjórn­ar­skrár Póllands og geti því ekki tekið gildi.

Samkvæmt frétt Reuters hefur laga­setn­ingin ein­angrað Pólland innan ESB. Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins ákærði pólsku rík­is­stjórn­ina vegna breyt­ing­anna síð­ast­lið­inn mánu­dag, en í ákærunni eru þær sagðar draga úr sjálf­stæði dóm­stóla þar í landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár