Sænska bolluinnrásin

Danir hafa sjaldn­ast litið upp til Svía þegar kemur að mat­ar­gerð. Þess vegna kemur það kannski mörgum spánskt fyrir sjónir að sænskar bollu­dags­bollur eiga vax­andi vin­sældum að fagna meðal Dana.

Semlur seljast sem heitar lummur í þeim dönsku bakaríum sem hafa þær á boðstólum.
Semlur selj­ast sem heitar lummur í þeim dönsku bak­ar­íum sem hafa þær á boðstólum. Mynd: Flickr - gesternumdiesezei

Svíar eru óum­deil­an­lega stór­þjóðin í hópi Norð­ur­land­anna. Þeir eru fjöl­menn­astir, Volvoinn er sænskur eins og Gustavs­berg og Abba. Svo er það IKEA og Astrid Lindgren, Stig Larsson og Ingmar Bergman. Allt þetta og ótal­margt annað sam­ein­ast í þessu nor­ræna stór­veldi: Svíþjóð. Danir með H.C Andersen, Arne Jacobsen og Mads Mikk­el­sen, Norðmenn með Edvard Munch, Henrik Ibsen og Hol­men­kollen, Finn­arnir með Jean Sibelius, Kalevala og Múmínálf­ana og við Íslend­ingar með Halldór Laxness, Björk og Sigurrós, höfum ekki roð við Svíum. Þeir eru stærstir og mestir okkar í norðr­inu.

Svíar og orðsporið

Á einu sviði eru Svíar þó ekki óum­deildir Norð­ur­landa­meist­arar, þeir hafa sjaldan verið taldir sér­stakir snill­ingar á sviði mat­ar­gerðar. Margir Íslend­ingar sem dvalist hafa í Svíþjóð, einkum kannski sem náms­menn, þekkja vel korv, sænsku pyls­una. Korv var á 18. öld kallað fátækra­matur, ástæðan sú að pyls­urnar voru ódýrar. Uppi­staðan í pyls­unum, sem oft­ast eru reyktar, er hakkað kjöt, iðu­lega feitt. Efnaðra fólk vildi sjaldn­ast leggja sér korv til munns og það orð­spor fylgdi pyls­unum lengi.

Í upp­skrifta­bók sem notuð var í höll Svía­kon­ungs á löngum valda­tíma Gustavs V, 1907- 1950, eru 400 upp­skriftir, meðal þeirra er engin sem gerir ráð fyrir korv. Í könnun sem gerð var árið 1976 kom fram að korv væri mun oftar á borðum lág­launa­fólks en þeirra betur laun­uðu. En korv er ekki bara eitt­hvað eitt, til eru fjöl­margar bækur fyrir þá sem vilja spreyta sig á pylsu­gerð­inni og enn fleiri upp­skrifta­bækur.

Hér á undan var nefnt að Svíar hafi ekki verið taldir til snill­inga í mat­ar­gerð. Það er vita­skuld alhæf­ing. Í Stokk­hólmi eru til dæmis 13 svo­nefndir Michelin veit­inga­staðir, staðir sem kom­ast á blað í þekkt­ustu bók í heimi, á sínu sviði: Michelin Guide. Þótt sú bók sé ekki óbrigðul er hún leið­ar­vísir og veit­inga­staðir sem hljóta náð fyrir augum Michelin hreykja sér af því í aug­lýs­ingum. Við Íslend­ingar getum ekki hreykt okkur hátt í þessum efnum, höfum ein­ungis einu sinni kom­ist á blað í stjörnu­gjöf Michelin.

Derringur í Dönum

Danir gera gjarna grín að Svíum þegar talið berst að mat og mat­ar­gerð. Fussa og sveia yfir sænska korvinu sem að þeirra mati stenst ekki sam­an­burð við dönsku pyls­urnar, og súr­síld­inni (sur­strömn­ing) fúlsa þeir við. Sænsku kjöt­boll­urnar segja Danir ekki jafn­ast á við hinar dönsku frika­deller, að maður nefni nú ekki smur­brauðið. Það jafn­ast ein­fald­lega ekk­ert á við ekta danskt „smør­rebrød“, að mati Dana sjálfra.

Hér skal eng­inn dómur lagður á slíkt, en svo mikið er víst að þegar minnst er á danskan mat eru það pyls­urnar, pur­u­steikin og smur­brauðið sem fyrst kemur upp í hug­ann. Danir telja sig sem sagt lítið þurfa til ann­arra að sækja þegar matur er ann­ars vegar.

Bolla bolla

Í bók­inni „Kogebog for smaa Hus­holdn­inger“ sem kom út árið 1837, og er sögð fyrsta mat­reiðslu­bók sem út kom í Danmörku, ætluð almenn­ingi er upp­skrift að því sem höf­undur kall­aði „fastelavns­boller“. Hráefnið í þessum bollum er hveiti, rús­ínur, app­el­sínu­börkur, kar­dimommur og creme (eins og það er orðað). Orðið fastelavn þýðir föstu­inn­gangur, en upp­haf föst­unnar sjálfrar mið­að­ist við mið­viku­dag 40 dögum fyrir páska (á ösku­degi).

Föstu­inn­gang­ur­inn, fastelavn, er sem sé mánu­dagur, bollu­dagur. Siðurinn að baka brauð í til­efni dags­ins, fastelavns­boller, er tal­inn hafa borist til Dan­merkur frá Þýska­landi og svo frá Dönum til Íslands, seint á 19. öld. Hér á landi voru boll­urnar upp­haf­lega kall­aðar langa­föstu­snúðar. Þegar séra Matthías Jochumsson þýddi „Sögur her­lækn­is­ins“ eftir Zacharias Topelius um alda­mótin 1900 kall­aði hann boll­urnar föstu­inn­gangs­snúða. Fróðlegt væri að vita hvaða svar feng­ist í bak­ar­íum nútím­ans ef beðið væri um slíkt brauð­meti!

Bollur í tugþúsundatali

Ann­rík­inu í kringum „jóla­ver­tíð­ina“ hjá dönskum bök­urum var varla farið að linna þegar und­ir­bún­ingur næsta ann­rík­is­tíma­bils „bollu­ver­tíð­ar­innar“ hófst. Þótt fastelavn, bollu­dag­ur­inn, sé ekki fyrr en á morgun (15.2.) er boll­u­salan löngu hafin. Eins og iðu­lega í kringum fastelavn er tals­vert fjallað um bollur, mis­mun­andi teg­undir og tísku­strauma í „bollu­brans­anum“ í dönskum fjöl­miðlum.

Bakarar sem danskir fjöl­miðlar hafa tekið tali segja að boll­u­salan í ár sé langtum meiri en nokkru sinni fyrr. Engar skýr­ingar kunna þeir á þess­ari miklu aukn­ingu en benda á að salan hafi á und­an­förnum árum auk­ist jafnt og þétt en ekk­ert í lík­ingu við það sem nú stefni í.

Bakari í litlu bak­aríi í Kaup­manna­höfn sagð­ist í við­tali við Danska útvarpið DR eig­in­lega ekki geta bakað annað en bollur þessa dag­ana og suma daga hafi hann selt næstum 3 þús­und bollur. Hann bjóst við við selja rúm­lega 50 þús­und bollur á meðan „ver­tíðin“ stendur yfir.

Fjölmörg afbrigði

Úrvalið af bollum í dönskum bak­ar­íum er fjöl­breytt, og eykst stöðugt. Í grófum dráttum má skipta boll­unum í þrjá flokka: vatns­deigs­bollur, ger­bollur og smjör­deigs­bollur. Úrvalið af kremi og rjóma sem boll­urnar eru fylltar með, ásamt sultu, er fjöl­breytt og svo er spurn­ing um glassúr súkkulaði eða eitt­hvað annað á topp­inn.

Svo eru það þær sænsku

Eins og fyrr var nefnt er bollu­úr­valið í dönskum bak­ar­íum stöðugt að aukast og bak­arar reyna sífellt að koma með nýj­ungar, þótt þær séu flestar í kringum sama stefið ef svo mætti segja. Það nýjasta á þessu sviði er hins vegar aðeins öðru­vísi. Á allra síð­ustu árum er nefni­lega kom­inn sænskur gestur í bollu­boðið. Sá heitir Semla.

Semlan er ger­deigs­bolla, hol að innan. Þar skal setja blöndu af brauði sem skafið er innan úr boll­unni, marsip­ani, flór­sykri, smá­vegis mjólk og kar­dimommu. En alls ekki sultu. Ofan á þetta kemur svo þeyttur rjómi og lokið af boll­unni efst. Lokið er svo notað eins og skeið til þess að borða rjómann og sem mest a blönd­unni áður­nefndu. Það sem þá er eftir er svo borðað eins og „hånd­mad“, það er að segja ekki með hníf og gaffli. Sænskur semlu sér­fræð­ingur var spurður hvort maður gæti ekki borðað seml­una eins og maður væri með ham­borg­ara á milli hand­anna. Sá sænski sagði jú það væri vissu­lega hægt en slíkt gera bara við­van­ingar sem ekki kunna sig að þessu leyti.

Þegar spurt var hver væri helsti mun­ur­inn á semlu og þeim bollum sem Danir eru vanir var svarið það að dönsku boll­urnar væru klessu­legri, deigið inni­héldi meira smjör og væri þar af leið­andi feit­ara.

Eftirsóttar

Enn sem komið er eru seml­urnar ekki fáan­legar í öllum dönskum bak­ar­íum og kannski langt í að það verði. En þar sem seml­urnar eru fáan­legar selj­ast þær eins og heitar lummur, eins og sagt er. Bakari á Aust­ur­brú í Kaup­manna­höfn, sem bakað hefur semlur í nokkur ár, sagði í við­tali að salan væri sífellt að aukast. Enn þá væru ein­ungis fá bak­arí sem væru með seml­urnar til sölu en með vax­andi vin­sældum myndi það breyt­ast. Þegar bak­ar­inn var spurður hvort það væru ekki bara Svíar í Kaup­manna­höfn sem kæmu til að kaupa seml­urnar svar­aði hann því til að hann hefði athugað það sér­stak­lega en sér sýnd­ist þetta fyrst og fremst vera Danir.

Fyrir þá sem vilja spreyta sig á semlu­bakstri fylgir hér hlekkur á eina semlu­upp­skrift:

https://www.dr.dk/mad/opskrift/semlor-svensk-fastelavnsbolle

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár