Segja stjórnvöld vera að „auka stórkostlega völd sín yfir opinberum starfsmönnum“

Kenn­ara­sam­bandið leggst alfarið gegn því að frum­varp dóms­mála­ráð­herra um borg­ara­lega skyldu opin­berra starfs­manna verði að lögum. Það telur frum­varpið inni­halda heim­ild til ótíma­bærar og van­hugs­aðar beit­ingu valds.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra lagði frumvarpið fram í gær.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra lagði frum­varpið fram í gær. Mynd: Bára Huld Beck

Kenn­ara­sam­band Íslands (KÍ) leggst alfarið gegn því að frum­varp Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra um borg­ara­lega skyldu starfs­manna opin­berra aðila verði sam­þykkt óbreytt. Það telur að þegar hættu­á­stand sé geti skap­ast öfl­ugur hvati fyrir stjórn­mála­menn að ganga lengra en rétt­læt­an­legt sé til að mæta þeirri ógn sem að stafar. Með frum­varp­inu séu stjórn­völd að auka stór­kost­lega völd sín yfir opin­berum starfs­mönnum.

Í frum­varp­inu, sem var lagt fram á mánu­dag og til stendur að afgreiða hratt, felst að tryggja á laga­grund­völl fyrir heim­ild opin­berra aðila til að færa starfs­menn til í starfi á hættu­stundu. Opin­berir aðilar sam­kvæmt því eru ríki, sveit­ar­fé­lög og fyr­ir­tæki í þeirra eigu. Tilefni þess er sagt vera það að á hættu­stundu sé „mik­il­vægt að opin­berir aðilar hafi svig­rúm til þess að nýta mannauð sinn í þau verk­efni sem njóta for­gangs hverju sinni. Þá geta starfs­skyldur, starfs­að­stæður og starfs­stöðvar starfs­manna þurft að taka tíma­bundnum breyt­ingum[...]Und­an­farið hafa opin­berir aðilar mark­visst unnið að upp­færslu á við­bragðs­á­ætl­unum meðal ann­ars vegna snjó­flóða­hættu, eld­gosa­hættu og far­sótt­ar­innar COVID-19. Í mörgum við­bragðs­á­ætl­unum er tekið fram að heim­ilt sé að færa fólk milli starfa til að sinna verk­efnum sem hafa for­gang á hættu­stundu. Við þá vinnu hefur komið í ljós að nauð­syn­legt er að tryggja laga­grund­völl fyrir heim­ild opin­berra aðila til að færa starfs­menn til í starfi eftir þörfum. Slík heim­ild þarf að vera til staðar óháð efni við­bragðs­á­ætl­ana þar sem taka þarf ákvarð­anir hratt og örugg­lega á hættu­stundu.“

Hafa áhyggjur af öflugum hvata til að ganga of langt

Í umsögn Kenn­ara­sam­bands­ins um frum­varpið segir að þegar hættu­á­stand skap­ist geti skap­ast öfl­ugur hvati fyrir stjórn­mála­menn að ganga lengra en rétt­læt­an­legt sé til að mæta þeirri ógn sem að stafar. „Við fyrstu sýn fær KÍ ekki séð að ógnin sem stafar af COVID-19 sé þess eðlis að ábyrg stjórn­völd geti ekki mætt henni innan ramma núgild­andi laga. Það kann að vera ein­fald­ara og ódýr­ara að haga við­brögðum stjórn­valda við COVID-19 fáist rúmar vald­heim­ildir umfram það sem nú er. Það er hins­vegar ekk­ert ein­falt eða ódýrt við grund­vall­ar­rétt- og skyldur.“

[adspot]Í umsögn Kenn­ara­sam­bands­ins, sem Ragnar Þór Pét­urs­son for­maður þess skrifar undir, segir að mörgum spurn­ingum sé enn ósvarað í mál­inu.

Öllum tak­mörk­unum á frelsi fólks, jafnt á neyð­ar­tímum og öðrum, þurfi að setja skýrar skorður. Ýmsar vald­heim­ildir séu í lögum um almanna­varnir sem tak­marki grund­vall­ar­rétt­indi borg­ar­anna eða afnema jafn­vel með öllu. Þannig geti fólk verið kvatt til starfa eða krafið um að láta af hendi eigur sínar vegna hættu­á­stands.

Margar þeirra spurn­inga sem vakni upp séu því mjög alvar­legar og það hafi mikla eft­ir­mála sé ekki tekið til­lit til þeirra áður en fram­kvæmd á grund­velli laga­breyt­ingar sem þeirrar sem lögð er til verður að veru­leika. „Að sinni verður ekki lagt mat á það að hvaða leyti sveigj­an­leiki starfa á hættu­tímum skuli vera við­fangs­efni laga um almanna­varnir og að hvaða leyti við­fangs­efni ann­arra laga og kjara­samn­inga. Það er þó óneit­an­lega óheppi­legt, svo ekki sé fastar að orði kveðið, að stjórn­völd hygg­ist auka stór­kost­lega völd sín yfir opin­berum starfs­mönnum á sama tíma og þau virð­ast eiga í gríð­ar­legum erf­ið­leikum með kjara­samn­inga­gerð­ina.“

Ýmis félög styðja frumvarpið

Fleiri hafa skilað inn umsögnum um frum­varpið og eru ekki jafn nei­kvæðir, þótt varnaglar séu slegnir. BSRB seg­ist til að mynda ekki gera athuga­semdir við frum­varpið en telji þó rétt að árétta að það leggi „ ríka áherslu á að um neyð­ar­úr­ræði sé að ræða, sem komi ekki til nema brýna þörf krefji.“

Alþýðu­sam­band Íslands gerir ekki efn­is­legar athuga­semdir við frum­varpið en vekur athygli á að sam­kvæmt texta lag­anna og grein­ar­gerðar sé gert ráð fyrir því að starfs­menn skuli njóta óbreyttra launa­kjara við breyttar starfs­skyldur. „Hins vegar eru lögin og grein­ar­gerðin þögul um þá stöðu sem upp kann að koma sé starfs­manni gert skylt að sinna starfs­skyldum sem til­heyra starfi sem betur er launað skv. kjara­samn­ingum sem það starf sem hann var ráð­inn til. Taka þyrfti af allan vafa um túlkun lag­anna í þessu efni við þing­lega með­ferð máls­ins.“

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga, sem kom að samn­ingu frum­varps­ins ásamt dóms­mála­ráðu­neyt­inu, styður frum­varpið ein­dregið og segir í minn­is­blaði að þjóðin standi frammi fyrir nýjum veru­leika. Hann sé þannig að ekki sé hægt að sjá hann fyrir í kjara­samn­ingum eða lög­gjöf og því þurfi kerfið að vera sveigj­an­legt.

Lands­sam­tökin Þroska­hjálp lýsa yfir stuðn­ingi við frum­varpið og benda sér­stak­lega á mik­il­vægi þess gagn­vart þjón­ustu við fatlað fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár