8 milljarða hagnaður hjá Íslandsbanka

Íslands­banki hefur hagn­ast um 8 millj­arða á fyrstu sex mán­uði árs­ins. Horfur eru stöðugar hjá bank­anum, en útlán hafa auk­ist og van­skil minnkað.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka. Mynd: Kjarninn.

Íslands­banki hagn­að­ist um 8 millj­arða á fyrri árs­helm­ingi 2017. Samhliða því hefur útlána­starf­semi auk­ist tölu­vert og van­skila­hlut­fall minnkað á síð­ustu miss­erum. Þetta kemur fram í árs­helm­ings­upp­gjöri bank­ans sem birt var í morgun.

Af 8 millj­arða hagn­aði bank­ans voru 3 þeirra á fyrsta árs­fjórð­ungi og um 5 þeirra á öðrum árs­fjórð­ungi. Til sam­an­burðar hagn­að­ist bank­inn í fyrra um 3,5 millj­arða á fyrsta árs­fjórð­ungi og 9,5 millj­arða á öðrum árs­fjórð­ungi. Mikill hagn­aður á öðrum árs­fjórð­ungi í fyrra var að miklu leyti vegna ein­skipt­is­hagn­aðar af sölu Borgunar.

Hagn­að­ar­mis­ræmi vegna sölu Borgunar skil­aði sér einnig í arð­semi eigin fjár, en hún lækk­aði lít­il­lega úr 12,9% á fyrri árs­helm­ingi í fyrra niður í 9,2% í ár.

Þrátt fyrir minni hagnað og arð­semi eigin fjár má sjá jákvæða þróun innan bank­ans í hálfs­árs­upp­gjöri bank­ans, stjórn­un­ar­kostn­aður lækk­aði um 6% og vaxta­munur lækk­aði niður í 2,9%. Einnig juk­ust útlán til við­skipta­vina um 4,9%, þótt hreinar vaxta­tekjur hafi lækkað um 4% milli tíma­bila.

Mesta breyt­ingin milli tíma­bila hefur þó lík­lega verið hlut­fall van­skila, en það fór ört lækk­andi á síð­ustu árs­fjórð­ungum. Hlut­fallið var 1,2% á öðrum árs­fjórð­ungi í ár, sam­an­borið við 2,5% á sama tíma­bili í fyrra.

Í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins fylgdi yfir­lýs­ing frá Birnu Ein­ars­dóttur, banka­stjóra Íslands­banka, en þar segir hún fyrstu sex mán­uði árs­ins hafa verið við­burða­ríka. Góður gangur sé í fjár­fest­inga­banka­starf­semi og í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf. Einnig bætir hún við að flutn­ingar í nýjar höf­uð­stöðvar muni klár­ast í sept­em­ber, en bank­inn þurfti að flytja úr Kirkju­sandi nýlega sökum myglu­svepps.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár