Minnsta hækkun á fasteignamarkaðinum í tvö ár

Verð hækk­aði ein­ungis um 0,17 pró­sent í októ­ber sem er minnsta hækkun milli mán­aða frá því í júní 2015.

Raunverð fasteigna hefur hækkað nær stöðugt frá því í upphafi ársins 2013 en lækkar nú örlítið milli mánaða.
Raunverð fast­eigna hefur hækkað nær stöðugt frá því í upp­hafi árs­ins 2013 en lækkar nú örlítið milli mán­aða. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Verð hækk­aði ein­ungis um 0,17 pró­sent í októ­ber sem er minnsta hækkun milli mán­aða í rúm tvö ár eða frá því í júní 2015. Þar af hækk­aði verð á sér­býli um 0,3 pró­sent og verð á fjöl­býli um 0,1 pró­sent. Hækkanir frá fyrra ári eru á hraðri leið niður en eftir sem áður mjög miklar. Í gær birti Þjóðskrá Íslands tölur um fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í októ­ber og greint er frá því í Hagsjá Lands­bank­ans.

Samkvæmt tölum Þjóð­skrár hefur verð á fjöl­býli hækkað um 17 pró­sent á síð­ustu 12 mán­uðum og verð á sér­býli um 19 pró­sent. Heild­ar­hækk­unin nemur 17,6 pró­sent, sem er eilítið meira en í síð­asta mán­uði.

Fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um 4,5 pró­sent á síð­ustu sex mán­uðum en hækk­aði um 12,5 pró­sent næstu sex mán­uði þar á undan.

Segir enn­fremur í Hagsjá að raun­verð fast­eigna hafi hækkað nær stöðugt frá því í upp­hafi árs­ins 2013 en lækki nú örlítið milli mán­aða. Verð­bólga hefur verið lítil og stöðug síð­ustu miss­eri og því hefur raun­verð fast­eigna hækkað mun meira en ella. Að und­an­skildum hús­næð­is­kostn­aði hefur ríkt verð­hjöðnun í hag­kerf­inu frá því um mitt ár 2016. Vísitala neyslu­verðs án hús­næðis í nýliðnum októ­ber var þannig 2,3 pró­sent lægri en í októ­ber 2016. Raunverð fast­eigna hefur því hækkað um rúm 20 pró­sent á einu ári, frá októ­ber 2016 til októ­ber 2017.

Sé litið á fjölda við­skipta með íbúð­ar­hús­næði má sjá að þró­unin hefur verið mjög sveiflu­kennd á síð­ustu mán­uðum, greinir . Fjölda við­skipta með fjöl­býli hefur frekar fækkað allt frá því í nóv­em­ber 2016, þó með stökkum upp á við inn á milli, t.d. nú í októ­ber.

Tölur um fjölda við­skipta fyrir fjöl­býli eru þannig mun lægri en fyrir ári síðan.

Sé fjöldi við­skipta yfir lengri tíma skoð­aður má sjá að tími sam­fellds vaxtar milli ára er lið­inn, að minnsta kosti í bili. Sé með­al­fjöldi við­skipta á þessu ári bor­inn saman við sömu stærðir á síð­ustu árum má sjá að tölu­vert hefur dregið úr við­skiptum bæði með fjöl­býli og sér­býli, eða sem nemur rúmum níu pró­sentu­stigum.

Íbúðum til sölu fjölgar á þessu ári

Íbúðum til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur fjölgað nokkuð á þessu ári og magnið er nú svipað og það var á seinni hluta árs­ins 2015. Þá hefur sölu­tími fast­eigna einnig lengst. Hvort tveggja ætti að geta stuðlað að meiri ró á mark­aðnum, að mati hag­fræði­deildar Lands­bank­ans.

„Töluverð umræða hefur verið um mögu­lega kólnun fast­eigna­mark­að­ar­ins eftir að nokkuð dró úr verð­hækk­unum í sumar. Litlar hækk­anir áttu hins vegar ein­ungis við um fjöl­býli á þessum tíma; hækk­anir á sér­býli voru áfram miklar. Nú í októ­ber voru verð­hækk­anir litlar á bæði fjöl­býli og sér­býli sem styrkir þá skoðun að tíma­bili mik­illa verð­hækk­ana fast­eigna fari að linna,“ segir í grein­inni.

Jafn­framt segir að eftir sem áður beri að und­ir­stika að ætíð sé vara­samt að túlka breyt­ingar milli ein­stakra mán­aða. En sé litið yfir lengra tíma­bil nú, til dæmis með því að bera saman síð­ustu sex mán­uði og sex mán­uði þar á undan lítur út fyrir að tíma­bil hóf­legri verð­hækk­ana sé runnið upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár