Háskólinn tekur enga ábyrgð á aldursgreiningum flóttabarna

Vís­inda­siða­nefnd telur sig ekki geta fjallað um tann­grein­ingar á fylgd­ar­lausum börnum og ung­mennum sem fram­kvæmdar eru á tann­lækna­deild Háskóla Íslands þar sem eng­inn þjón­ustu­samn­ingur er í gildi vegna rann­sókn­anna.

Háskólinn eigi ekki aðild að aldursgreiningunum
Háskól­inn eigi ekki aðild að ald­urs­grein­ing­unum Röntgen­rann­sóknir á tönnum hæl­is­leit­enda fara fram við tann­lækna­deild Háskóla Íslands. Mynd: Kristinn Magnússon

Vís­inda­siða­nefnd Háskóla Íslands telur sig ekki hafa for­sendur til að fjalla efn­is­lega um tann­grein­ing­arnar sem fram fara á tann­lækna­deild Háskóla Íslands þar sem eng­inn samn­ingur er til milli Útlend­inga­stofn­unar og tann­lækna­deildar Háskóla Íslands er varða ald­urs­grein­ingar út frá tönnum. Þetta kemur fram í bréfi vís­inda­siða­nefndar til þriggja kvenna sem fóru fram á að nefndin tæki tann­grein­ing­arnar til umfjöll­unar.

Stundin spurð­ist fyrir um málið hjá Útlend­inga­stofnun en í svari frá stofn­un­inni kemur fram að Útlend­inga­stofnun hefur ekki samið við neinn um fram­kvæmd ald­urs­grein­inga á tönnum heldur keypt þá þjón­ustu í hvert og eitt skipti, hingað til af tann­lækn­unum Svend Richter og Sigríði Rósu Víð­is­dóttur, aðjúnkt við tann­lækna­deild HÍ.

„Þangað til á allra síð­ustu árum var mjög fátítt að Útlend­ingstofnun keypti þjón­ustu við ald­urs­grein­ingar. Á árunum 2012–2015 var um að ræða sex til­vik, tíu til­vik árið 2016 og 23 árið 2017. Öll aðkeypt þjón­usta Útlend­inga­stofn­unar er nú til skoð­unar með …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár