Gauti vill leiða Sjálfstæðisflokkinn í Norðausturkjördæmi

Frá því að Kristján Þór Júl­í­us­son greindi frá því á laug­ar­dag að hann ætl­aði sér að stíga til hliðar hafa tveir menn til­kynnt að þeir sæk­ist eftir odd­vita­sæti hans í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Gauti Jóhannesson.
Gauti Jóhann­es­son. Mynd: Aðsend

Gauti Jóhann­es­son, for­seti bæj­ar­stjórnar Múla­þings, ætlar að sækj­ast eftir því að leiða lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í kom­andi kosn­ingum.

[links]Áður hafði Njáll Trausti Frið­berts­son, þing­maður flokks­ins í kjör­dæm­inu, lýst því yfir að hann vilji odd­vita­sætið á list­anum, sem er að losna þar sem Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur ákveðið að hætta á þingi.

Kjarninn greindi frá því í jan­úar að Gauti væri að íhuga alvar­lega eftir því að sækj­ast eftir þing­sæti. Nú er sú ákvörðun orðin form­leg. Í til­kynn­ingu frá Gauta segir að hann telji að mik­il­vægt að þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins end­ur­spegli sem best kjör­dæmið allt, hafi ólíkan og fjöl­breyttan bak­grunn og inn­sýn í þau marg­breyti­legu við­fangs­efni sem við er að eiga hvort heldur það er í fjöl­menn­ustu þétt­býl­is­kjörn­unum eða dreif­býl­inu. „Í starfi mínu sem sveit­ar­stjóri síð­ast­liðin tíu ár, við mark­aðs­setn­ingu sjáv­ar­af­urða og þar áður sem skóla­stjóri hef ég aflað aflað fjöl­breyttrar og mik­il­vægrar reynslu sem ég tel að muni koma til góða nái ég kjöri.“

[adspot]Áherslur hans verði byggða- og atvinnu­mál í víðum skiln­ingi auk þess sem hann seg­ist tals­maður ein­föld­unar á reglu­verki. „Markmið Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi er að ná þremur þing­sætum í kosn­ing­unum í haust. Við eigum ekki að sætta okkur við minna. Til að það megi verða þurfum við öll að leggj­ast á eitt, halda á lofti þeim gildum og mál­efnum sem við stöndum fyrir og tala skýrt. Ég er til­bú­inn að leiða sjálf­stæð­is­fólk í Norð­aust­ur­kjör­dæmi á þeirri veg­ferð.“

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með tvo þing­menn í kjör­dæm­inu eins og er, þá Kristján Þór og Njál Trausta. Flokk­ur­inn fékk 20,3 pró­sent atkvæða þar haustið 2017 sem var tölu­vert undir heild­ar­kjör­fylgi hans sem var 25,2 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er samt sem áður stærsti flokk­ur­inn í Norð­aust­ur­kjör­dæmi eins og er þar sem hann fékk 88 atkvæðum meira en Vinstri græn þegar síð­ast var talið upp úr kjör­köss­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár