Yfir hundrað namibískir sjómenn í óvissu vegna Samherja

Namibískir sjó­menn sem starfa á skipi Samherja ótt­ast að þeir hafi misst vinn­una eftir að skipið yfir­gaf landið óvænt.

Yfir 120 namibískir sjó­menn sem starfa á skipi Samherja í Namibíu ótt­ast að þeir hafi misst vinn­una eftir að skipið yfir­gaf landið óvænt síð­ast­lið­inn mið­viku­dag. Frá þessu greinir The Namibian í dag.

[links]Samherji sendi frá sér til­kynn­ingu fyrr í jan­úar þar sem kom fram að fyr­ir­tækið segð­ist vera að draga úr starf­semi sinni í Namibíu með það að mark­miði að hætta alfarið rekstri í land­inu. Það væri hins vegar ljóst að það myndi taka ein­hvern tíma. „Allar ákvarð­anir vegna starf­sem­innar í Namibíu verða teknar í nánu sam­ráði við þar til bær stjórn­völd og í sam­ræmi við gild­andi lög og regl­ur,“ sagði í frétta­til­kynn­ing­unni.

Skipið sem um ræðir, Saga, er í eigu Saga Seafood og siglir undir merkjum Esju Seafood Limited, dótt­ur­fé­lags Samherja á Kýpur. Í frétt RÚV um málið kemur fram að skipið hafi um ára­bil veitt hrossa­makríl í lög­sögu Namibíu.

Samkvæmt The Namibian voru sjó­menn­irnir beðnir í gegnum sms að sækja eigur sínar á skipið fyrir síð­ast­lið­inn mið­viku­dag. Leonard Shinedima, einn skip­verj­inn á Sögu, sagði í sam­tali við mið­il­inn að þeim hefði verið greint frá því að fyr­ir­tækið hefði ekki fengið kvóta og væri því að senda skipið í við­gerð í Las Palmas á Kanarí­eyjum.

„Núna heyrum við að skipið eigi ekki aft­ur­kvæmt. Þeir not­uðu það ein­ungis sem afsökun að það væri að fara til í Las Palmas til þess að koma því frá Namibíu,“ sagði Shinedima við The Namibian. Starfs­menn fengu engar frek­ari upp­lýs­ingar um hversu lengi skipið muni vera í burtu né hvort þeir fái borgað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár