Kom heim frá Bretlandi vegna værukærra viðbragða við veirunni

Íslenskir náms­menn erlendis eru nú margir komnir heim eða að íhuga að koma heim vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar. Dokt­or­snemi í Bret­landi seg­ist vera kom­inn heim vegna væru­kærðar af hálfu bæði stjórn­valda og almenn­ings þar í landi.

Bjarki Þór Grönfeldt er doktorsnemi í stjórnmálasálfræði við University of Kent í Englandi.
Bjarki Þór Grön­feldt er dokt­or­snemi í stjórn­mála­sál­fræði við Uni­versity of Kent í Englandi. Mynd: Aðsend

„Ég kom heim á þriðju­dag­inn. Mér leist ekk­ert á þetta, hvernig bresk stjórn­völd voru að taka á málum þar í landi. Þeirra við­brögð ein­kenn­ast af rosa­lega mik­illi væru­kærð og seina­gangi og þau virð­ast ekki vera alveg í tengslum við raun­veru­leik­ann, alla­vega ekki þann raun­veru­leika sem önnur lönd skynja,“ segir Bjarki Þór Grön­feldt, dokt­or­snemi í stjórn­mála­sál­fræði við háskól­ann í Kent í Bret­landi, í sam­tali við Kjarnann.

Hann er einn fjöl­margra íslenskra náms­manna erlendis sem hafa orðið fyrir áhrifum af útbreiðslu kór­ónu­veirunnar. Margir þeirra eru komnir heim til Íslands. Veiran hefur mikil áhrif í skóla­kerf­inu eins og ann­ars staðar og Bjarki segir hóp tíu til fimmtán náms­manna í Bret­landi sem hann er reglu­lega í sam­skiptum við vera í svip­uðum sporum og hann sjálfur.

„Ég held að það séu meira og minna allir komnir heim, eða með plön um að fara heim,“ segir Bjarki, sem situr í stjórn SÍNE, Samtaka íslenskra náms­manna erlendis, um þennan hóp félaga sinna í breskum háskólum. „Ég ætl­aði bara að bíða og sjá, en þegar það varð ljóst í hádeg­inu á mánu­dag­inn að allir þeir fundir og annað slíkt sem ég átti að vera við­staddur á næstu vikum féllu niður ákvað ég að fljúga heim.“

„Keep calm and carry on“ eigi ekki við um þessa ógn

Hann seg­ist hafa orðið var við væru­kærð vegna veirunnar í Bret­landi, bæði af hálfu yfir­valda sem og almenn­ings. Í Bret­landi er þannig hálf­gerður „blitz spi­rit“ ríkj­andi, segir Bjarki, og vísar þar til þess æðru­leysis sem breskur almenn­ingur er sagður hafa sýnt þegar þýski flug­her­inn gerði loft­árás eftir loft­árás á breskar borgir snemma í síð­ari heims­styrj­öld. Fólk reyndi þá að halda lífi sínu gang­andi eins og venju­lega þrátt fyrir að ógn steðj­aði að, „bara „keep calm and carry on“, sem er kannski ekki alveg við­eig­andi þegar þú ert að eiga við ósýni­legan óvin,“ að mati Bjarka.

Bjarki seg­ist hafa orðið þess var að í Canterbury þar sem hann býr hafi krár enn verið þétt setnar skömmu áður en hann hélt heim á leið og það við­horf hafi heyrst ansi víða, sem hann hafi ekki heyrt hér á landi, að stjórn­völd væru að gera of mikið veður út af veirunni. Skilaboð um að við­hafa faðm­flótta (e. social distancing) hafi ekki náð eyrum allra.

Á sama tíma hefðu bresk stjórn­völd verið að gera lítið í sam­an­burði við nágranna­þjóð­irnar á meg­in­landi Evrópu. Grunn­skólar lands­ins lok­uðu þó í gær um óákveð­inn tíma og börum og veit­inga­stöðum hefur einnig verið skipað að loka, frá og með deg­inum í dag. Aukinn þungi er þannig að fær­ast í við­brögð breskra yfir­valda núna.

Háskól­arnir fengu þó engin mið­læg skila­boð um að loka, þó að allir séu þeir nú búnir að færa kennsl­una alfarið yfir á netið. En það var hverjum og einum skóla í sjálfs­vald sett. Bjarki segir að ýmis­legt virð­ist spila inn í þá ákvarð­ana­töku, þannig hafa verið nærri mán­að­ar­löng verk­föll í breskum háskólum á önn­inni til þessa og stjórn­endur viljað reyna að halda skól­unum opnum eins lengi og hægt væri af þeim sökum, svo önnin færi ekki alveg í vaskinn. Breska háskóla­kerfið sé enda mjög pen­inga­drifið.

„Ég er hepp­inn, mitt nám er svo sem bara rann­sóknir, þannig að ég get sinnt því þannig séð hvar sem er ef ég kem mér upp aðstöðu til að lesa og skrifa, en þetta horfir allt öðru­vísi við þeim sem eru í verk­legu námi og þurfa að sækja tíma. Hver og einn skóli verður bara að taka á því og ég veit að þetta er meira og minna allt í upp­námi, öll próf og annað slíkt. Það er bara risa spurs­mál, hvernig verður með prófin og annað,“ segir Bjarki og bætir við að búið sé að fella niður hin svoköll­uðu „A-levels“ próf, inn­töku­prófin í bresku háskól­ana, sem áttu að fara fram í vor.

Námsmenn utan Evrópu hafa að fleiru að huga

Almennt telur Bjarki að heims­far­ald­ur­inn sé að hafa tölu­vert mikil áhrif á stöðu íslenskra náms­manna erlendis og skilur að marigr vilji kom­ast heim í öryggi, upp­lifi þeir öryggi sleysi ytra, líkt og hann sjálfur. En það er ekki ein­falt fyrir alla að yfir­gefa landið þar sem þeir eru í námi, þrátt fyrir að skóla­kerfið stoppi. Sumir þurfa að hafa áhyggjur af vega­bréfs­á­rit­unum, til dæmis þeir sem eru í námi í Banda­ríkj­unum, Asíu eða Ástralíu.

„Í Bret­landi til dæmis eru flestir þeir sem koma utan Evrópu á svoköll­uðu „Tier 4 Visa“, sem er mjög strangt, þannig að það er mjög tak­markað hversu mikið þú mátt fara úr landi og hversu mikið þú mátt missa úr nám­inu á meðan því stendur. En það var gefið út núna síð­ustu helgi að inn­an­rík­is­ráðu­neytið myndi gefa und­an­þágu núna, fyrir þá sem vilja fara heim til sín á meðan þetta ástand gengur yfir,“ segir Bjarki.

LÍN hefur gert ýmis­legt til þess að létta náms­mönnum lífið í þessum maka­lausu aðstæðum. Þannig hafa náms­menn erlendis fengið vil­yrði fyrir auka ferða­láni, þannig að hægt sé að fá lánað fyrir auka ferð heim til Íslands á meðan far­ald­ur­inn geisar og einnig er búið að slaka á kröfum um stað­fest­ingu á náms­fram­vindu, sem Bjarki seg­ist ánægður með. 

Hann segir að trygg­inga­mál gætu vaf­ist fyrir ein­hverjum náms­mönnum og segir eðli­legt að þau sem eru í námi í Banda­ríkj­unum eða Ástralíu hafi ein­hverjar áhyggjur af því hvort þau séu nógu vel tryggð í dval­ar­land­inu, fari svo að þau þurfi að leita til heil­brigð­is­kerf­is­ins vegna COVID-19 sýk­ingar.

„Það gerði eng­inn ráð fyrir heims­far­aldri, held ég, þegar fólk var að skipu­leggja námið sitt,“ segir Bjarki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár