Íslenskir kjósendur ekki verið hallari undir markaðshyggju síðan árið 2007

Íslenskir kjós­endur eru hall­ari undir mark­aðs- og alþjóða­hyggju en þeir hafa verið í meira en ára­tug. Raunar mælist jákvæðni gagn­vart auk­inni mark­aðs­hyggju sú mesta frá 2007. Á sama tíma eru vin­sældir ein­angr­un­ar­hyggju á und­an­haldi.

Jákvæðni íslenskra kjósenda gagnavart aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur stóraukist.
Jákvæðni íslenskra kjós­enda gagna­vart aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu hefur stór­auk­ist. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íslenskir kjós­endur eru nú hall­ari undir mark­aðs­hyggju og opin­gátt í alþjóða­málum en þeir hafa verið lengi. Í kosn­ing­unum 2016 og 2017 voru kjós­endur fylgj­andi auk­inni félags­hyggju, og stærra hlut­verki rík­is­ins í sam­fé­lags­gerð­inni, en þeir voru árið 2007. Í kosn­ing­unum 2021 hafði þetta breyst og fylgni kjós­enda við mark­aðs­hyggju var komin aftur á þann stað sem hún mæld­ist í kosn­ing­unum 2007, einu og hálfu ári fyrir banka­hrunið.

Svipuð þróun átti sér stað þegar kemur að því að mæla afstöðu kjós­enda til alþjóða­væð­ingar og þátt­töku í alþjóða­sam­starfi. Hún mæld­ist afar jákvæð árið 2007, þegar íslenska útrásin stóð sem hæst, en dróst veru­lega saman eftir hrun og aukin ein­angr­un­ar­hyggja átti upp á pall­borðið næsta ára­tug­inn. Í kosn­ing­unum í fyrra varð svo sveifla í afstöðu kjós­enda í átt að meiri opin­gátt og mælist jákvæðni þeirra gagn­vart henni nú á svip­uðum stað og árið 2007.

Þetta kemur fram í grein­inni „Kjós­­endur eftir kreppu: Breyt­ing­­ar, flökt og stöð­ug­­leiki í Alþing­is­­kosn­­ing­unum 2021“ eftir Agnar Frey Helga­­son, dós­ent við Stjórn­­­mála­fræð­i­­deild Háskóla Íslands, Ólaf Þ. Harð­­ar­­son­­ar, pró­­fessor emeritus við sömu deild, Jón Gunnar Ólafs­­son, nýdoktor við deild­ina, Evu H. Önn­u­dótt­­ur, pró­­fessor við stjórn­­­mála­fræð­i­­deild og Huldu Þór­is­dótt­­ur, sem er dós­ent við sömu deild. Greinin birt­ist í tíma­­rit­inu Stjórn­­­mál & stjórn­­­sýsla fyrir skemmstu. Þar greina höf­undar síð­­­ustu þing­­kosn­­ingar út frá nokkrum lyk­il­vísum fengnum úr kjós­­enda­könnun Íslensku kosn­­inga­rann­­sókn­­ar­innar (ÍSKOS).

Algjör viðsnúningur í afstöðu gagnvart ESB

Breytt afstaða Íslend­inga til mark­aðs­hyggju og alþjóða­sam­vinnu hefur birst í ýmsum könn­unum sem gerðar hafa verið und­an­farið. Í mars var til að mynda birtur Þjóð­ar­púls Gallup sem sýndi að 47 pró­sent lands­manna styddu aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu (ESB) en að ein­ungis 33 pró­sent væru henni mót­falln­ir.

[adspot]Þetta var í fyrsta sinn sem mælst hafði meiri­hluti fyrir aðild að Evr­ópu­sam­band­inu hér­lendis frá árinu 2009. Raunar hafði það hlut­fall sem mælst hefur hlynnt inn­göngu Íslands í sam­bandið ekki mælst meira en rúm­lega 37 pró­sent í mán­að­ar­legum könn­unum sem MMR fram­kvæmdi frá 2011 og út síð­asta ár. Í síð­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins, sem var gerð í des­em­ber í fyrra, mæld­ist stuðn­ing­ur­inn 30,4 pró­sent en 44,1 pró­sent voru á mót­i.

Í síð­asta mán­uði gerði Prósent sam­bæri­lega könnun sem sýndi að 48,5 pró­sent svar­enda eru hlynntir aðild en 34,9 pró­sent and­víg­ir. Nið­ur­stöð­urnar voru því svip­aðar nið­ur­stöðum Þjóð­ar­púls Gallup frá því í mars.

Samkvæmt könnun Prósents voru kjós­endur Sam­fylk­ing­ar, Við­reisnar og Pírata jákvæð­astir með á bil­inu 79 til 83 pró­sent hlynnt aðild en innan við tíu pró­sent and­víg. Það vakti athygli að fleiri kjós­endur Vinstri grænna voru hlynntir Evr­ópu­sam­bands­að­ild en and­vígir, 40 pró­sent á móti 33, en flokk­ur­inn er einnig sá sem hefur flesta óákveðna í afstöð­unni, það er 24 pró­sent. Sam­kvæmt stefnu Vinstri grænna er „hags­munum Íslands betur borgið utan Evr­ópu­sam­bands­ins en inn­an.“

Mót­falln­astir aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu voru kjós­endur Mið­flokks­ins, eða 68 pró­sent, og þar á eftir kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins, 63 pró­sent. Alls 20 pró­sent Sjálf­stæð­is­manna voru hins vegar hlynntir aðild en aðeins átta pró­sent kjós­enda Mið­flokks­ins.

Nið­ur­staða ÍSKOS bendir til þess að mun fleiri breytur spili inn í þessa hug­ar­fars­breyt­ingu en ein­ungis stríðs­rekstur Rússa Í Úkraínu.

Þeir sem eru á móti NATO vilja samt NATO

Jákvæði Íslend­inga gagn­vart aðild Íslands að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu hefur einnig auk­ist umtals­vert.

Sam­kvæmt könnun sem Mask­ína vann fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið undir lok maí­mán­aðar eru tæp­lega 71 pró­sent land­manna jákvæð í garð aðildar Íslands að banda­lag­inu og hefur jákvæðnin í garð aðildar auk­ist mikið frá fyrri sam­bæri­legum mæl­ing­um.

[links]Mesta athygli vakti, er nið­ur­stöð­urnar voru brotnar niður eftir stuðn­ingi við stjórn­mála­flokka, að jákvæðni í garð aðildar að banda­lag­inu var umfram lands­með­al­tal hjá þeim hópi svar­enda sem sagð­ist ætla að kjósa Vinstri græn. Flokk­ur­inn er sá eini á þingi sem hefur það bein­línis á stefnu­skrá sinni að Ísland ætti að ganga úr NATO.

Það virð­ist þó litlu skipta um þessar mund­ir, en 72,3 pró­sent þeirra sem segj­ast ætla að kjósa flokk­inn voru jákvæð í garð aðildar Íslands að banda­lag­inu. Ein­ungis 6,4 pró­sent þeirra sem sögð­ust ætla sér að kjósa Vinstri græn sögð­ust nei­kvæð gagn­vart aðild Íslands að banda­lag­inu.

Þetta er gjör­breytt staða frá fyrri mæl­ing­um. Í könnun sem Mask­ína fram­kvæmdi í mars 2020 voru 35,4 pró­sent væntra kjós­enda Vinstri grænna jákvæð í garð NATO-að­ildar Íslands og 30,1 pró­sent þeirra sögð­ust nei­kvæð. Í mæl­ingu Mask­ínu í maí 2021 sögð­ust 38,4 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna svo jákvæð í garð aðildar og 24,7 pró­sent nei­kvæð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár