„Þetta eru þung og alvarleg orð“

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að áhrif hags­muna­að­ila „inn í póli­tík­ina“ sé mein­semd sem íslenskt sam­fé­lag hafi þurft að glíma við um langt skeið. Nú þurfi ráða­menn rík­is­stjórn­ar­innar að gefa skýr skila­boð um að hér þurfi að breyta hlutum.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er grafal­var­legt þegar sjálfur seðla­banka­stjóri segir að Íslandi sé stjórnað af hags­muna­hópum og gerir athuga­semdir við atlögu Samherja að starfs­mönnum stofn­unar sinnar. Það er grafal­var­legt að seðla­banka­stjóri stígi fram og kalli eftir því að lög­gjaf­inn setji skýr­ari lagaum­gjörð til að verja og vernda opin­bera emb­ætt­is­menn fyrir ásókn stór­fyr­ir­tækja sem svífast einskis í því að hund­elta og kné­setja starfs­fólk stofn­ana.“

Þetta sagði Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, á Alþingi í dag undir liðnum störf þings­ins. Vísaði hún í nýlegt við­tal Stund­ar­innar við Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóra sem vakið hefur mikla athygli í fjöl­miðlum og í almennri umræðu.

Þing­mað­ur­inn sagði orð seðla­banka­stjóra vera þung og alvar­leg – og að ákall hans væri þungt og alvar­legt til þeirra á Alþingi um að setja þyrfti lög í varn­ar­til­gangi.

Viðbrögð forsætisráðherra vonbrigði

[links]Rósa Björk gagn­rýndi við­brögð for­ystu­fólks rík­is­stjórn­ar­innar og benti hún að Willum Þór Þórsson for­maður fjár­laga­nefndar og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefðu talað um að skoða þyrfti þessi mál í sam­hengi, að fara þyrfti var­lega með heim­ildir stofn­ana, að skoða þyrfti í sam­hengi við hvaða heim­ildir stofn­anir hefðu almennt og að umræða þyrfti að fara fram.

„Það eru von­brigði að hlusta á svona við­brögð. Þarna hefði hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra átt, að mínu mati, að stíga fastar niður fæti til varnar opin­berum starfs­mönnum og verja þá ágangi stór­fyr­ir­tækis sem svífst einskis. Á sama tíma og Samherji herjar mis­kunn­ar­laust á fjöl­miðla­fólk Rík­is­út­varps­ins með stöð­ugum áróðri svo að fólki ofbýður kemur ákall til okkar, lög­gjafans, frá seðla­banka­stjóra um að bank­inn sé varn­ar­laus gagn­vart ágangi í garð starfs­fólks hans. Á sama tíma og verið er að veikja eft­ir­lits­stofn­anir á borð við Sam­keppn­is­eft­ir­litið og fella skatt­rann­sókn­ar­stjóra inn í deild hjá Skatt­inum kvartar seðla­banka­stjóri undan ágangi stór­fyr­ir­tækis,“ sagði Rósa Björk.

Þing­mað­ur­inn lauk máli sínu með því að segja að allt of mikil áhrif hags­muna­að­ila á borð við fjár­sterkasta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins inn í póli­tík­ina væri mein­semd sem „við höfum þurft að glíma við í íslensku sam­fé­lagi um langt skeið og nú þurfa ráða­menn rík­is­stjórn­ar­innar að gefa skýr skila­boð um að hér þurfi að breyta hlutum. Það er ekki eftir neinu að bíða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár