Nýjar íbúðir í Reykjavík kosta 51 milljón króna að meðaltali

Hlutfall nýbygg­inga í íbúða­við­skiptum nálg­ast það sem það var árið 2007. Hlut­fallið er hæst í Mos­fellsbæ en ein­ungis sex pró­sent í Reykja­vík.

Aukið magn nýbygginga hefur komið inn á markaðinn að undanförnu.
Aukið magn nýbygg­inga hefur komið inn á mark­að­inn að und­an­förnu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Söluverð nýrra íbúða í Reykja­vík á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins 2018 var 32 pró­sent hærra en verð á fer­metra á öðrum íbúðum. Með­al­verð nýju íbúð­anna á fer­metra var 556 þús­und krónur á sama tíma og með­al­fer­metra­verðið í borg­inni var 445 þús­und krónur.

Að með­al­tali kost­aði ný íbúð sem byggð var í Reykja­vík 51 milljón króna á tíma­bil­inu en með­al­tals­verð ann­arra íbúða var 46 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í nýrri grein­ingu frá hag­deild Íbúða­lána­sjóðs.

Þar segir enn fremur að hag­deildin telji margt benda til þess að sér­stakur skortur sé á minni og hag­kvæmum íbúðum á verði sem almenn­ingur ræður við. „Minni íbúðir í nýbygg­ingum eru skemur í sölu og lík­legri til að selj­ast á eða yfir ásettu verði en stærri íbúðir í nýbygg­ingum. Þrátt fyrir þessa eft­ir­spurn eftir litlum íbúðum er ljóst að fáar af þeim nýbygg­ingum sem komið hafa á mark­að­inn að und­an­förnu henta þeim sem hafa lítið eigið fé til íbúð­ar­kaupa. Aðeins fimm pró­sent nýbygg­inga á lands­vísu hafa verið aug­lýst á undir 30 millj­ónum króna það sem af er ári og aðeins tvö pró­sent þeirra hafa verið aug­lýst á undir 25 millj­ónum.“

Ljóst er þó að nýbygg­ingar eru farnar að hafa umtals­verð áhrif á hús­næð­is­mark­að­inn. frá ára­mótum og út júlí­mán­uði voru 14 pró­sent allra íbúða­við­skipta á almennum mark­aði vegna nýbygg­ingu. Það er ekki langt frá því hlut­falli sem var árið 2007, þegar síð­asta efna­hags­upp­sveifla sem Ísland gekk í gegnum náði hámarki sínu. Þá var hlut­fall nýbygg­inga í íbúða­við­skiptum 18 pró­sent. Til sam­an­burðar var hlut­fall nýbygg­inga í slíkum við­skiptum þrjú pró­sent árið 2010.

Í grein­ing­unni kemur fram að hlut­fall nýbygg­inga í íbúða­við­skiptum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er hæst í Mos­fellsbæ, þar sem 56 pró­sent allra slíkra voru vegna kaupa og sölu á nýbygg­ingum. Hlut­fallið var 45 pró­sent í Garðabæ en sex pró­sent í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár