Rosalega þungur vetur fram undan

Lög­fræð­ing­ur­inn, femínist­inn og félags­hyggju­konan Dagbjört Hákon­ar­dóttir er spennt fyrir sínum fyrsta þing­vetri, sem hún býst samt sem áður við að verði þungur.

Á þingi
Á þingi Dagbjört Hákon­ar­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að ósam­staða innan rík­is­stjórn­ar­innar muni fyrst og fremst bitna á almenn­ingi. Mynd: Aldís Mjöll Geirsdóttir

„Þetta leggst ljóm­andi vel í mig en þetta er áskorun, það er rosa­lega þungur vetur fram undan,“ segir Dagbjört Hákon­ar­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, sem tók sæti á Alþingi í vik­unni í stað Helgu Völu Helga­dóttur sem lét af þing­mennsku í upp­hafi mán­að­ar­ins. 

Dagbjört hefur áður sest á þing sem vara­þing­maður en hún skip­aði þriðja sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík norður í alþing­is­kosn­ing­unum 2021. Hún seg­ist finna fyrir pressu sem þing­maður í stjórn­ar­and­stöðu en segir fólk til­búið að hlusta á breytta nálgun. „Ég kem auð­vitað svo­lítið bratt inn í þetta, þetta var ekki mik­ill fyr­ir­vari sem ég fékk. Ég upp­lifi þá pressu sem ég er undir sem þing­maður í stjórn­ar­and­stöðu hjá félags­hyggju­flokki sem ætlar að gera atlögu að því hvernig þessum efna­hags­málum hefur verið stjórnað á und­an­förnum árum og ára­tugum. Við sjáum fram á að fólk er til­búið að hlusta á breytta nálgun sem tekur meira mið af félags­legum áherslum í rík­is­fjár­málum og við fögnum því.“

Ýmsar ógnir steðja að sam­fé­lag­inu að mati Dag­bjartar, sama hvort um er að ræða verð­bólgu eða bakslag í rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks. „Verð­bólgan ógnar þeim stöð­ug­leika sem við eigum skilið sem sam­fé­lag. Það eru kjara­við­ræður fram undan og þetta fjár­laga­frum­varp sem við erum að líta á núna tekur ekki sér­stak­lega mikið mið af þeim kröfum sem vinnu­mark­að­ur­inn mun eðli­lega koma fram með. Það eru ekki lagðar miklar áherslur á við­kvæm­ustu hópana okkar sem eru ungt fjöl­skyldu­fólk, ég horfi sér­stak­lega til þess. Við munum koma til með að þurfa að setja æski­lega pressu á stjórn­völd í þeim efnum.“

Ekki nóg að mæta blómum skreyttur í hinsegin gleðigöngu

For­sæt­is­ráð­herra flutti stefnu­ræðu í vik­unni en Dagbjört segir fátt nýtt hafa verið undir sól­inni í ræðu hennar. „Það var ekki að finna neina stöðu­töku gagn­vart þeim ógnum sem steðja að okkur, það var meiri áhersla lögð á sátt í sam­fé­lag­inu og auð­vitað tal­aði for­sæt­is­ráð­herra um sam­fé­lags­mál sem við verðum að horfast í augu við, hún tal­aði um bakslag í hinsegin bar­átt­unni og ég fagna því að það var nefnt.“ 

„Stuðn­ing­ur­inn verður að vera raun­veru­legur og hann verður að sýna í verki“

Dagbjört bendir á að það sé ekki bein­línis í verka­hring rík­is­ins að taka á fræðslu­málum í skólum en hins vegar eigi ríkið að styðja við hags­muna­sam­tök á borð við Samtökin '78. „Það er verið að draga úr stuðn­ingi í fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi og það er auð­vitað slæmt. Við verðum að koma til­hlýði­lega að stuðn­ingi við við­kvæma hags­muna­hópa. Það þýðir ekki bara að mæta blómum skreyttur í hinsegin gleði­göngu. Stuðn­ing­ur­inn verður að vera raun­veru­legur og hann verður að sýna í verki.“

Þing­vet­ur­inn verður þungur að mati Dag­bjartar en hún er spennt fyrir áskor­un­inni. Hún mun taka sæti í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd og verður vara­maður í vel­ferð­ar­nefnd og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. „Ég er spennt að læra inn á það hvernig við vinnum á Alþingi, ég við­ur­kenni það. Ég hef komið nokkrum sinnum inn sem vara­þing­maður en nú er ég með for­ræði yfir mínum mála­flokkum. Ég er lög­fræð­ingur, félags­hyggju­kona, femínisti og Evr­ópusinni og er gíf­ur­lega spennt fyrir því að taka mína mála­flokka í fangið og fylgja þeim eftir.“

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    HVAÐ GERIRFÓLKÞEGARÞAÐERALVEGEINANGRAÐFRÁÖLLUOGÖLLUMEFÞAÐERÞANNIGSTEMDTÞÁEROFthægtAÐÞRÓAMEÐSER ALLSKONARGAGNLEGAHLUTI ENN EKKI Í SAMBANDIVIÐKYNLIFSÓRRALANGANIRISAMBANDIVIÐÞAVITLEYSUEÐAIÞÁATTINAÞAÐGERÐISTELPAN OGÞESSIÓSKÖPBÚAENNÞA MEÐHENNIÍDAG
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Spennandi alþingiskona sem vert er að fylgjast með.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár