Mun ekki sakna illmælgi og hótana

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er hætt á þingi eftir sex ára þing­setu og ætlar að helga sig lög­mennsku að nýju. Hún mun ekki sakna ill­mælg­innar sem fylgir þing­stör­f­unum og von­ast til að vera laus við hót­anir.

Mun ekki sakna illmælgi og hótana
Inn í frelsið Helga Vala talar um að fara í frelsið, með því að hætta á þingi. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Þeir hafa nú bara verið ótrú­lega skemmti­legir,“ segir Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, um dag­ana sex sem liðnir eru frá því að hún greindi frá því í við­tali við Morg­un­blaðið að hún ætli að hætta á þingi eftir sex ára þing­setu. 

„Ég átti nú ekki von á svona góðum og hlýjum strokum eins og ég fékk á laug­ar­dag­inn. Ég bjóst alveg eins við því að ég fengi yfir mig ein­hverja hol­skeflu af nei­kvæðni. En ég bara vissi ekki að fólki þætti svona vænt um mín störf. Það kom þægi­lega á óvart hvað fólk var bara eitt­hvað fal­legt við mig,“ segir Helga Vala í sam­tali við Heim­ild­ina. 

Hún hafnar því að deilur við Kristrúnu Frosta­dóttur, sem tók við for­mennsku í Sam­fylk­ing­unni fyrir tæpu ári síðan, teng­ist brott­hvarfi hennar af þingi. „Það er svo leið­in­legt að þurfa alltaf að svara þessu, það er eins og það geti eng­inn hætt á þingi nema það búi ein­hver leið­indi á bak­við. Þing­störfin eru bæði mjög skemmti­leg en geta verið mjög skrýtin og alls konar.“ 

Ástleysi í stjórnarráðinu 

Síðasti þing­vetur var mattur að sögn Helgu Völu. „Mér fannst bara aðeins minna gaman, þar var lítil stemn­ing í þing­inu. Og í póli­tík­inni almennt. Það er svona ást­leysi í stjórn­ar­ráð­inu og það smit­ast yfir allt.“ 

Hún ætlar að helga sig lög­mennsku að nýju og halda áfram að elta draumana sína. Sakamál, sifja­mál og fjöl­skyldu­mál munu ein­kenna störf hennar á næst­unni. Ekki kemur til greina að vera tals­maður umsækj­enda um alþjóð­lega vernd. Ástæða þess er fyrst og fremst praktísk að sögn Helgu Völu. „Þegar maður er að byrja í rekstri þá þarf maður að passa að vera ekki of mikið að vinna pro bono en það eru örlög þeirra lög­manna sem starfa við þennan mála­flokk.“ Útlend­inga­málin eru henni samt sem áður áfram hug­leikin og hún hefur miklar áhyggjur af þeim anda sem ríkir hjá stjórn­völdum. „Það er verið að kljúfa sam­fé­lagið og umræðan er orðin miklu harð­skeytt­ari en hún hefur nokkru sinni verið. Áður fyrr var þetta kannski einn og einn þing­maður sem leyfði sér að tala með þessum hætti en núna heyrir maður fjöl­marga teikna upp þessa ofboðs­legu pólarís­er­ingu.“

Helga Vala vill sjá Sam­fylk­ing­una leggja áherslu á heil­brigð­is­mál á kom­andi þing­vetri. „Af því að heil­brigð­is­mál eru hjart­ans mál allra lands­manna, það finna allir fyrir því þegar heil­brigð­is­kerfið er svona van­rekið eins og það hefur verið í tíð núver­andi rík­is­stjórnar og rík­is­stjórna síð­ustu ára.“ 

Hótanir í garð fjölskyldu ekki notalegar

Þó svo að hún sé að segja skilið við þing­mennsk­una mun Helga Vala halda áfram að berj­ast fyrir ýmsum málum. Svo ætlar hún að halda áfram að hitta vin­ina sem hún hefur eign­ast í þing­inu og mun koma til með að sakna. „Ég hlakka til að hitta þau í frels­inu.“ 

„Hótanir og annað. Það er ekk­ert sér­stak­lega nota­legt.“

En það eru líka hlutir sem hún mun ekki sakna. „Ákveð­innar ill­mælgi, auð­vitað erum við þjónar almenn­ings. En ég held að við ættum líka aðeins að hug­leiða hvað við leyfum okkur að segja um kjörna full­trúa og hvað við leyfum okkur að draga fjöl­skyldur kjör­inna full­trúa inn í póli­tík­ina. Það er kannski það sem ég mun sakna minnst. Fjöl­skylda mín á ekki að þurfa að fá yfir sig skít­inn vegna þess í hvaða vinnu ég er. Hótanir og annað. Það er ekk­ert sér­stak­lega nota­legt.“ 

Helga Vala úti­lokar ekki að snúa aftur á þing, seinna. „Lífið mitt er samt auð­vitað ótrú­legt ævin­týri þannig að ég ætla ekki að úti­loka neitt. Ég var ekki á leið­inni á þing 2017, það bar mjög brátt að. En þetta var auð­vitað ofsa­lega skemmti­legt og lær­dóms­ríkt þannig að ég sé ekki eftir einni mín­útu. Ég er bara heppin, ég er að gera eitt­hvað skemmti­legt. Lífið er gott.“ 

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár