Fyrsta rafknúna fiskiskip íslenska flotans

Stormur HF 294, nýtt línu- og neta­skip útgerð­ar­innar Stormur Seafood, er fyrsta skip sinnar teg­undar á Íslandi.

Stormur HF 294, nýtt línu- og neta­skip útgerð­ar­innar Stormur Seafood, sigldi til Reykja­vík­ur­hafnar í gær, en þetta er fyrsta fiski­skipið á Íslandi sem er raf­drifið. Þetta er jafn­framt fyrsti nýsmíðin í línu­skipa­flot­anum í sextán ár, af því er segir í til­kynn­ingu.

Skipið kemur hingað frá Gdansk í Póllandi og tók um tvö ár í smíði.

Stormur er 45 metra langur, um þús­und brúttó­lestir og tekur allt að 400 tonn af frystri afurð í lest. Að auki er skipið fyrsta raf­knúna fiski­skipið á Íslandi og mun slíkur raf­bún­aður lág­marka umhverf­is­á­hrif og auka hag­kvæmni við veiðar.

Eigandi Storms Seafood, Steindór Sig­ur­geirs­son, segir í til­kynn­ingu að mik­il­vægt sé að fleiri líti til kaupa á raf­drifnum skipum.„Elds­neyt­is­notkun á sam­bæri­legum skipum er afar mikil og þarf geir­inn í heild að huga betur að lofts­lags­málum,“ segir Steindór. „Hag­kvæmni við veiðar eykst einnig við komu skips­ins en það er búið nýj­ustu gerð línu­beit­ing­ar­vélar sem tekur mun meira en sam­bæri­leg skip hér á landi. Það má því segja að koma skips­ins marki tíma­mót í íslenskum sjáv­ar­út­vegi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár