Gulldraumar

Draum­ur­inn um að finna gull hefur iðu­lega látið hjörtu slá örar. Slíkir draumar ræt­ast sjaldn­ast en tveir danskir karlar eru þess full­vissir að þeirra gull­draumur geti ræst.

Jarðfræðingurinn Christian Knudsen hefur rannsakað danska „gullvinnslu“ í sand- og malarnámum ásamt Bjarne Overgaard.
Jarð­fræð­ing­ur­inn Christian Knudsen hefur rann­sakað danska „gull­vinnslu“ í sand- og mal­ar­námum ásamt Bjarne Overgaard. Mynd: Skjáskot/DR

„Gott silfur gulli betra“ sagði íslenski lands­liðs­þjálf­ar­inn í hand­bolta þegar lands­liðið kom heim eftir Ólymp­íu­leik­ana í Beijing árið 2008. Landinn sam­gladd­ist „strák­unum okkar“ þegar þeir komu heim með silf­ur­verð­launin, enda full ástæða til. Tveir danskir karlar, Bjarne Overgaard og Christian Knudsen, gefa hins­vegar ekki mikið fyrir svona tal, „gull er það sem blífur“ segja þeir. Og þeir eru ekki að tala um gull­húð­aða medal­íu­hlunka, heldur ekta gull.

Fyrir um það bil tutt­ugu árum hitti danski jarð­fræð­ing­ur­inn Christian Knudsen, fyrir til­viljun, mann sem sagð­ist vinna hjá sand- og mal­ar­vinnslu­fyr­ir­tæki Bjarne Overgaard í Rødekro á Suður-Jótlandi. Þegar Christian Knudsen sagð­ist vera jarð­fræð­ingur sagði mal­ar­vinnslu­mað­ur­inn að hann hefði oftar en einu sinni fundið gull í mal­ar­námunum þar sem hann ynni. Christian Knudsen, sem hafði tekið þátt í gull­leit á Græn­landi og víðar, þótti þetta athygl­is­vert en reynslan sagði honum hins vegar að margt getur líkst gulli án þess þó að vera gull. Christian Knudsen varð oft hugsað til þessa sam­tals, og fyrir sex árum sá hann við­tal við Bjarne Overgaard í danska sjón­varp­inu, um gull.

Daginn eftir sjón­varps­þátt­inn hringdi Christian Knudsen í Bjarne Overgaard. Í fram­haldi af því sam­tali fór jarð­fræð­ing­ur­inn Christian í heim­sókn í sand- og mal­ar­vinnsl­una og eig­and­inn Bjarne sýndi honum agnir sem hann taldi vera gull og hann hafði fundið í sandi í námunum. Christian Knudsen gat stað­fest, eftir rann­sókn, að agn­irnar sem Bjarne sýndi honum væru gull. Þeir urðu síðar sam­mála um að láta á það reyna hvort nægi­legt gull væri að finna í sand­námunum við Rødekro til að hag­kvæmt væri að vinna það. Ekki lágu miklar rann­sóknir að baki þess­ari ákvörðun en þeir félagar voru bjart­sýnir.

Sá gullkorn í vindlakassa

Í þætti sem danska sjón­varpið gerði fyrir skömmu um gullið í Rødekro sagði Bjarne Overgaard að hann hefði fyrir all­mörgum árum hitt mann sem sýndi honum gull­korn sem hann var með í litlum vindla­kassa. Þeim hafði mað­ur­inn safnað í þýskri sand-og mal­ar­námu. Bjarne sagð­ist hafa hugsað með sér að fyrst gull væri að finna í þýskum námum væri aldrei að vita nema það væri líka að finna í Danmörku. Sem kom á dag­inn.

Milljón tonn af sandi og möl

Starfs­menn sand-og mal­ar­vinnslu­fyr­ir­tækis Bjarne Overgaard moka árlega upp rúm­lega milljón tonnum af sandi og möl upp úr námunum við Rødekro. Að finna gull í þess­ari stóru hrúgu er eins og að leita að nál í hey­stakk og til að finna nokkur grömm af gulli þarf að moka upp tugum tonna af sandi.

Á stóru svæði í nágrenni Rødekro eru nokkrar stórar sand-og mal­ar­námur. Sand­ur­inn, og gullið, barst frá Noregi til Dan­merkur eftir síð­ustu ísöld, fyrir um tíu þús­und árum. Þegar Christian Knudsen skoð­aði námurnar við Rødekro mældi hann gullagn­irnar sem hann fann. Stærðin var mis­mun­andi, allt frá 0,05 mill­metrum upp í 0,5 milli­metra. Gullagnir af þess­ari stærð telj­ast not­hæfar til frek­ari vinnslu en það er hins­vegar spurn­ing um magnið.

Ákváðu að slá til

Þeir Bjarne Overgaard og Christian Knudsen urðu sam­mála um að láta á það reyna hvort nægi­legt gull væri að finna í sand­námunum við Rødekro til að hag­kvæmt væri að vinna það. Ekki lágu miklar rann­sóknir að baki þess­ari ákvörðun en þeir félagar voru bjart­sýnir. Bjuggust að sögn ekki við að verða marg­millj­ónerar á gull­vinnslu, enda væri það ekki til­gang­ur­inn.

Þegar þeir ákváðu að hella sér út í gull­leit­ina hafði Bjarne Overgaard aflað sér þekk­ingar um leit og vinnslu á þessum dýra málmi. Hann hafði jafn­framt smíðað tæki til að skilja kjarn­ann frá hism­inu ef svo má að orði kom­ast. Tækið er í stuttu máli eins konar hrist­an­legt sigti. Eftir að hafa skoðað sand­námur við Rødekro taldi Christian Knudsen að í tonni af sandi gætu verið 0,044 grömm af gulli. „Það þarf, tel ég, 1000 tonn af sandi til að fá nóg gull í einn gift­ing­ar­hring. Það er kannski helsta ástæða þess að fólk veigrar sér við að hella sér í svona verk­efni.“

Hvað með verðið, yrði danskt gull samkeppnishæft?

Þessari spurn­ingu varp­aði frétta­maður danska sjón­varps­ins fram við dönsku gull­graf­ar­ana. Svarið var að danska „gull­vinnslan“ eins og kom­ist var að orði gæti ekki keppt við gull frá löndum þar sem það væri unnið í stórum stíl, t.d Suður-Afríku. „Af hverju ætti fólk þá að kaupa danskt gull?“ var spurt. Þeir Bjarne Overgaard og Christian Knudsen sögð­ust telja að margir Danir myndu gjarna vilja kaupa skart­gripi, ekki síst gift­ing­ar­hringi, úr gulli sem fund­ist hefði í danskri jörð. Þar að auki yrði gull­vinnsla þeirra mun umhverf­is­vænni en víð­ast hvar ann­ars staðar. „Við þurfum ekki að nota stór­virk námu­vinnslu­tæki og kemísk efni við gull­vinnsl­una, nú á dögum kunna margir að meta það.“

Bjarne Overgaard sagði fyrir nokkrum dögum, í við­tali við dag­blaðið Flens­borg Avis, að danskir gull­smiðir hefðu mik­inn áhuga á gulli frá Rødekro. Hann hefði fengið fjöl­margar fyr­ir­spurnir eftir áður­nefndan sjón­varps­þátt og greini­legt væri að þótt danska gullið yrði eitt­hvað dýr­ara en það inn­flutta skipti það engu máli. „Tveir gull­smiðir vildu gera samn­ing við okkur Christian um að kaupa allt það gull sem við gætum útvegað. Við vorum ekki til­búnir í slíka samn­ings­gerð,“ sagði Bjarne Overgaard. Hann bætti því við að hann hefði í hitteð­fyrra látið smíða gift­ing­ar­hringi fyrir son sinn. „Honum og tengda­dótt­ur­inni finnst gaman að segja vinum og kunn­ingjum að hringirnir séu úr gulli frá Rødekro og það vekur athygli. Hringirnir munu end­ast og ég er viss um að það geri hjóna­bandið líka,“ sagði Bjarne Overgaard.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár