Föðmumst!

Í hinu dag­lega amstri er fljót­legur gjörn­ingur sem getur bætt líf okkar og fólks­ins í hringum okkur: Faðmlög.

Mikhail Gorbachev og Erich Honecker
Mikhail Gorbachev og Erich Honecker faðm­ast hér og kyss­ast „kossi hins sós­íal­íska bróð­ernis“, sem átti að sýna fram á hina sér­stöku teng­ingu sem var á milli komm­ún­ískra ríkja.

Innan hins þrönga ramma sem hefð­bund­inni rútínu hins almenna Íslend­ings vinnst ekki mik­ill tími til þess að taka upp nýja hegðun, venjur og hefðir. Eitt getum við þó gert sem tekur stuttan tíma, gæti auðgað líf okkar, minnkað stress og bætt sam­bönd okkar við annað fólk: Faðmast.

Faðmlög framkalla vellíðan

Þegar við föðm­umst sleppir lík­am­inn út horm­ón­inu oxýtósín. Á íslensku er það kallað hríða­horm­ónið, því það er eitt af þeim horm­ónum sem er ábyrgt fyrir því að fram­kalla hríðir og auka mjólk­ur­fram­leiðslu. Það hefur einnig verið kallað ást­ar­horm­ónið, því þegar við finnum fyrir vænt­um­þykju gagn­vart ein­hverjum er það oxýtósín sem lætur okkur líði vel. „Oxýtósín er tauga­peptíð, sem í grunn­inn eykur traust og teng­ingar á milli fólks,“ segir sál­fræð­ing­ur­inn Matt Her­ten­stein við DePauw-háskóla. „Hormónið leggur hinn líf­efna­fræði­lega grunn sem er nauð­syn­legur fyrir okkur til þess að tengj­ast öðru fólki.“

Hjarta og blóðþrýstingur

Hormónin sem lík­am­inn leysir úr læð­ingi við faðm­lög eru þó ekki aðeins góð upp á til­finn­inga­lífið, heldur geta þau haft jákvæð áhrif á lík­am­lega heilsu á sama tíma. Þegar við snert­umst virkj­ast í húð­inni tauga­móttak­arar sem kall­ast pacinian corpuscles, en þeir senda tauga­boð til heil­ans sem meðal ann­ars lækkar blóð­þrýst­ing.

Ást og alúð
Ást og alúð er börnum lífs­nauð­syn­leg

Börn

Faðmlög og snert­ing eru börnum nauð­syn­leg fyrir til­finn­inga­legan þroska. Rannsókn Emory-háskóla bendir til fylgni milli snert­ingar og streitu­los­unar. Í sam­an­tekt rann­sókn­ar­innar er sagt að það eigi sér­stak­lega við um ung­viðið, en börn sem upp­lifa mikla ást og snert­ingu eiga auð­veld­ara með að takast á við stress þegar þau full­orðn­ast og eru í meira til­finn­inga­legu jafn­vægi.

Þannig að það er ekki eftir neinu að bíða. Fyrir meiri gleði, aukið hreysti og fram­tíð barn­anna: Föðmumst!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár