Fiskafli 31 prósent minni í mars en í sama mánuði í fyrra

Fiskafli íslenskra skipa í mars 2016 voru tæp 132 þús­und tonn, sem er 31% minni afli en í mars í fyrra. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Botn­fisk­afli dróst saman um 8 pró­sent, úr 53,9 þús­und tonnum í 49,3 þús­und tonn, í mars. Upp­sjáv­ar­afli minnk­aði úr tæpum 136 þús­und tonnum í rúm 79 þús­und tonn, sem er 42 pró­sent aflasam­dráttur. Á tólf mán­aða tíma­bili hefur afla­magn minnkað um 109 þús­und tonn á milli ára, sem er mest megnis vegna minni upp­sjáv­ar­afla. Aflinn í mars met­inn á föstu verði var 12,6 pró­sent minni en í mars 2015.

Eins og sjá má á mynd­inni hér að neðan, sem Hagstofa Íslands tók saman, þá hefur botn­fisk­afl­inn auk­ist um fjögur pró­sent milli ára, þar af þorskafli um þrjú pró­sent. Sam­drátt­ur­inn er hins vegar mik­ill í mörgum upp­sjáv­ar­teg­undum, meðal ann­ars loðnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár