Meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu aldrei verið styttri

Mikil ásókn er í íbúðir í fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en í mars seld­ust yfir 60 pró­sent íbúða yfir ásettu verði miðað við þriggja mán­aða með­al­tal.

Með­al­sölu­tími íbúða í mars var 35,8 dagar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hefur aldrei verið styttri. Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins var einnig um met að ræða þar sem með­al­sölu­tím­inn var 44,1 dagur. Annars staðar á lands­byggð­inni hefur með­al­sölu­tím­inn lengst nokkuð und­an­farna tvo mán­uði og er nú 71,4 dagar en sveiflur þar eru miklar og því of snemmt að segja til um hvort um við­snún­ing sé að ræða.

Þetta kemur fram nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu HMS.

Þar segir enn­fremur að með­al­kaup­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi verið 71,4 millj­ónir króna í mars sam­an­borið við 57,9 millj­ónir króna í mars 2021. Þar af seld­ust íbúðir í fjöl­býli að jafn­aði á 66 millj­ónir króna en sér­býlin á 109,6 millj­ónir króna. Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins var með­al­kaup­verðið 48,3 millj­ónir og ann­ars staðar á land­inu var það 42,6 millj­ónir króna.

Yfir 60 prósent íbúða seldust yfir ásettu verði á höfuðborgarsvæðinu

Samkvæmt HMS seld­ist í mars í fyrsta sinn yfir helm­ingur íbúða yfir ásettu verði, eða 51,2 pró­sent, en í febr­úar hafði hlut­fallið í fyrsta sinn farið yfir 40 pró­sent. Yfir­leitt hafi þetta hlut­fall verið á bil­inu 7 til 15 pró­sent.

Fram kemur í skýrsl­unni að sér­stak­lega virð­ist vera mikil ásókn í íbúðir í fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en í mars seld­ust 61,2 pró­sent íbúða yfir ásettu verði miðað við þriggja mán­aða með­al­tal en aðeins 24 pró­sent undir ásettu verði. Ef aðeins er horft til mars­mán­aðar en ekki á þriggja mán­aða með­al­tal er hlut­fallið nokkuð hærra en hins vegar er um bráða­byrgða­tölur að ræða. Auk­in­heldur seld­ist meira fjórð­ungur 1 til 2 her­bergja íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á meira en 5 pró­sent yfir ásettu verði. Í októ­ber á síð­asta ári fór þetta sama hlut­fall í fyrsta sinn yfir 10 pró­sent.

Um 52 pró­sent sér­býla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu seld­ust yfir ásettu verði sem er líka met og á lands­byggð­inni seld­ust um 45 pró­sent íbúða í fjöl­býli og 26 pró­sent sér­býla yfir ásettu verði.

Svipað ástand virð­ist ríkja á Norð­vest­ur­landi, sam­kvæmt skýrslu­höf­undum, en þar seld­ust 49 pró­sent allra íbúða yfir ásettu verði og í póst­núm­eri 600 Akureyri seld­ust 56 pró­sent íbúða yfir ásettu verði sem er sama hlut­fall og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mest virð­ist hafa verið bit­ist um íbúðir í úthverfum Reykja­víkur en yfir 70 pró­sent íbúða í póst­núm­eri 111 í Breið­holti seld­ust yfir ásettu verði og 108 og 109 fylgja þar fast á eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár