Sigríður Andersen: „Stórkostlegt ábyrgðarleysi“ hjá Bjartri framtíð

Dóms­mála­ráð­herra segir að það séu mikil von­brigði að Björt fram­tíð hafi slitið rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu og segir það lýsa „stór­kost­legu ábyrgð­ar­leysi“ af hendi flokks­ins.

Sigríður Andersen og Jón Gunnarsson.
Sigríður Andersen og Jón Gunn­ars­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra seg­ist geta skilið að mönnum finn­ist það mál sem sprengdi rík­is­stjórn­ina í gær sé trún­að­ar­brestur. „En það er það ekki, og það var það ekki.“ Hún segir að sér hafii ekki verið stætt á að gera það að birta gögn í málum manna sem sótt hafa um upp­reist æru áður vegna þess að málið var í með­ferð hjá úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál. Þetta kom fram í við­tali við hana í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun.

Björt fram­tíð sleit rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu vegna máls­ins í nótt og bar fyrir sig trún­að­ar­brest. Sigríður segir að við­brögð hennar séu trega­blandin. Ákvörð­unin hafi komið sér á óvart og valdi sér miklum von­brigðum. „ „Mér finnst þetta lýsa stór­kost­legu ábyrgð­ar­leysi af hendi þessa litla flokks.“ Henni finnst að Björt fram­tíð hafi átt að gefa Bjarna Bene­dikts­syni for­sæt­is­ráð­herra tæki­færi á að tjá sig um málið. „Mér finnst ömur­legt að menn ætli að nýta sér mál af þessum toga.“ Til­kynn­ing Bjartrar fram­tíðar sýni að flokknum hafi aldrei verið nein alvara með því að axla ábyrgð á rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. Sigríður stað­festi að hún hefði rætt við Bjarna í gær­kvöldi og í nótt.

Stjórn Bjartrar fram­tíðar ákvað í nótt að slíta sam­starfi við rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­son­ar, vegna alvar­legs trún­að­ar­brests, að því er fram kom í til­kynn­ingu. Ráð­herrar Bjartrar fram­tíð­ar, Ótt­arr Proppé og Björt Ólafs­dótt­ir, greindu for­ystu­mönnum sam­starfs­flokk­anna, Sjálf­stæð­is­flokki og Við­reisn, frá þessu seint í gær­kvöld.

Stjórn Bjartrar fram­tíðar kom saman í gær­kvöld til að ræða stöð­una sem komin er upp eftir að í ljós kom að faðir for­sæt­is­ráð­herra, Bene­dikt Sveins­son, skrif­aði undir með­mæla­bréf með beiðni Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar um að hann fengi upp­reist æru.

Sam­tals voru 87 pró­sent stjórn­ar­manna hjá Bjartri fram­tíð hlynntir því að slíta sam­starf­inu.

Sigríður segir að það hafi verið full ástæða til þess að ræða það við Bjarna Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra að faðir hans hefði skrifað undir með­mæla­bréfið, en Sigríður upp­lýsti um það í gær að hún hefði gert það í júlí. Menn hljóti að sjá það og ekki hafi verið ástæða til þess að ræða þetta mál við aðra ráð­herra. Engin mál í ráðu­neyt­unum séu und­an­skilin því að for­sæt­is­ráð­herra eigi að fá upp­lýs­ingar. Hún seg­ist hafa verið a ræða við Bjarna bæði sem for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár