Stál í stál hjá útgerðum og sjómönnum

Sátt er ekki í sjón­máli í kjara­deilu sjó­manna og útgerða. Fram­kvæmda­stjóri SFS segir að tapið í afla­verð­mæti sé allt að 700 millj­ónir á dag.

„Það er skemmst frá því að segja að það er ekk­ert að frétt, og sátt er ekki í sjón­máli,“ sagði Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SFS, í sam­tali við Kjarnann nú í kvöld, aðspurð um gang mála í kjara­við­ræðum sjó­manna og útgerða. Verkfall hefur nú staðið yfir frá því 14. des­em­ber og er sátt ekki í sjón­máli eins og mál standa nú. Viðræðum hefur verið slitið, og er eng­inn fundur áform­aður eins og mál standa nú.

Áætlað tap í afla­verð­mæti fyrir sjáv­ar­út­veg­inn, vegna verk­falls­ins, hefur verið áætlað allt að 700 millj­ónum á dag og því er mikið í húfi fyrir þjóð­ar­búið. Fisk­vinnslu­fólk hefur víða skráð sig á atvinnu­leys­is­skrá vegna vinnslu­stopps og er staðan sér­stak­leg alvar­lega í sveit­ar­fé­lögum þar sem sjáv­ar­út­vegur er hryggjar­stykkið í atvinnu­líf­inu.

Í pistli sem Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, skrifar inn á vef­inn 200 mílur kemur fram að sjó­menn verði af átta millj­örðum árlega vegna verð­munar á mak­ríl, miðað við verðið sem fæst t.d. í Noregi. „En hver skildi verð­mun­ur­inn hafa verið fyr­ir síð­ustu mak­ríl­ver­tíð, það er að segja fyr­ir árið 2016? Jú, fram hef­ur komið í frétt­um að í gegn­um sölu­kerfi norska síld­ar­sam­lags­ins hafi farið 133 þús­und tonn af mak­ríl og meðal­verðið hafi verið 10,23 krón­ur norsk­ar á kíló, eða rúm­ar 144 krón­ur ís­lensk­ar. En hvað skyldi meðal­verðið hafa verið á Íslandi á ár­inu 2016? Sam­kvæmt Hag­stof­unni veidd­ust rúm­lega 170 þús­und tonn og afla­verð­mætið var 10,9 millj­arðar og meðal­verðið því 63,9 ís­lensk­ar krón­ur. Takið eft­ir að í Nor­egi var á síð­asta ári verið að greiða rúm­um 80 krón­um hærra verð fyr­ir kílóið að með­al­tali fyr­ir mak­ríl en á Íslandi eða sem nem­ur 125%. Hugsið ykk­ur, ís­lensk­ir sjó­menn fá 125% minna verð fyr­ir mak­ríl en fæst fyr­ir hann í Nor­egi,“ segir Vil­hjálmur í pistli sínum.

Heiðrún Lind seg­ist von­ast til þess að sáttin í deil­unni fær­ist nær. Það sé vilji allra að ná sátt og koma starf­semi af stað. Þegar sé farið að reyna mjög á sölu­sam­bönd við við­skipta­vini erlendis. Ef deilan drag­ist enn meira á lang­inn þá sé hætta á að skað­inn verði var­an­legur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár