Skrifist á Sjálfstæðisflokkinn og „hamfarakapítalismann þeirra“

Þing­maður Pírata segir að sama hvert litið er hafi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn und­an­farna ára­tugi notað valda­stöðu sína til að moka verk­efnum yfir á einka­geir­ann en að ábyrgðin sé samt áfram hjá rík­inu. Þar vísar hann meðal ann­ars til ástands­ins í skimunum.

Smári McCarthy, þingmaður Pírata.
Smári McCarthy, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Vanda­málið er ekki að einka­fyr­ir­tækið Íslensk erfða­grein­ing ákveði að láta ekki mis­nota sig til eilífðar án samn­inga og sam­ráðs – sem er alengt fyr­ir­komu­lag hjá rík­is­stjórn­inni – heldur er vanda­málið að við erum með rík­is­kerfi sem er búið að grafa svo mikið undan í þágu einka­fyr­ir­tækja að kerfið gæti ekki virkað á til­skil­inn hátt án þeirra. Það skrif­ast á Sjálf­stæð­is­flokk­inn og ham­farakap­ít­al­ismann þeirra, fyrst og fremst, ásamt við­hlæj­endur þeirra í öðrum flokkum.

Þetta segir Smári McCarthy, þing­maður Pírata, á Facebook-síðu sinni um þá stöðu sem komin er upp varð­andi skimun á landa­mær­unum. Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, til­kynnti í gær að fyr­ir­tækið myndi hætta skimun fyrir íslensk heil­brigð­is­yf­ir­völdum.

Smári segir að það sé rétt sem Kári segir að sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans ætti undir öllum eðli­legum kring­um­stæðum að vera nægi­lega vel útbúin tækjum, aðföngum og mann­skap til að geta tek­ist á við þetta verk­efni. „LSH ætti heilt yfir að vera betur í stakk búið en það er. Það er ekki skortur á fag­þekk­ingu eða vilja til verks­ins, þvert á móti. En það er búinn að vera við­var­andi skortur á fjár­magni,“ skrifar hann.

Ekki bara vandamál í heilbrigðiskerfinu

Þá telur Smári þetta ekki ein­ungis vera vanda­mál í heil­brigð­is­kerf­inu. „Sama hvert litið er hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn und­an­farna ára­tugi notað valda­stöðu sína til að moka verk­efnum yfir á einka­geir­ann, oft­ast með um 30 pró­sent meiri kostn­aði, og ábyrgðin áfram hjá rík­inu.

Einhvern veg­inn tókst til dæmis að byggja Ölf­usár­brú árið 1945 þegar landið var nýstofnað, fátækt og nýkomið undan seinni heims­styrj­öld. En í dag, þegar Ísland er eitt rík­asta land heims er lífs­ins ómögu­legt að byggja nýja brú án þess að fá einka­að­ila að,“ skrifar hann.

Hann segir að það eina sem breytt­ist hafi verið við­horf þeirra sem sitja að völdum ár eftir ár, ára­tug eftir ára­tug, til þess hvert hlut­verk þeirra sé. Einu sinni hafi þetta snú­ist um að búa til gott sam­fé­lag.

Snýst um að maka krókinn

[links]„Núna snýst þetta um að maka krók­inn. Fyrir vikið, þótt ég hefði gjarnan viljað sleppa því að sjá Kára Stef­áns­son taka enn eitt frekjukastið, sér­stak­lega þegar það gæti bitnað á almanna­heilsu og öryggi, þá verð ég að við­ur­kenna að það er svo­lítið ánægju­legt að sjá rík­is­stjórn­ina sem getur ekki tekið jafn­vel auð­veld­ustu ákvarð­anir um almanna­hag fá ærlega á bauk­inn frá einum einka­að­il­anum sem Sjallar hömp­uðu á sínum tíma.

En schadenfreude er vont nesti. Væri ekki betra ef rík­is­stjórnin tæki sig til og gerði það sem þarf til að tryggja að sýkla- og veiru­fræði­deild LSH geti unnið úr þeim fjölda sýna á hverjum degi sem þörf er á, og það án þess að brenna út starfs­fólkið í leið­inni?“ skrifar hann.

Smári seg­ist þó ekki ætla að halda niðri í sér and­anum. „Vil ekki verða jafn blár og skepnan sem bjó til vanda­málið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár